Víkurfréttir - 06.05.1999, Page 31
Sandgerðingurinn og
fimléikadrottningin
Hilma Sigurðardóttir
hyggst feta í fótspor
frænku sinnar Huldu Lár-
usdóttur og sækja verðlaun
á Islandsmótið í þolfimi sem
fer fram í íþróttahúsinu í
Digranesi fimmtudaginn 13.
apríl nk.
Hilma er átján ára nemi á nátt-
úrufræðibraut Fjölbrautar-
skóla Suðumesja og fyrruni
fimleikastjama en hún æfði og
keppti í fimleikum í 11 ár, frá
6 ára aldri til sautján.
,.Eg komst fljótt að því að ég
gat ekki setið auðum liöndum
og fór þvf að æfa hjá Stúdeo
Huldu eftir hálfsársfrí frá fim-
leikunum. Hulda er eini Suð-
umesjamaðurinn sem unnið
hefur til verðlauna í þolfim-
inni en hún fékk bronsverð-
laun 1993 og ákváð ég reyna
að slá henni við. Við Hulda
erum ekki bara frænkur heldur
líka fæddar með dagsmillibili
í Vatnsberamerkinu." sagði
Hilrna í yfirheyrslu VF. „Und-
irbúningurinn er búinn að vera
skemmtilegur og Hulda verið
mér innan handar á öllum
stigum hans. Nú tekur spenn-
an við og hlakka ég mikið til
keppninnar."
L
J
UNDANURSLIT REYKJA-
NESMÓTSINS í KVÖLD
Víðismenn taka á móti Njarð-
víkingum í undanúrslituni
Reykjanesmótsins í knatt-
spvrnu í kvöld kl. 19. Grind-
víkingar mæta Reynismönn-
um í hinum undanúrslita-
leiknum nk. mánudagskvöld,
í Grindavík. Garðbúar og
Grindvíkingar komust upp úr
riðlakeppninni með fullt hús
stiga og verða að teljast líkleg-
astir til að komast í úrslita-
leikinn. Þróttur úr Vogum og
Knattspyrnudeild Golfklúbbs
Grindavíkur kljást um botns-
sætið.
Keflvíkingar og Grind-
víkingar úr leik
Suðurnesjaliðin Keflavík og
Grindavík voru slegin út í 16
liða úrslitum Deildarbikar-
keppninnar í knattspyrnu.
Grindvíkingar áttu við sterkt
lið KR-inga að eiga og töpuðu
4-1. Lið grindvískra á við
mikil meiðsl að stríða. Grétar
Hjartarson skoraði mark þeir-
ra. Keflvíkingar öttu kappi við
Þrótt Reykjavík, sem leikur í
1. deild, og þurfti að bfta í það
súra epli að tapa 1-0 en Þrótt-
arar skoruðu úr vítaspyrnu.
Keflvíkingar voru tvímæla-
laust sterkari aðilinn í leiknum
en var, eins og oft áður, gjör-
samlega fyrirmunað að koma
knettinum í netið.
Grindavík - Ohio
Landsbankinn áfram
hjá Gnindavík!
Knattspyrnudeild Grinda-
víkur og Landsbanki Is-
lands hafa undirritað samn-
ing um samstarf. Lands-
bankinn hefur um árabil
verið aðalstyrktaraðili
knattspyrnudeildarinnar og
hefur nú verið undirritaður
nýr samningur til tveggja
ára. Landsbankinn auglýsir
á upphitunargöllum liðsins
og á ýmsum öðrum stöðum
og ákveðnir viðskiptaklúbb-
ar bankans fá ókeypis eða
ódýrari aðgang að heima-
leikjum Grindvíkinga í
sumar. Þá eru í samningn-
uni bónusgreiðslur til leik-
nianna meistaraflokks auk
þess sem útnefndir verða í
vertíðarlok „Landsbanka-
leikmenn ársins“ í meistara-
flokki og 2-4. flokki.
Knattspyrnulífið í Grindavík
verður með alþjóðlegum blæ í
sumar. Kvennalið Grindvíkinga
á von á þremur bandarískum
yngismeyjum til að styrkja leik-
mannahóp liðsins. Stúlkurnar
sem heita Shauna Cottrell, Elisa
Donovan og Sara Davidson eru
leikmenn háskólaliðs Toledo í
Ohio. Shauna var valin ein af
30 bestu leikmönnunum í há-
skólaboltanum á síðasta tímabili
og hefur verið valin í landsliðs-
hóp Kanadíska landsliðsins fyr-
ir HM kvenna í sumar.
