Morgunblaðið - Sunnudagur - 22.05.2016, Page 40
LESBÓK
Leiksýningin Könnunarleiðangurinn til Koi verður sýnd í Tjarnarbíói til
styrktar samtökunum Akkeri annað kvöld, sunnudag, kl. 20.30. Verkið
fjallar um flóttamannavandann og vilja höfundar og flytjendur, Hilmar
Jensson og Tryggvi Gunnarsson, með styrktarsýningunni leggja sitt af
mörkum, en Akkeri eru samtök sem starfa í þágu fólks á flótta.
Sýnt til styrktar flóttamönnum
40 MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 22.5. 2016
Sýning Hreins Friðfinnssonar og banda-ríska listmálarans Johns Zurier, semverður opnuð í Listasafni ASÍ í dag,
laugardag, kl. 17, ber heitið Við vorum einu
sinni nágrannar. Er þar vísað til þess að lista-
mennirnir kynntust þegar verk þeirra voru
sýnd í aðliggjandi rýmum á myndlistartvíær-
ingnum í Sao Paulo fyrir þremur árum.
Hreinn kom í vikunni frá Amsterdam, þar
sem hann hefur verið búsettur um langt ára-
bil, að fylgjast með uppsetningu sýningar-
innar. Zurier kom hins vegar frá Kaliforníu,
þar sem hann býr, en hann hefur unnið mikið
að list sinni hér á landi undanfarin ár.
„Ég sýni þrjú verk í Gryfjunni, Zurier er
með málverk upp í Ásmundarsal og svo mæt-
umst við hér í Arinstofunni,“ segir Hreinn
þar sem aðstoðarmenn hans eru að setja upp
verk með loftsteini og seglum. Þegar hann
komst að því suður í Brasilíu að Zurier var að
sýna verk með íslenskum heitum sagði
Hreinn að hann yrði að sýna á Íslandi.
„Ég svaraði að við gætum kannski sýnt
saman, hann tók það ekki alvarlega þá en átti
seinna hugmyndina að þessari sýningu,“ segir
Zurier. „Elsta verkið sem ég sýni hér málaði
ég með Hrein í huga, áður en ég hitti hann en
ég hafði hrifist svo af þeim á sýningum hér.
Ég lít á mitt framlag hér sem sýningu um
Hrein og aðdáun mína á honum og verkum
hans.“ Myndlistarmennirnir Hreinn Friðfinnsson og John Zurier mætast í Arinstofu Listasafns ASÍ. Hreinn sýnir í líka Gryfjunni opg Zurier í Ásmundarsal.
Morgunblaðið/Einar Falur
Málaði með Hrein í huga
Nokkrar af helstu myndlistarsýningum Listahátíðar í Reykjavík verða opnaðar í dag.
Það á meðal sýning Hreins Friðfinnssonar og Johns Zurier í Listasafni ASÍ.
„Ég sekk alltaf dýpra inn í málverkið. Ég var
venjulega með tilvísanir í ljósmyndir en það er
ekkert slíkt hér,“ segir Hulda Stefánsdóttir
um sýninguna Færslu með 19 nýjum mál-
verkum hennar, sem verður opnuð í Berg Con-
temporary, Klapparstíg 16, kl. 18.
Hulda er kunn fyrir klasa málverka, sem
hún hefur iðulega fægt niður og dregið úr því
sem hún hefur áður hlaðið upp á flötinn en þótt
jafnvægið í upphengingu á þessari sýningu
hennar sé hárfínt þá standa málverkin stakari
en oft áður á sýningum hennar, og stærri og
litríkari sum hver. Þau er byggð upp með lagi
eftir lagi af litum og jafnvel gulli og silfri.
Hulda segir að í verkunum sé hvítur litur
dreginn af samsetningu litrófsins og birtan
spretti frá myrkrinu. „Hugmyndirnar að þeim
hafa gerjast lengi. Þetta eru allt stef sem hafa
verið í verkunum mínum áður, og ég er ekki
endilega að hafna klösunum og smærri heild-
um en þetta er það sem ögraði mér núna, að
láta reyna á stærri og sjálfstæð myndverk,“
segir hún.
„Titillinn Færsla er vísun í þessa tilfærslu
mína en líka í yfirfærslu minni verka og hreyf-
ingu innan hvers myndflatar og milli verk-
anna. Mér finnst áhugaverður tímarammi í
kyrrstæðum myndfleti.“„Það er gaman að koma sjálfum sér á óvart,“ segir Hulda Stefánsdóttir sem er hér á sýningu sinni.
Morgunblaðið/Einar Falur
Sífellt dýpra í málverkið
Hulda Stefánsdóttir sýnir ný abstraktmálverk í Berg
Contemporary og kveður við nokkuð nýjan tón.
Sýninguna sína í Gallery GAMMA að Garða-
stræti 37 kallar Gabríela Friðriksdóttir Innra líf
heysátu. Og ilmandi heyið er í lykilhlutverki inn-
setningarinnar: í böggum, skúlptúrum, teikn-
ingum og rúmlega 15 mínútna langri teiknimynd
sem hún vann með Pierre-Alain Giraud. Hluti
innsetningarinnar var fyrst sýndur í skála
Liechtenstein á Feneyjatvíæringnum í fyrra.
„Þetta eru nýir gæjar, eða líkneski, sem ég
vann út frá anda sem er í teiknimyndinni og
teikningunum,“ segir Gabríela um fígúrurnar
eða skúlptúrana sem standa á stöplum í miðju
rýminu. „Mér fannst þá vanta þegar ég kom
fyrst í sýningarsalinn!“
Um þá ákvörðun að vinna heila sýningu út
frá innra lífi heysátu, segir hún það hafa
byrjað þegar hún skrifaði textann sem flutt-
ur er í teiknimyndinni, af karli á ensku og
stúlku á íslensku. „Textinn er um dag-
drauma, þegar maður ferðast með nostalg-
íunni. Fyrir mér er heylykt svolítill ilmur
æskunnar og heyið fór að troða sér inn,“ seg-
ir hún og hlær.
Gabríela segist vera með sinn stíl og vera
eins og hún er. „Ég held áfram að vinna með
þau form og efni sem ég hef valið mér á und-
anförnum árum, í teikningunni og skúlptúr-
unum, þetta er orðið alveg náttúrulegt.“ „Þetta eru nýir gæjar,“ segir Gabríela Friðriksdóttir um skúlptúrana sem standa á stöplum.
Morgunblaðið/Einar Falur
Heyilmur æskunnar
Í Gallery GAMMA er innsetning Gabríelu Friðriksdóttur, Innra
líf heysátu: teiknimynd, hljóðverk, skúlptúrar og teikningar