Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Qupperneq 31
22.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 31
Hydrófíl rakakrem án rotvarnar er alhliða rakakrem
sem má nota á allan líkamann og í andlit. Kremið er hannað
með viðkvæma húð í huga, hentar öllum húðgerðum og
öllum aldri. Hydrófíl rakakrem er sannkallað fjölskyldu-
krem þar sem líklegt er að allir í fjölskyldunni geti notað
það með góðum árangri.
Michael Clausen krem inniheldur 3% carbamidum.
Kremið er fremur feitt og gefur húðinni raka. Kremið
hentar vel á exem og þurra húð. Kremið má nota á
allan líkamann og í andlit.
Cetricide sárakrem hefur sótthreinsandi eiginleika.
Cetricide sárakrem er borið á smásár, bleyjuútbrot, lítil
brunasár, bólur og rispur. Kremið er áhrifaríkt á unglinga-
bólur.
Hælakrem er mjög feitt og er ætlað á þurra og grófa
húð. Kremið mýkir upp harða og grófa húð t.d. á hælum,
iljum og olnbogum. Best er að bera kremið á sig fyrir
svefn og leyfa því að virka yfir nóttina.
Karbamíðkrem er feitt rakabindandi krem sem hentar
fyrir venjulega, þurra og mjög þurra húð. Kremið má
nota í andlit og á hendur ef húðin er mjög þurr á þessum
svæðum. Best er að bera kremið á sig fyrir svefn.
ACP Krem leysir upp harða skán eða húð sem getur
myndast í hársverði. ACP krem er stíft (þykkt) krem sem
er notað í hársvörð. Það hefur hátt fitu innihald telst því
mjög feitt krem. ACP krem var framleitt í apótekum, og
dregur nafnið af fyrsta staf hvers innihaldsefnis.
Akvósum er stíft rakakrem sem er ætlað á þurra húð
og þurrkubletti. Kremið hentar börnum mjög vel.
Kuldakrem er útivistarkrem fjölskyldunnar. Kremið
er ætlað fyrir börn og fullorðna sem eru í útiveru
hvort sem er í leik eða starfi. Kuldakrem ver húðina
fyrir frostbiti og vind og er borið á andlit og hendur
áður en farið er út. Af kreminu er mildur ilmur af
lavender og rósmarín en þessar ilmkjarnaolíur eru hluti
af húðverndandi hluta kremsins. Kuldakrem er einnig
notað sem rakakrem fyrir þurra húð og hentar jafnt á
andlit, líkama og hendur.
Akvól er sérstaklega ætlað á mjög þurra húð á líkama
en einnig má bera það í andlit og á hendur. Akvól
inniheldur mikið magn af jarðhnetuolíu og telst því
mjög feitt krem.
ENGIN ILM- EÐA LITAREFNI
FÆST Í APÓTEKUM
HÁGÆÐA
HÚÐVÖRUR
EXEM ÞURRKUR Í HÚÐ PSORIASIS
Niðurstöður nýlegrar rannsóknar
sýna greinileg tengsl á milli kanna-
bisreykinga og skerts skamm-
tímaminnis. Rannsóknarteymi við
Lausanne háskólann í Sviss hefur
rannsakað notkun kannabisefna
meðal 3.400 amerískra ein-
staklinga á 25 ára tímabili. Kann-
að var minni, einbeiting og hæfni
til að taka skjótar ákvarðanir. Nið-
urstöður rannsóknarinnar voru
þær að fólk sem hafði notað
kannabisefni á hverjum degi í
fimm ár eða lengur var með verra
skammtímaminni en aðrir.
KANNABISREYKINGAR
Grasreykingar skerða minnið.
Getty Images/iStockphoto
Kannabis
og minni
Í Bretlandi hefur fólki sem borðar svokallað vegan-
fæði snarfjölgað eða um heil 360% á aðeins 10 árum
en talið er að um hálf milljón Breta borði fæði sem
inniheldur engar afurðar úr dýraríkinu. Það þýðir þá
ekki aðeins að fólk forðist kjöt og fisk heldur líka egg
og mjólkurafurðir. Árið 2006 voru þetta 150.000
manns samkvæmt breska dagblaðinu The Telegraph.
Heilsufarslegur ávinningur þess að vera á þessu
mataræði er talinn eiga stóran þátt í vinsældunum en
þeir sem halda sig við veganfæði koma afar vel út úr
blóðþrýstings- og kólesterólmælingum. Einnig gerast
margir veganætur af hugsjónaástæðum; horfa til
framtíðarinnar og velferðar dýra og umhverfisins.
Meðal stjarnanna sem halda sig við veganmatar-
æðið eru þær Jennifer Lopez og Ellie Goulding og er
talið að þegar stjörnur í skemmtanaiðnaðinum aug-
lýsa mataræði sitt hafi það mikil áhrif.
Nær helmingur allra þeirra sem eru vegan er ungt
fólk, á aldrinum 15-34 ára, og aðeins 14% þeirra eru
yfir 65 ára. Þá eru flestir sem eru vegan borgarbúar, í
miðborgunum, og 22% allra þeirra Breta sem halda
sig við jurtafæðið búa í London.
BORÐA ÚR JURTARÍKINU Í BRETLANDI
Veganmataræðið sækir á
Veganmataræðið þýðir að sneitt er hjá öllum afurðum úr dýraríkinu.
Morgunblaðið/Kristinn
Með hækkandi sól og hita fara
hlauparar á stjá og einhverjir ætla
sér að vinna upp þol og enda sum-
arið á maraþoni. Hlauparar geta
lent í því að fá höfuðverk, svima
eða vöðvakrampa en yfirleitt er
það merki um ofþornun og því er
afar mikilvægt að gleyma sér ekki
á hlaupunum og passa að drekka
nóg. Hægt er að kaupa létta brúsa
sem auðvelt er að bera á sér en
einnig er hægt að vera búinn að
ákveða hvar hægt er að stoppa á
leiðinni og drekka smá vatn.
HLAUPURUM HÆTT
VIÐ AÐ OFÞORNA
Til eru góð belti fyrir brúsana.
Gleymist
að drekka