Víkurfréttir - 06.05.1999, Qupperneq 18
Fyrirspurnir
á síðasta
kjörtímabili:
Innheimta gjalds fyrír endur-
tektarpróf til menntmrh.
Störf í Flugstöð Leifs
Eiríkssonar til utanrrh.
Lausaganga búfjár til dómsmrh.
Áhrif af afnámi
línutvöföldunar til sjútvrh.
Losun gróðurhúsalofttegunda
frá flugvélum og stóríðju
til umhvrh.
Vegtenging frá Stafnesi til Hafna,
Ósabotnavegur til samgrh.
Takmarkanir á notkun
nagladekkja til dómsmrh.
Sjálfvirkur sleppibúnaður á
skipum til samgrh.
Eftirlit með almennri heilsu
tiltekinna aldurshópa til heilbrrh.
Förgun mómoldar og
húsdýraáburðar til umhvrh.
Reiðvegir fyrir hestafólk
til samgrh.
Losun koldíoxíðs í
andrúmsloft til umhvrh.
Kaup á kvikmyndum Óskars
Gíslasonar til menntmrh.
Breytingar á skattalögum
til fjmrh.
Starfsumhverfi og framtíðar-
möguleikar fiskvinnslunnar
til sjútvrh.
Heilsugæsla i skólum til heilbrrh.
Útboð á hafrannsóknaskipi
til sjútvrh.
Gjaldþrot einstaklinga að kröfu
hins opinbera til fjmrh.
Fjarkennsla Verkmenntaskólans
á Akureyri til menntmrh.
Prófun á vímuefnaneyslu
nemenda í skólum til dómsmrh.
Tengsl umferðarslysa og neyslu
ávana- og fíkniefna til dómsmrh.
Eignir og skuldir heimila
til viðskrh.
Aðgerðir vegna
starfsþjálfunar til forsrh.
Flutningur nemenda grunnskóla
milli bekkja eða skóla
til menntmrh.
Tekjur ríkissjóðs af slökkvi-
og björgunarbúnaði til fjmrh.
Fjöldi slysa á helstu ferða-
mannastöðum til samgrh.
Samanburður á launakjörum
iðnaðarmanna til iðnrh.
Akstur lögreglu-, sjúkraflutn-
inga- og slökkviliðsbifreiða til
dómsmrh.
Flutningur ríkisstofnana
út á land til forsrh.
Löndun undirmálsfisks til sjútvrh.
Sjóvarnargaróar
í Hafnarfirði til samgrh.
Flutningur höfuðstöðva
Landhelgisgæslunnar til
Suðurnesja til dómsmrh.
Rekstrarskilyrði smáfyrírtækja
til viðskrh.
Varnir gegn landbroti til samgrh.
Ferjuflug um Keflavíkur-
flugvöll til samgrh.
Stofnun sérskóla á vegum
rikisins til menntmrh.
Skoðun ökutækja til dómsmrh.
Kærur vegna iðnlagabrota
til dómsmrh.
Afnám vísitölubindingar
lána til viðskrh.
Flutningur ríkisstofnana
út á land til forsrh.
Hjálmar er annar höfunda tillögu, sem samþykkt
var á Alþingi, þess efnis að komið verði upp lands-
liði hestamanna við móttöku á erlendum tignar-
gestum sem og fyrir skrautreið á sumrin niður
Almannagjá fyrir erlent ferðafólk. í landsliðinu á
að sýna hvernig íslenski hesturinn getur þjónað
fólki á öllum aldri.
Aðstoð við fyrirtæki
og einstaklinga
Fjöldi fólks og fulltrúa fyrirtækja hefur leitað til
Hjálmars á kjörtímabilinu og notið liðsinnis hans.
Undri - vistvænt hreinsiefni
Sigurður Hólm í Reykjanesbæ
stofnaði fyrirtæki um bylt-
ingakennda hugmynd með
vistvænt hreinsiefni - unnið
úr íslenskri tólg. Efnið er í
mikilli sókn og virðist ætla
að valda straumhvörfum á
þessu sviði. Hjálmar hefur lagt mikla vinnu í að
hjálpa Sigurði við að koma fyrirtækinu á legg.
Stöðugildi til forvarna í lögreglu
Hjálmar beitti sér fyrir því að veitt var sérstök
fjárhæð til sýslumannsins í Reykjanesbæ til að
ráða sérstaklega í stöðu lögreglumanns til að vinna
að förvörnum og gegn fíkniefnum á Suðurnesjum.
Almannavarnir - nýr bíll
Fyrir nokkrum dögum fengu Almannavarnir
fjarskiptabíl til ráðstöfunar. Hjálmar hafði milli-
göngu um það mál. Þetta eykur öryggi á svæðinu
til muna.
Háskólanám á Suðurnesjum
Fyrir tilstuðlan Hjálmars og
annarra var nýlega gengið frá
samningi milli Háskólans á
Akureyri og MOA um fjarnám í
hjúkrun, rekstarfræðum, sjáv-
arútvegi o.fl. Kennsla fer
fram um netið frá Akureyri en
nemendur stunda námið hér suðurfrá. Þetta er
bylting i menntamálum Suðurnesja.
©l
Blái herinn
Tómas Knútsson og hópur kafara hófu átak Bláa
hersins sem miðar að þvi að hreinsa hafið við
bryggjur landsins og breyta hugafari fólks hvað
varðar mengun hafsins, Hjálmar er verndari þessa
verkefnis.
Aaætu
Síðustu fjögur ár hef ég reynt að vinna af
bestu getu að málefnum Suðurnesja og
þjóðarinnar. Ég vona að þið kunnið að
meta verk mín. Ég tel mig eiga ýmislegt
óunnið og leita því eftir ykkar stuðningi. Tvö
þingsæti af Suðumesjum virðast örugg samkvæmt
skoðanakönnun. Mitt sæti er hins vegar í mikilli
hættu. Mér þætti vænt um ykkar stuðning þannig
að þrír þingmenn af Suðumesjum verði áfram
á næsta kjörtímabili.
Með vinsemd
Hjálmar Arnason.