Víkurfréttir - 20.05.1999, Side 7
Vorboðarnir komnir á kreik!
Hluti af vorkomunni er þegar hjólafólkið tekur fram
fáka sína. Hér er Baldur Baldursson klár í umferðina.
VF-mvnd: Hrólfur
Óskoðuð bifreiðin heimilinu dýr
Lögieglan í Keflavík leit eftir ástandi bifreiða Suðumesjamanna
í síðustu viku. Það er eigendum bifreiða dýrt að fá aðvörunar-
miða frá lögreglunni. Vanræksla á aðalskoðun kostar 8 þúsund
og er vanræksla á endurskoðun hálfdrættingur þess. Tuttugu og
þrír höfðu vanrækt aðalskoðunarskylduna og 14 endurskoðun,
samtals útgjöld að upphæð kr. 240 þúsund.
Stefnir í 100 ölvunarakstra 1999
Fjórir ökumenn voru í síðustu viku kærðir vegna meintrar ölv-
unar við akstur af lögreglunni í Keflavík. Virðast Suðumesja-
menn stefna að því að ná hefðbundinna þriggja stafa tölu í þess-
um efnum á árinu.
Tuttugu stykki í ratsjána
Tuttugu ökumenn lentu í klóm lögreglumanna vegna of hraðs
aksturs í vikunni sem leið. Föstudagskvöldið 14. maí kl. 20:30
var rúmlega þrítugur ökumaður stöðvaður á 115 km/klst hraða á
Reykjanesbraut við Vogastapa. Til að bæta gráu ofan á svart
reyndist kauði lykta af áfengi og var í kjölfariði kærður fyrir
meintan ölvunarakstur.
Sandgerðisbær
Húsnæði
Lausar eru til umsóknar tvær íbúdir.
Ibúdirnar eru 4ja herbergja,
117m2 í fjórbýlishúsi.
Umsóknir berist húsnædisnefnd
fyrir 27. maí 1999.
Nánari upplýsingar eru
veittar í síma 423 7555
Húsnæðisnefnd Sandgerðisbæjar
svart og sykurlaust
Iíagkaup í „nýja“ miðbæinn
Hagkaup hefur sýnt „nýja“ miðbæ
Keflavíkur áhuga en eins og sagt var frá í
Víkurfréttum nýlega kynnti Bjarni
Marteinsson, arkitekt hugmynd sfna að
nýjum stærri miðbæ með yfirbyggðri
göngugötu og auknu verslunarrými.
1 hugmyndum Bjarna er gert ráð fyrir
stóruni aðila á sviði matvöruverslunar.
Hagkaup hefur lengi lýst yfir áhuga sínum á
að byggja í Reykjanesbæ, hefur m.a. sótt unt
byggingarleyfi á sömu lóð og Samkaup...
í hund og kött í Grindavík
Það er óhætt að segja að umræður í bæjar-
ráði Grindavíkur hafi farið í hund og kött í
síðustu viku. Fyrst fór fram uniræða um
kattahald og var henni vísað til síðari
umræðu í bæjarstjórn. Að því loknu var
tekin til umræðu hækkun á hundaleyfis-
gjaldi. Ráðið samþykkti að vísa til
bæjarstjómar 20% hækkun á hundaleyfis-
gjaldi..
Enn einn íslandsmeistaratitillinn
Böðvar Jónsson, bæjarfulltrúi (D) sagði á
bæjarstjómarfundi að hann hefði séð leik-
sýninguna Stæltir stóðhestar á stóra sviði
Þjóðleikhússins. Sýningin hefði gengið
mjög vel og hlotið frábærar viðtökur hjá
tæplega 800 áhorfendum. í lok hennar risu
áhorfendur úr sætum og liylltu leikarana.
Böðvar sagðist hafa fyllst ntiklu stolti og
vildi koma á framfæri hamingjuóskum og
Kjartan Már Kjartansson (B) bætti um betur
og sagði að þarna hefði Reykjanesbær
eignast enn einn íslandsmeistarann því
félagið hefði verið valið úr stómm liópi leik-
félaga til að sýna á stóra sviðinu...
Skilmerkilegar fundargeröir?
Lesning fundargerða hinna ýmsu nefnda og
ráða sveitarfélaganna á Suðumesja er kaffi-
drykkjuhvetjandi svo ekki sé meira sagt.
VF-menn reyna eftir mætti að lesa úr mis-
munandi vel frarn settum fundargerðum og
hafa þaðan fréttir sem áhrif hafa á ibúa Suð-
urnesja. Framkvæmda- og tækniráðs
Reykjanesbæjar átti fund þann 4. maí sl. Á
dagskrá vom tvö mál, (l)Innra starf ráðsins
og (2) önnur mál. Fréttakræsingar fundar-
gerðarinnar vom síðan, í öllu sínu veldi:
1. mál: Lögð fram gögn,
sjá fylgiskjal bls. 1-4
2. mál: Töluverðar untræður urðu
um önnur mál.
Takk fyrir Framkvæmda- og tækniráð. Gott
að fá svona skilnterkilegar upplýsingar.
1fið „hlustum" á saklaust slúður á tölvupósti pket@vf.is
Thermo Plus Europe á íslandi hf. er nýstofnað fyrirtæki sem framleiðir
kælibúnað til útflutnings á Evrópumarkað.
Framleiðslan, sem hlotið hefur alþjóðlega viðurkenningu, er byggð
á áratuga langri reynslu kanadísks fyrirtækis og er ætluð
til notkunnar í matvælaiðnaði.
Óskum eftir aó ráða í eftirtalin störf:
Rafiðnaðarmenn, jámiðnaðarmemv,
tækniteiknara
og starfsmenn í framleiðslu
Við leitum eftir dugLegu fóLki með framtíðarstarf í huga og er
tilbúið til aó taka þátt í uppbyggingu nýs fyrirtækis í Reykjanesbæ.
VinsamLegast Leggió inn á skrifstofu Víkurfrétta, upplýsingar um
menntun, starfsreynslu og fyrri störf fyrir 25. maí 1999.
Með jyrirfram þökk,
THERM0 PLUS EUR0PE Á ÍSLANDI HF.
Tímarit Víkurfrétta kemur í lok næstu viku!
Víkurfréttir
7