Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 21.12.1999, Page 20

Víkurfréttir - 21.12.1999, Page 20
[ SBffir Ftíðrík Ftíðríkssan um Friðrik Friðriksson er ungur leikari úr Njarðvíkunum. Hann úskrif- aðist úr Leiklistarskóla Islands 1998 og hefur haft nóg að gera síðan. Hann gerði garðinn frægan á sviöi Borgarleikhússins sem Pétur pan en hann hefur einnig fengist við fleiri stór hlutverk og hlotið lof fyrir m.a. aðalhlutverkið í leikritinu Vorið vaknar og stór hlutverk í Ofanljósi og Geimskipið Hnetan. Frikki er í sambúð með Maríu Rut, sem er Keflvíkingur. Þau kynntust þegar þau léku ólánsama elskendur í leikriti sem Vox Arena, leikfélag FS, setti upp fyrir nokkrum árum. Nonni-sprengja Þegar blaðamaður hitti Frikka var hann á leið í sjónvarpsupp- töku á þættinu Nonni-sprengja á Skjá 1. „Þetta er í annað sinn sem ég leik í þessum þætti. Við fáum fullklárað handrit og ég mæti hálftíma fyrir útsendingu í smink. Þátturinn er sendur út í beinni útsendingu og það er margt skondið sem getur gerst. Síðast kom hóp- ur til okkar frá Slátur- p félagi Suðurlands. Þau mættu allt of seint og voru alveg á perunni. Skyndilega gekk einn áhorfandinn að Gunnari Helga, stjómanda þáttar- ins, og hvíslaði beint í míkrafóninn: „Hvar á ég að sitja?“ Þetta heyrðist náttúrulega í útsendingunni. Ahorfendur köstuðu líka alls konar dóti inná sviðið og voru með köll og læti. Við reyndum að halda okkur við handritið á meðan, en þetta var mjög gaman“, segir Frikki og hlær af öllu saman. Líkaminn er mitt atvinnutæki Frikki er ótrúlega lipur á svið- inu og hann virðist ekki hafa neitt fyrir þessu. Hver er gald- urinn? „Það hefur fylgt mér alla æfi að vera fýsískur, þ.e. að geta hoppað og stokkið og látið öllum illum látum án mik- illar fyrirhafnar. Hver leikari ber ábyrgð á sjálfum sér og þar sem líkaminn og röddin eru mitt atvinnutæki þá verð ég að halda mér í Jrokkalegu fomii. Leikarar Borgarleikhússins fara þrisvar í viku í leikfimi til Astrósar Gunnarsdóttur dans- ara og svo emm við í kór. Ég er líka í tímum hjá Sverri Guð- jónssyni, kontratenór, og hann kennir okkur Alexandertækni. Það er sérstök tækni senr hugs- uð er fyrir leikara og tónlistar- menn. Þá er okkur kennt að rétta úr líkamanum og beita honunt rétt og okkur er líka kennd raddbeiting." k - Djöflarnir Borgarleikhúsið er að fara að setja upp leikritið Djöflarnir eftir Dostojevskí í janúar og Frikki fer þar nreð hlutverk ill- mennisins Pjotr Verkhovenskí. Leikstjórnin er töluvert öðru- vísi en hann á að venjast því rússneskur leikstjóri. Alexei Borodin, hefur verið fenginn til að setja verkið upp. „Hann er aðalleikstjórinn í stóru leikhúsi í Moskvu. Hann talar mjög litla ensku og er alltaf með túlk með sér. Að vinna undir hans stjóm er mikill skóli fyrir okk- ur. Hann er nrjög vel undirbú- inn og vinnur þetta mjög ná- kvæmlega. Við erum t.d. búin að sitja í mánuð við borð og lesa og stúdera persónurnar. Hann ætlast til að við þekkjum persónumar út í gegn og leik- um þær ekki heldur verðum." Að verða önnur persóna Hvemig er að verða einhver annar? „Þegar það tekst þá er það frábært en stundum er ég ekki nógu vel undirbúin. Ef maður yrði 100% einhver önn- ur persóna á sviði þá myndi maður kallast geðveikur. Ég held að allir leikarar séu e.t.v. pínu- lítið geðveikir. Hluti af þessu leikaranámi er að losa um hömlur og það fólk sem fer í þessa stétt er að þessu því það vill losa urn og gera eitthvað skrítið. Það er einmitt það góða við að vinna í leik- húsi að þar er svo mikið af skemmtilegu fólki.“ Myrðir af nauðsyn Frikki er góðlegur drengur og nraður veltir fyrir sér hvemig hann fari að því að verða hrein- ræktað illmenni á sviðinu. „Þegar maður leikur aðra per- sónu þá tekur maður meirihlut- ann frá sjálfum sér og byggir þá á eigin reynslu. Ég held að allt venjulegt fólk réttlæti allar sínar gerðir. Þegar ég leik vonda kalla reyni ég að réttlæta gerðir hans. Ég geri bara það sem ég geri af nauðsyn því það er ekki annað hægt í minni stöðu. Þar af leiðandi drep ég aðra af þeirri einföldu ástæðu að þeir þurfa að deyja. Það er voðalega erfitt að leika persónu sem gerir eitthvað af sér en er alltaf að dæma sjálfan sig. Það gengur ekki upp.“ Bannað að vera veikur Frikki segist ekki eiga erfitt með að koma sér út úr hlut- verki og honum líði bara ósköp venjulega eftir sýningar. Hann segist þó hafa verið mjög þreyttur eftir sýningar á Grease en þá þurfti hann að dansa og syngja á sviði í marga klukku- tíma á dag., J>að er reyndar al- gjört helvíti að vera á sviði þegar maður er veikur. Það er eini ókosturinn við þessa vinnu. Ég get ekki hringt inn og sagt að ég sé veikur því það em 500 manns sem bíða. Leik- ari verður að vera algjörlega ófær um að tala og margbrot- inn til að fá veikindafrí." Byrjaði að svitna og skjálfa Það hlýtur að vera martröð hvers leikara að gleyma hvað hanna eigi að segja á sviðinu og Frikki viðurkennir að það geti verið óþægilegt. „Stund- um kemur fát á mig og ég reyni þá að spinna einhvem texta. Ég hef sem betur fer aldrei lent illa í því en í Vorið vaknar lenti ég í heldur óþægi- legri uppákomu. Ég var á svið- inu ásamt Jóhanni G. og við vorum að spjalla saman. Svo átti Þórhallur Gunnarsson að koma á sviðið og koma inní okkar samræður. Þórhallur kom ekki inn á réttum tíma og Jói hélt bara áfram að bulla eitthvað. Hann lenti í heilmikl- um vandræðum með að búa til einhvem texta. Ég byrjaði að svitna og skjálfa því ég var viss um að hann myndi senda bolt- ann yfir á mig. Ég heyrði nefnilega einu sinni sögu af Bessa Bjarna þegar hann gleymdi því sem hann átti að segja á ein- h v e r r i sýningu. t @ M i g minn- ir að hann h af i þ á bent á X2&|p5r LÁ' WRmsm, fe í. h'r tf* A

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.