Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Blaðsíða 35
22.5. 2016 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 35 Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is Margar gerðir af innihurðum Hjá Parka færðu flottar flísar í hæsta gæðaflokki frá þekktum ítölskum framleiðendum. Sjón er sögu ríkari. Bjóðum aðeins það besta fyrir þig! Full búð af flottum flísum kring. Í góðu veðri er dásamlegt að sitja úti og njóta. Eftir það væri svo hægt að rölta lengra niður í bæ þar sem alvöru skemmtistaði er að finna. VERSLAÐ Í BRISTOL Þeir sem vilja ná að versla á ferðalagi sínu um Bristol munu ekki eiga í neinum vandræðum með að finna góðar búð- ir. Cobot Circus er til að mynda skemmtileg verslunarmiðstöð sem hefur að geyma fjölbreytt úrval vin- sælla verslana. Víða um borgina er svo að finna sjarmerandi smáversl- anir. Það er því auðveldlega hægt að gera góð kaup í Bristol. BATH SPENNANDI SAGA Eins og áður sagði er auðvelt að fara í dagsferð frá Bristol til Bath. En þeir sem hafa áhuga á sagn- fræði ættu að gefa sér góðan tíma í Bath og dvelja þar í meira en einn dag því borgin er stútfull af ótrúlegri sögu. Það sem ber helst að nefna er musterið og al- menningsbaðhúsið sem Rómverjar reistu smátt og smátt á árunum 60- 70 e.Kr. Síðan þá hefur Bath verið vinsæll orlofsstaður vegna heilsu- lindanna sem byggðar eru í kringum náttúrulega hveri. SLÖKUN Þá mæli ég með að fara í Thermae Bath Spa-heilsulindina sem er á nokkrum hæðum. Þar geta gestir meðal annars látið alla þreytu líða úr líkamanum í dásamlegri þak- sundlaug og „detox“-að í nokkrum mismunandi gufum. SÖFN OG FRÓÐLEIKUR Þeir sem vilja fara á söfn í fríinu sínu ættu að vera í essinu sínu í Bath því af nógu er að taka. Þar er gott úrval fjöl- breyttra safna sem spanna meðal annars arkitektúr, listir, tísku og sögu. Tískusafnið Fashion Museum þykir sérstaklega tilkomumikið því þar er hægt að skoða aldagömul föt í bland við nýrri fatnað frá tísku- húsum Christian Dior og Alexander McQueen svo dæmi séu tekin. Þá fá gestir einnig tækifæri til að máta töfrandi bún- inga sjálfir, skemmtilegt og fróðlegt í senn. ÖÐRUVÍSI AFÞREYING Þeir sem vilja gera eitthvað öðruvísi og spenn- andi í Bath geta skellt sér í ferðalag með loftbelg. Loftbelgirnir fara frá Royal Vicoria Park og svífa þaðan Þaksundlaugina í Thermae Bath Spa-heilsulindinni er vert að heimsækja. Ljósmynd/visitbath.co.ukSkipið SS Great Britain var smíðað árið 1843 á sama stað og það situr á í dag. Ljósmynd/Adam Gasson um loftin blá í allt að þrjár til fjórar klukkustundir áður en þeir lenda aft- ur á sama stað. Þetta er upplifun sem gleymist seint. ALMENNINGSGARÐAR OG RÖLT Auðvelt er að ferðast um á tveimur jafnskjótum í Bath og í raun miklu skemmtilegra en að fara um í bíl því borgin er dásamlega hrein, snyrtileg og fögur. Almenningsgarð- arnir eru draumur í dós en borgar- búar hjálpast allir við að halda um- hverfinu hreinu og það skilar sér. Afslappað andrúmsloftið gerir rölt um stræti og torg fullkomið fyrir pör sem vilja eiga rómantíska stund. FJÖLBREYTTAR VERSLANIR Þeir sem vilja versla í Bath munu svo sannarlega ekki eiga í vandræðum með það því gott úrval verslana er í borginni. Þar er að finna bæði stórar og þekktar verslunarkeðjur í bland við litlar sjálfstæðar verslanir. Og rólega andrúmsloftið sem ríkir í borginni tryggir