Víkurfréttir

Útgáva

Víkurfréttir - 02.09.1999, Síða 10

Víkurfréttir - 02.09.1999, Síða 10
HEILSUHORN VIKURFRETTA Sykursýkifæði SYKURSÝKI er efnaskipta- sjúkdómur sem stafar af skorti af insúlíni. Til eru tvær teg- undir af sykursýki: Insúlínháð sykursýki og insúlínóháð syk- ursýki. Mjög algengt er að sjúklingar sem greinast með insúl- ínóháða sykursýki séu of þungir og þurfa þeir að léttast. Þá má styðjast við megrunar- fæði 1000-1500 kcal þar til kjörþyngd er náð. Oftast kem- ur insúlínháð sykursýki fram á unga aldri, þá þurfa sjúklingar að sprauta sig með insúlíni daglega, en sjúklingar með insúlínóháða sykursýki þurfa yfirleitt ekki slíkrar með- ferðar við. Fjöldi stórra og merkra tilrauna hefur sýnt að regluleg lík- amsþjálfun getur dregið úr líkum á sykursýki meðal aldr- aðra en þeir eru í dag stærsti áhættuhópurinn. Offita, rýrir vöðvar, mjög fituríkt og trefjasnautt fæði eru helstu ástæður þess að sykursýki skýtur upp kollinu. Allir sykur- sjúkir þuifa rétt mataræði, þ.e. sykursýkifæði. Æskilegt er að styðjast við fæðuflokkana , borða fitulitlar afúrðir, sleppa sykri og sætri matvöru og borða trefjaríka fæðu. Þuifi að sykra mat skal nota gervisykur sem ekki gefur orku svo sem sakkarín eða Nutra Sweet. Ýmsar matvörur em framleiddar sérstaklega fyrir sykursjúka og má nefna sultu, marmelaði, saft, gosdrykki og sælgæti. Bananakaka 1 7/2 bolli heilliveiti 7/2 bolli hveitiklíS 3 tsk. Ivftiduft 75g olía 2 stúri.r velþroskaðir bananar 3 egg 7/2 bolli vatn 1 msk.fljótandi genúsykur Aðferð: Setjið þurrefni og fititna í skál. Stappið banana og bœtið þeim út í ásamt eggjttm, scetuefni og vatni. Hrœrið saniati í hrœrivél. Hellið deiginu í sniurt, hveitistráð, kringlótt mót. Bakið við 160 gráður Celsíus í 35 mín. Geymið kök- ttna í kœliskáp. t Astkær móðir okkar, tengdamóðir og amma. Katrín Kristjánsdóttir Vallarbraut 2, Njarðvík áður Hringbraut 52, Keflavík. verður jarðsungin frá Keflavíkurkirkju, föstudaginn 3. september kl. 14.00. Blóm vinsamlegast afþökkuð en þeir sem vildu minnast hennar er bent á Rannsóknarsjóð Gigtarfélags Islands Björn E. Kjartansson, Jóhanna Yong, Alan Yong, Katrín Farren, William Farren, barnabörn og aðrir vandamenn. Góður bær betri -opiö bréf til bæjarstjórnar- Orð eru til alls fyrst. Það sannaðist þegar bæjar- yfirvöld í Reykjanesbæ ákváðu að fara af stað nieð forvarnarátak til þess að bæta bæjarbraginn. Það eru rúmlega tvö ár síðan átakinu var hleypt úr vör. Það er ekki annað að sjá en orð hafi mik- inn mátt og þau geti líka tekið á sig lögun. Fyrst er að láta sig dreyma um eitthvað, síðan að færa drauminn í orð og þá er ekkert annað eftir en að sjá hvernig draumurinn rætist. Einhverjir fengu þessa hug- mynd og ræddu málin. Þeir hefðu getað kæft hugmyndina f fæðingu, bara vegna þess að það voru ekki aðrir bæir með svona átak í gangi. Auðvitað vom aðilar, sem trúðu ekki á að átakinu tækist að hafa áhrif á hugarfar bæjarbúa og vekja þá til umhugsunar. Það eru alltaf einhverjir, sem trúa aldrei á góða hluti. Sem betur fer þá fengu bjartsýnu raddirnar að hljóma í bænum og átakið leit dagsins ljós og fékk yfirskrift- ina; REYKJANESBÆR Á RÉTTU RÓLI. 1 dag kannast allir bæjarbúar við átakið. Fólk finnur hvemig það hefur aukið áhuga almenn- ings á því að bæta umhverfi sitt, bæði heima hjá sér og í bæjarfé- laginu. Fegrun bæjarins hefur tekist allvel og gamli bærinn er núna fegurri en nokkru sinni fyrr. Hinar ýmsu nefndir hafa verið stofnaðar, sem snerta börnin okkar, eldra fólkið, menningarlíftð