Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Page 30

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Page 30
Alþjóðakrabbameins- rannsóknarsjóðurinn (World Cancer Rese- arch Fund International) gaf út í mánuðinum skýrslu um tengsl maga- krabbameins og lífsstíls. Magakrabbamein er fimmta algengasta krabbameinið og þriðja algengasta dánarorsök af völdum krabbameina. Sjúkdómurinn er algeng- ari meðal karla en kvenna en nýgengi hans hefur minnkað mikið á Íslandi undanfarin ár, en um 18 karlar greinast að meðaltali árlega og 12 konur. Sýnt hefur verið fram á að salt- neysla hefur veruleg áhrif á magakrabbamein en rannsóknir frá Asíu og þá sérstaklega Kóreu og Japan hafa gefið upplýsingar um tengsl saltneyslu og maga- krabbameins. Hér á landi hefur verið ráðlagt að neyta ekki meira en 6 g af salti daglega eða sem nemur einni teskeið og er þá átt við salt sem finnst í matvælum eins og osti, súpum, áleggi, morgunkorni, rauðu kjöti og unnum kjötvörum, svo dæmi sé tekið. Til að halda saltneyslu í lágmarki er gott ráð að borða sem minnst af unnum mat- vælum og elda frá grunni. Þá er einnig gott að sleppa því að salta matinn en bragðbæta hann í staðinn með ýmsu kryddi, það kemur út á eitt. Saltneyslu ætti alltaf að halda í lágmarki. Getty Images/iStockphoto TENGSL SALTS OG MAGAKRABBAMEINS Salt hefur áhrif á magann HEILSA A-vítamín er mikilvægt fyrir sjónina og margir fá það til dæmis úr lýsi.Það er einnig mikið af vítamíninu í grænmeti og ávöxtum og því um að gera að passa upp á dagsskammtinn af því hollustufæði. Augnheilsa og A-vítamín 30 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.5. 2016 Getty Images/iStockphoto KOSTIR OG ÓKOSTIR ÞESS AÐ LESA AF PAPPÍR EÐA TÖLVUSKJÁ Tölvu eða pappír?  Að lesa efni af skjá, á móti því að lesa það af pappír, getur, samkvæmt nýrri bandarískri rannsókn, haft áhrif á það hvernig fólk man efnið. Fólk sem las efni af tölvuskjá átti betra með að skilja hlutbundin smáatriði og geta kallað þau fljótt fram en þeir sem lásu efnið af papp- ír. Hins vegar hafði pappírsfólkið vinninginn þegar kom að því að skilja afstrakt, eða óhlutstæð atriði í efninu. Þannig var erfiðara fyrir tölvulesendur að sjá stóra samhengið í textanum. Þátttakendur í rann- sókninni voru 400 bandarísk ungmenni í Darth- mont. Niðurstaða rannsóknarteymisins er að fyrir nemendur sé sniðugt að nota tölvur til að fletta uppi alfræðiorðabókaratriðum en efni sem þarf að skilja og melta sé betra að lesa af pappír.  Samkvæmt rannsóknum hefur fólk minna úthald í langa texta í tölvum og gefst auð- veldlegar upp á lestrinum en klárar frekar séu textarnir í blaði eða á bók og ósjálfrátt leggjum við okkur meira fram við að muna það sem við lesum af pappír en tölvuskjá.  Eitt af því sem nefnt hefur verið með lestur á kvöldin af tölvuskjá er að bláa ljósið af skjánum dregur úr mela- tónínframleiðslu og það getur truflað svefninn. Þeim sem vilja lesa af tölvuskjá fyrir svefninn er bent á að skipta á „næturstill- inguna“ á skjánum eða hlaða niður appi sem gerir skjábirtuna svefn- vænni.  Röng líkamsstaða þegar fólk notar snjallsíma og -tölvur er algeng og í stoðkerfisfræðum er talað um svokallaðan „iPad-háls. Þá getur skjá- birtan orsakað höfuðverk, þreytu og þurr augu. Það er hins vegar hægt að koma í veg fyrir þetta með því að loka augunum öðru hverju og líta af skjánum reglulega og þá er mikilvægt að læra rétta líkamsstöðu við tölvur. Það er líka hægt að lesa bók og fara illa með hálsinn svo að það er ekki hægt að segja að annað sé gott og hitt slæmt. Efni til lesturs, bæði námsefni, tímarit, bækur og fréttir, er í dag oftast jafn- aðgengilegt í tölvu og á pappír. En hvað hefur pappír umfram tölvuskjá og öfugt? Viltu efla líkama og sál í heillandi umhverfi, endurnýja orkuna og gæla við bragðlaukana í leiðinni? Þá er nærandi sumardagskrá Heilsu & Spa, Ármúla 9, fyrir þig. Fallegt SPA, fjölbreytt þjónusta og fræðsla frá læknum, sjúkraþjálfara, næringar- og íþróttafræðingi. Nærandi sumar í Heilsu & Spa Opnunar- tilboð maí-15. september 39.900 kr. eða 9.975 kr. á mánuði 10 tíma kort á 29.900 kr. Nánari upplýsingar Sími 595 7007 | Facebooksíða Heilsa og Spa | gigja@heilsaogspa.is

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.