ánægjulegan versl- unarleiðangur. Þetta er aðeins brot af því besta sem Bristol og Bath hafa upp á að bjóða. Borgirnar tvær eru svo skemmtilega ólíkar, sem gerir þær að dásamlegri tvennu. ’Menningar-borgin Bristolhefur upp ámargt að bjóða. Á Jane Austen-safninu fá gestir að kynnast þessum ástsæla höfund betur. Aðdáendur rithöfundarins Jane Austen ættu svo sannarlega að kíkja á safnið The Jane Austen Center í Bath því á safninu fá gestir innsýn í líf hennar og ævi- starf. Austen heimsótti Bath reglulega og á árunum 1801 til 1806 bjó hún þar. Dálæti hennar á borginni skín augljóslega í gegn í bókunum hennar Northanger Ab- bey og Persuasion sem eiga að gerast að mestu í Bath. Á Jane Austen-safninu eru vax- myndir, búningar og ýmsir hlutir sem gæða ævisögu hennar lífi. Gestir fá meðal annars tækifæri til að klæða sig í búninga í anda Austen og horfa á fræðandi stutt- myndir. Eins er hægt að setjast niður og sötra á hágæða tei og fá sér meðlæti eins og sannur Eng- lendingur myndi gera. Að lokum er hægt að kaupa varning sem tengist Austen í gjafavöruverslun safnsins. Skemmtilegt og upplýs- andi safn. Innsýn í líf Jane Austen Tyntesfield-herragarðurinn, sem nú er í eigu húsafriðunarnefndar (National Trust), er rétt fyrir ut- an Bristol. Í dag er safn á herra- garðinum, sem hefur að geyma yfir 60.000 muni sem áður voru í eigu Gibbs-fjölskyldunnar sem bjó þar, um 100 munir eru nú til sýnis fyrir gesti á sýningunni Passions and Possessions. Herragarðurinn var keyptur af National Trust árið 2001, skömmu eftir að Richard Gibbs lést. Hann var seinasti eftirlif- andi meðlimur Gibbs-fjölskyld- unnar sem bjó á Tyntesfield, barnlaus og ókvæntur. Seinustu ár ævi sinnar bjó hann aðeins í litlum hluta byggingarinnar þannig að aðalsetrið var í ansi vondu ásigkomulagi þegar Nat- ional Trust keypti það. Viðhaldið hafði ekki verið neitt og mygla og raki var í veggjum og hús- gögnum. En herragarðurinn hefur verið gerður upp og útkoman er vel heppnuð, í einu herberginu var þó lítið sem ekkert gert til að gefa gestum safnsins skýra mynd af því hvernig ástandið var þeg- ar National Trust festi kaup á setrinu. Gibbs-fjölskyldan var vellauð- ug eins og sjá má á þeim mun- um sem eru til sýnis á Passions and Possessions. Til dæmis fá gestir tækifæri til að sjá hásæti og aðra ótrúlega muni sem- Gibbs-fjölskyldan lét smíða fyrir sig í gegnum tíðina. Þessir hlutir gefa gestum góða mynd af þeim auðæfum sem fjölskyldan átti. Eins fá gestir tækifæri til að rölta um hluta byggingarinnar og skoða hvernig fjölskyldan bjó. Í höllinni er einnig hægt að fá innsýn í fyrirkomulagið hjá þjón- ustufólki fjölskyldunnar en tugir þjóna og aðstoðarfólks störfuðu í byggingunni á sínum tíma. Sumt aðstoðarfólkið var svo með sína eigin þjóna sem þurftu ávallt að halda sig fjarri heim- ilisfólki og aldrei láta sjá sig. Það er vel þess virði að heim- sækja Tyntesfield enda er þessi herragarður ansi tilkomumikil og lóðin í kring líka þar sem allt viðhald er til fyrirmyndar. VEL ÞESS VIRÐI AÐ SKOÐA Ljósmynd/Paul Blakemore Tyntesfield-herragarðurinn Á safninu eru til sýnis ótal dýrmætir munir sem voru í eigu fjölskyldunnar.

x

Morgunblaðið - Sunnudagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið - Sunnudagur
https://timarit.is/publication/1078

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.