Víkurfréttir - 02.09.1999, Síða 23
STEINÞÓR
í TOPPFORMI
Steinþór Geirdal Jóhannsson
er 18 ára Keflvíkingur sem
hefur sýnt afburðaárangur á
keilumótunt undanfama mán-
uði. 1 apnl sl. varð hann Norð-
urlandameistari í unglinga-
flokki, hann var valinn keilari
ársins 1999 og náði bikar-
meistaratitlinum með liði
sínu, Liða. Steinþór á þrjú ís-
landsmet í unglingaflokki í
einum leik og litlu munaði að
hann jafnaði heimsmetið sem
er 300 stig en hann náði 298
stigum. Hann setti íslandsmet
í fimm leikjum með 1146 stig-
um og í sex leikjum með 1347
stigum. Steinþór hefur ekki
látið staðar numið við meta-
söfnun því hann endaði með
hæsta meðaltal á sumarmeist-
aramóti í tvímenningi, eða
201,7 stig. „I nóvember fer ég
með karlalandsliðinu í keilu á
heimsmeistaramót í Samein-
uðu arabísku furstadæmunu.
Það verður gaman því þetta er
staður sem maður fer að öllu
jöfnu ekki til.” Ertu á leið í at-
vinnumennskuna? „Nei, ætli
maður haldi þessu áhugamáli
ekki innan ákveðinna marka.
Ég er bara að hafa gaman af
þessu”, sagði þessi ungi af-
reksmaður að lokum.
Innanbæjareinvígi
í Keflavík í kvöld
Njarðvíkingar lögðu Grindvík-
inga létt 91-69 í fyrstu umferð
Reykjanesmótsins og Keflvík-
ingar Hauka 91-67. Hinn
bandaríski leikmaður Njarðvík-
inga, Pemell Perry, stimplaði
sig verulega vel inn eftir slæ-
lega frammistöðu í nýafstöðnu
hraðmóti Vals og skoraði 37
stig, tók 20 fráköst og varði 5
skot . Leikurinn í kvöld hefst
kl. 20.
Reykjanesmótið í körfuknatt-
leik heldur áfrarn í kvöld með
leik leik Keflavíkur og Njarð-
víkur á sunnubrautinni kl. 20.
Dagskrá Reykjanesmótsins:
Sunnudaginn 5. ágúst
Keflavík - Grindavík kl. 20
Haukar - Njarðvík kl. 20
Þriðjudaginn 7. ágúst
Njarðvík - Keflavík kl. 20
Fimmtudaginn 9. ágúst
Haukar - Keflavík kl. 20
Njarövík - Grindavík kl. 20
Sunnudaginn 12. ágúst
Grindavík - Keflavík kl. 20
Njarðvík - Haukar kl. 20
Fimmtudaginn 16. ágúst
Grindavík - Haukar kl. 20
Sunnudaginn 19. ágúst
Haukar - Grindavík kl. 20
Grindvíkingar
hraðmótsmeistarar
Árlegu hraðmóti Valsmanna í körfuknattleik lauk síðastliðinn
sunnudag með 50-48 sigri Grindvíkinga á Keflvíkingum úr úrslita-
leik mótsins. Mótið þótti ekki af háum gæðaflokki og mörg úrvals-
deildarliðanna í feitara lagi. Maður mótsins var öðmm fremur
bandaríkjamaður Grindvíkinga Randy Bolden sem sallaði 29 stig-
um á Keflvíkinga í úrslitaleiknum.
Sérferð á Evrópuleikinn
Ferðaskrifstofan Úrval-Útsýn
hyggst bjóða upp á ferðapakka
til London vegna leiks Reykja-
nesbæjar (IRB) og Adidas
Greater London Leopards í
undankeppni Evrópukeppni fé-
lagsliða 21. september. Boðið er
upp á flug og gistingu á mjög
góðum kjömm frá 18.-22. sept-
ember en einnig geta menn
flogið út mánudaginn 20. Leik-
urinn fer fram í London Arena í
Limeharbour og geta menn
nálgast upplýsingar um að-
göngumiða hjá Úrvali-Útsýn.
STARFSFÓLK STUDEO HULDU
Starfsfólk óskast!
Studeo Huldu óskar eftir starfsfólki á
aldrinum 20-40 ára sem getur
bytjað strax. Einnig óskum við eftir
mjög bamgóðri manneskju til að gæta
barnanna i barnagæslunni, þarf að vera
þolinmóð og hugmyndarík. Áhugasamir
vinsamlegast hafi samband eins fljótt
og hægt er í sima
421-6303 rnilli kl. 07-12.
LÍKAMSRÆKTARSTÖÐIN
Hafnargötu 23 • Keflavík • sími 421 6303
Hópa og fyrirtækjakeppni
Utanhúss knattspyrnumót
Knattspyrnudeildar Keflavíkur
Sunnudaginn 5. september að Iðavöllum er fyrirhugað
að halda knattspyrnumót þar sem spilað verður í
7 manna liðum á hálfan völl í 2x15 mínútur á lítil mörk.
Þátttökugjald er kr. 15.000.- og skal greiðast fyrir keppni.
Leikmenn mfl. í efstu tveimur deildum er
ekki leyfilegt að taka þátt.
Skráning er í síma 421 5388 fyrir 3. september.
ALLTAF í BOLTANUM?
REYKJANESMÓT - KÖRFUBOLTI - ÍÞRÓTTAHÚS KEFLAVÍKUR
Keflavík - Njaróvík Saltver
fimmtudaginn 2. september kl. 20.00 útgeó ■ rækjuvinnsla
Víkurfréttir
23