Jákvœðninámskeið
fyrir áhorfendur
Á leik Keflavíkur og Þróttar i Deildarbikamum vakti athygli
lítill hópur áhorfenda, margir hverjir mjög tengdir knatt-
spyrnudeild Keflavíkur, sem kepptist við að gera dómara og
línuvörðum leiksins lífið leitt. Fúkyrðunum rigndi yfir þessa
starfsmenn vallarins sem eins og aðrir á vellinum gerðu mis-
tök á báða bóga. Skiljanlegt er að vorbragur sé á áhoifend-
um sem leikmönnum og dómurum en þvílíka skítadreifara,
sem þessa, ber að nota á auða grasbletti. Börn okkar bœjar-
búa þutfa á öðrum fyrirmyndum að halda en þessum og vel
vert að athuga hvort ekki er hœgt að korna kjaftbullum þess-
um á jákvœðninámskeið,Jyrir upphaf Islandsmóts.
Fjónir Keflvíkingar
í kvennalandsliðinu
Kvennalandsliðið í körfuknatt-
leik er einnig á leið á alþjóðlegt
mót í Luxembourg og hefur
Oskar Kristjánsson, landsliðs-
þjálfari, valin 12 stúlkur til far-
arinnar. Liðið skipa: Guðbjörg
Norfjörð, Linda Stefánsdóttir,
Helga Þorvaldsdóttir og Kristín
Jónsdóttir KR-ingar. Keflvík-
ingamir eru fjórir, Anna María
Sveinsdóttir, Kristín Blöndal,
Bima Valgarðsdóttir og Marín
Sigurðardóttir. Aðrir leikmenn
eru Alda Leif Jónsdóttir og
Signý Hermannsdóttir frá Stúd-
ínum og Gréta M. Grétarsdóttir
og Hildur Sigurðardóttir úr IR.
Aðstoðarþjálfari liðsins er til-
vonandi þjálfari meistaraflokks
KR, Ingi Þór Steinþórsson.
Nhi Suöupnesjamenn í karlalandsliðinu
Landsliðsþjálfarinn í körfuknattleik, Jón Kr.
Gíslason, hefur valið 12 manna leikmanna-
hóp til keppni á alþjóðlegu móti í Luxem-
bourg 7.-9. maí nk. Níu Suðurnesjamenn
eru í hópnum þar af einn tveggja nýliða,
Gunnar Einarsson úr Keflavík. Eftirtaldir
leikmenn skipa landsliðið:
Falur Harðarson, Hjörtur Harðarson. Birgir
Orn Birgisson og Gunnar Einarsson úr
Keflavík. Friðrik Ragnarsson, Friðrik Stef-
ánsson og Páll Kristinsson úr Njarðvík. Páll
Vilbergsson, Helgi Jónas Guðfinnsson og
Herbert Amarsson úr Grindavík. Aðrir leik-
menn em Eiríkur Önundarson KR-ingur og
hinn nýliðinn í hópnum. Dagur Þórisson
Skagamaður.
„Ég er að sjálfsögðu mjög ánægður með
landsliðssætið. Ég held að bættan árangur
minn í vetur megi skrifa á markvissari æf-
ingar. Ég lyfti vel síðasta sumar, eins og oft
áður, og hélt því svo áfram í allan vetur með
æfingunum en það hef ég aldrei haldið út
áður.“ sagði Gunnar er VF hafði samband
og óskaði honum til hamingju með lands-
liðssætið. Aðstoðarþjálfari liðsins er Friðrik
Ingi Rúnarsson, Njarðvíkingur.
Ekkijleiri
Bandaríkjamenn!
Á ársþingi KKI í Hveragerði
1. og 2. maí var borinn upp
tillaga um Ijölgun banda-
rískra leikmanna úreinum í
tvo. Fyrirfram var búist við
hörðum slag um tillöguna
og því mjög óvænt hve at-
kvæðagreiðslan var afger-
andi 65-20 gegn fjölgun
Bandaríkjamannanna. Ef-
laust helur flestum |x')tl bog-
inn spenntur alveg nægilega
hátt í sinni heimabyggð.s
Fleiri upp,
fleiri niður
Áfram af ársþingi KKÍ.
Samþykkt var að Ijölga
|ieim liðum sem skipta um
deildir úreinu í tvö.
í stað þess að eitt lið falli úr
úrvalsdeild ár hvert falla tvö
og tvö ný koma inn. Auknar
líkureru nú á því að fleiri lið
stígi sín fyrstu úrvalsdeildar-
skref á næstu árum sem
hlýtur að verða körfuboltan-
um til framdráttar.
Víkurfréttir