Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 21.12.1999, Blaðsíða 27

Víkurfréttir - 21.12.1999, Blaðsíða 27
hún segj sé það sem ég var að hugsa. Ég held að skiptinemar finni alltaf bestu vini sína í hvor öðmm. Enda erum við að uppiifa sömu hlutina. Ég veit að ég á virkilega eftir að njóta þess að vera héma þegar árið er hálfnað. Þá veit ég að ég get þetta. Einhvem vegin er til- hugsunin um að telja vikumar niður en ekki upp, betri. Svo ég vitni nú í Emmu vinkonu mína frá Svíþjóð, „Ég er ekki tilbúin til að fara heim strax, en ég vil að þetta ár líði hratt og að ég skemmti mér alveg rosalega vel.“ íslandið mitt Fólkið hérna veit ekki beint mikið um Island. Flest allir spyrja þó hvort ísland sé ekki grænt og ís á Grænlandi. Allir eru rosalega áhugasamir um land og þjóð. Ég er búin að halda 3 fyrirlestra um landið og þeir munu verða fleiri. Á fimm mánuðum er ég búin að hitta einn mann sem hefur komið til Islands. Ég reyni að nýta hvert tækifæri sem gefst til að segja fólki frá litla fall- ega landinu mínu. Og ef allir sem ég er búin að bjóða til Islands koma, er Háteigur 20 orðið eitt vinsælasta hótel landsins. Tímin líður hraðar með hverjum degi. Ég hefði sko ekki viljað missa af þessu tækifæri. Ég er virki- lega að njóta þess. Ég á erfitt með að trúa að nú þegar sé ég búin að vera héma í 5 mánuði. Ég veit það er margt sem gerist á einu ári í lífi allra heima. En ég veit líka að ég á eftir að eiga það líf til æviloka. Þetta er bara gott og langt sumarfrí frá öllu og öllum. Þetta ár er eitt af 90 sem ég vonast til að lifa. Þetta er ekkert til að örvænta yfir. Eitt kom mér þó að góðum notum, Pollýanna. Fyrir ykkur sem hafa ekki lesið um hana Pollýönnu þá eruð þið að missa af miklu. Pollýanna er hetja og með hennar lífsreglu, sem er, „allir hlutir hafa sína góðu hliðar“, hafa þessir 5 mánuðir verið frábærir, skemmtilegir og lærdómsríkir. Með jákvæðni skal líf byggja. Þúsund þakkir í gærkvöldi spurði einn af meðlimum Rótarýklúbbsins mig hvers vegna ég væri alltaf svona glöð. Vitið þið hverju ég svaraði, „vegna þess að ég veit að ég er elskuð og ég elska.“ Elsku mamma og pabbi, þúsund þakkir fyrir að hafa gert þetta ár mögulegt. Þetta er ómetanleg lífsreynsla sem ég mun búa að til æviloka. Elsku fjölskyldan mín, mamma, pabbi, Gunni, Steinbi og Gugga, ég sakna ykkar ýkt mikið. Ég vona að þið venjist því aldrei að ég sé í burtu. Þið emð það mikilvægasta sem ég á og ég vil vera 1/6 af fjölskyldunni. Þið eruð besta fjölskylda sem ég þekki. Til allrar fjölskyldu minnar og vina vil ég senda jólakveðjur og óskir um farsælt komandi ár. Einnig vill ég koma á framfæri þökkum til meðlima Rótarý- klúbbs Keflavikur. Við sjáumst svo gegnum glerið á Flugstöð Leifs Eiríkssonar í júní 2000. Brosandi held ég af stað í leit að fleiri ævintýrum. Ljósbrá Logadóttir. Landsbankinn og íslandspostur í samstarf í Sandgerði -gjöf til æskulýðsmiðstöðvarinnar í Sandgerði í tilefni dagsins Landsbankinn og íslands- póstur hafa liafió samstarf í Sandgerði. Saiustarfió geng- ur út á sainnýtingn af- greiðslubúsiueðis. Húsnæði Islandspósts að Snðurgiitu 2- 4 hefur verið endurbætt til að rúma starfssenii beggja fyrirtækja. Þegar fram líða stundir og lög heimila imm Landsbankinn ttika yllr starl’semi Islandspósts á slaðnum sem verklahi. Með |iessu hef’iir starlsemi beggja fyriiiækja verið Iryggð á slaðnum. Samsiarf Landsbankans og Is- landspósls verður með þeim hælti að öll almenn banka- þjómisla og póstþjónusla verða á einum og sama stað. Landsbankinn og Islandspóst- ur vilja leggja áherslu á að enginn skerðing verður á þjón- ustu til viðskiptavina Lands- bankans og Islaiulspósts. 1 tilefni opiunuirinnar gál’u Landsbankinn og Islandspósi- tir æskulýðsmiðslöðinni Skýjaborg veglegtt ELITE 40K hátalara að verðmæti 130.000 kr. I lálalararnir munu koma í góðar þarfir, en á undanlorn- um árum hefur starfsemi æskulýðsmiðslöðvarinnar ank- ist jaliit og þétl. Forstöðumað- u r æskulýðsmiðstöðvarimuir veitti hálölurunum viðtöku. Hér bý ég! Lítið og hlýlegt gult hús með fallegum garði. Tónlistarfólk á Suðurnesjum hefur haft I nógu að snúast nú I jólamánuðinum og tónleikar hafa verið haldnir víða. Ljósmyndari blaðsins smellti af þessum ungu fiðluleikurum sem stunda Suzuki-fiðlunám við Tónlistarskóla Reykjanessbæjar. Tónleikarnir voru haldnir á sal Heiðarskóla.

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.