o.fl. o.fl. Unnið hefur verið markvisst með ung- linga í ýmis konar forvamar- starfi. Fræðilegir fyrirlestrar 50 ára. Þann 5. september n.k. verður Þóra Þórhallsdóttir 50 ára. Hún og eiginmaður hennar taka á móti gestum í Veitingahúsinu Jenný við Bláa Lónið laugardaginn 4. september eftir kl. 20 Basar á laugardaginn Fjáröfltinamefnd Kvenfélags Ketlavíkur stendur fyrir basar í Iðnsveinahúsinu að Tjamar- götu 7 laugardaginn 4. sept- enibermilli kl. 13-17. hafa verið haldnir. Stórátak í skólamálum kemur til fram- kvæmda nú f haust. Kirkjan hefur einnig komið með þá ný- breytni að bjóða upp á kyrrðar- og bænastundir á fimmtudög- um, fræðsluerindi um fjölskyld- una og verið með Alfa nám- skeið. Það er svo ótalmargt jákvætt sem gerst hefur sem sýnir það og sannar að átakið var þarft. Það hefur vakið marga til þess að liafa ákveðnari skoðanir á því, að það er í valdi bæjarbúa að hafa áhrif á þróun bæjarlífs- ins. Við finnum að góðir hlutir eru að gerast út um allan bæ. Átakið hefur haft þau áhrif á foreldra að þeir vilja hafa meira um uppeldi barna sinna að segja. Þeir samræma betur úti- vistarreglur barnanna og hafa meiri aga. Foreldraröltið er gott dærni um það. Lögreglan hefur verið með stórátak í eftirliti með útivistartímum bamanna í bæn- um. Sumir foreldrar hvetja bömin markvisst til íþróttaiðk- ana og leyfa þeim að taka þátt í alls konar uppbyggjandi starfi. Margir foreldrar em óþreytandi í forvamarstarfinu. Það hafa verið umræður um að auka þátttöku stúlkna í íþrótta- starfmu hér í bæ. Það hafa lfka farið fram umræður um það hvers vegna stúlkurnar fara sjaldnar í framhaldsnám og hafi lakari sjálfsmynd en stúlkur annars staðar á landinu. Ýmsir framámenn í bæjarstjóm, sem duglegir eru að skrifa í bæjar- blöðin, hafa bent á nauðsyn þess að hvetja stúlkumar nieira. Þeir benda á að skapa þurfi fleiri valkosti fyrir þær til þess að vekja áhuga þeirra, t.d. á íþróttum. Þegar gott fyrirtæki er rekið þá er stefna þess skýr. Skýr stefhu- mótun er allt sem þaif til þess að átakið í bænum okkar nái að blómstra. Bæjaryfirvöld senda almenningi skýr skilaboð með þessu frábæra átaki að góður bær verði betri. Unnið er að því á öllum vígstöðvum og í mörg- um nefndum. Við erum bjartsýn á að margt eigi eftir að breytast til hins betra á næstu mánuðum. Við getum öll verið stolt af bænum okkar og stefriu bæjaryfirvalda í |iessum efnum. Með þessu átaki geta bömin okkar upplifað ör- uggt umhverfi og notið þess að alast hér upp. Við treystum því að góðu öflin ráði hér ríkjum. Hér fær engin vafasöm starf- semi að festa rætur. Það er hugsað til framtíðar á öllum sviðum. Leiðarljósið er þess vegna bjart. Gott og fjölbreytt heilbrigt mannlíf bíður barna okkar. Með vinsemd og virðingu, Björgvirt Skatphéðinsson, Einar Guðberg, Elín M. Hjelm. Frið- jón Einarsson, Gréta Lind Arnadóttir, Guðlaug H. Hall- dórsdóttir, Guðrún Olafsdóttir, Hafrún Kristinsdóttir, Hetga Margrét Guðmuhdsdóttir, Helgi Guðleifsson, Ltntfey G. Jóhann- esdóttir, Jón Olafur Arnttson, Ólttfía Ólafsdóttir, Ólöf H. Gunnarsdóttir, Marta Eiríks- dóttir, Sigttrþór Stefánsson og Skúli Agústsson. Ungur listaniaður, Júlíus Saniúelsson, opnar myndlistar- sýningu í sal Mynd- listarfélagsins, Svarta pakkhúsinu, laugardag- inn 4. september. Á sýningunni eru XX verk og eru þau flest til sölu. Sýningin er opin uni helgar frá kl. 14-20 en virka daga kl. 18-22. Sýningin verður opin til 19. september. 10 Víkurfréttir

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.