Víkurfréttir - 06.05.1999, Blaðsíða 23
Ræstingar í
Flugstöð Leifs
Eiríkssonar
Starfsfólk óskast til ræstinga í
Flugstöd Leifs Eiríkssonar.
Vaktavinna. Ekki yngri en 18 ára.
Umsóknum skal skila á skrifstofu
Víkurfrétta 12. maí merkt „ Ræsting
í flugstöd ".
Fagræsting sf.
Auglýst eftir nýjum forstjóra
KefMurverktaka hf.
Auglýst hefur verið eftir
nýjum forstjóra Keflavíkur-
verktaka hf. Gert er ráð
fyrir að hann taki við
starfinu með haustinu að
sögn Björn Herberts Guð-
björnssonar eins af fram-
kvæmdastjórum fvrirtæk-
isins.
Jón H. Jónsson hefur verið
framkvæmdastjóri fyrirtæk-
isins og hefur hann ákveðið
að láta af störfum um næstu
áramót en hann mun starfa
með nýjum forstjóra þar til
hann hættir.
Undanfarið hefur staðið yfir
vinna við undirbúning sam-
einingar fyrirtækja Kefla-
víkurverktaka í eitt og mun
hún eiga sér stað 1. júlí í
sumar. Sameiningin mun þó
ekki verða staðfest fyrr en á
hluthafafundum í október í |
haust.
Aðspurður um hvort ráðinn
yrði utanaðkomandi maður,
þ.e. utan fyrirtækisins sagði
Bjöm ekkert ákveðið í þeim
efnum en með auglýsingunni
væri verið að gefa öllum tæki-
færi.
Atvinna
- sumarafleysingar -
Afgreiðslufólk óskast á
bensínstöðina Olis-Básinn.
Umsóknareyðublöð á staðnum.
Einnig vantar bifreiðastjóra með
meirapróf í Olís, Njarðvík.
Umsóknareyðublöð fást á skrif-
stofu Olís, Hafnarbraut 6.
BÁSINN
TILRÆÐIVIÐ FRAM-
TÍÐ ÞJÓÐARINNAR
Allir hugsandi menn vita að
haldi núverandi ríkisstjórn
velli mun hún festa endanlega
í sessi það ótrúlega ranglæti
sem felst í ómálefnalegri mis-
munun þegnanna til nýtingar
sameiginlegrar eignar, fiski-
miða landsins. Þá verða for-
réttindi sægreifaaðalsins end-
anlega tryggð, sem jafngildir
300 - 400 milljarða króna
þjófnaði frá þjóðinni með
samsvarandi skatti á sjávarút-
veg framtíðarinnar þegar sæ-
greifarnir hafa selt þýfið,
kvótann sinn. Þjóðin verður
þá að kaupa aftur fiskimiðinn
með gengislækkunum og
styrkjum til sjávarútvegsins.
Nokkrir sægreifar hafa þegar
selt kvótann “sinn” og farið
með milljarða króna á fjár-
magnsmarkað erlendis. Sam-
eign þjóðarinnar hefur farið í
gegnum hendur sægreifanna
til að byggja upp atvinnulíf
annarra landa. Gjafaféð veitir
einnig sægreifunum ósann-
gjama forgjöf í samkeppninni
hvort sem jreir kjósa að halda
sig áfram í sjávarútvegi eða að
fara inn ný svið atvinnulífsins.
Daglega kveðja sér hljóðs
málsmetandi menn til að lýsa
því að núverandi fiskveiði-
stjórnarkerfi sé „að óbreyttu
óhafandi og beinlínis stór-
hættulegt fyrir útgerðina sem
atvinnugrein og þar með þjóð-
arhag” svo að vitnað sé orðrétt
í einn þeirra eða „tilræði við
framtíð þjóðarinnar” eins og
Markús Möller hagfræðingur
sagði í prófkjörsslag Sjálf-
stæðisflokksins á Reykjanesi.
Forstumenn Sjáífstæðis-
flokksins og Framsóknar-
flokksins liafa ákveðið að
verja sægreifaveldið. Forrétt-
indum þeirra verður ekki
haggað nema með kosningar-
sigri Frjálslynda flokksins, F-
listans, nú á laugardaginn því j
að hugmyndir vinstri manna
eru í besta falli óljósar.
Valdimar Jóhannesson
Maðitr d lista Frjálslynda
Jlokksins á Reykjnesi.
REYKJANESBÆR
Sumarvinna 1999
SÍDASTA ÚTKALLU
Reykjanesbær auglýsir sumarstörf laus til umsóknar
fyrir fólk á aldrinum 17 til 25 ára.
Laun skv. kjarasamningum VSFK og Reykjanesbæjar.
Umsóknareyðublöð liggja frammi á skrifstofum
Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12 og
Hafnargötu 57 (Kjarna).
Umsóknarfrestur rennur út á morgun 7. maí 1999
og skal umsóknum skilað til Markaðs- og
atvinnumálaskrifstofu Hafnargötu 57,
sem gefur allar nánari upplýsingar.
Starfsmannastjóri.
ROin
BAR’RESTAURANMAFFÉ
A tvinna
Óskum eftir að ráða matreiðslu-
mann og fólk í framreiðslu.
Upplýsingar gefur Vifill
í síma 421-4601.
Sumartilboð
Acrylneglur á 3500 kr.
Tilboðið gildir frá 10. maí til 20. maí.
SNYRTISTOFA LINDU, sími 421-4068.
V íkurfréttir