Víkurfréttir

Issue

Víkurfréttir - 11.05.2000, Page 15

Víkurfréttir - 11.05.2000, Page 15
Lionsklúbburinn Æsa í Njarðvík og Lionsklúbbur Njarðvíkur, færðu nemend- um 8. bekkjar Njarðvíkur- skóla, stuttermaboli að gjöf sl. þriðjudag. Bolirnir eru með áletruninni „Víma er gríma“ en við afhendinguna brýndu lionskonur fyrir krökkunum að láta öll ffkni- efni eiga sig. □ i-wm ~mmm 4.5.2000+0100 2 ILOVEYOU D Imbhb ■ a B'>æae 4.5.2000 +0000 2 ILOVEYOU D 4.5.2000 +0000 2 ILOVEYOU D fnfi *fi in 4 .5.2000+0000 2 ILOVEYOU D » 0 4.5.2000 +0000 2 ILOVEYOU D i 4.5.2000+0000 2 ILOVEYOU D Í mÍm a — 2 4.5.2000 +0000 2 ILOVEYOU D UIOH 3 4 .5.2000 +0000 2 ILOVEYOU D 4 4 .5.2000 +0000 2 ILOVEYOU D ■ 5 4.5.2000+0000 2 ILOVEYOU D hk msmmm: t b 4.5.2000 +0000 2 ILOVEYOU O ubb# a smmm 7 4.5.2000 +0000 2 ILOVEYOU D 8 4 .5.2000 +0000 2 ILOVEYOU D ? m ■ JH«Pff s 9 4.5.2000 +0000 2 ILOVEYOU ' i ■ 1 - 4 5 ?nnn +f¥inn 2 n nvFYfu i Ástarormurinn kíkti í Bláa lónið Nýr tölvuormur er nú í hraðri útbreiðslu um allan heim. Ormurinn kom fram fimmtu- daginn 4. maí og hefur þann eiginleika að dreifa sér leiftur- hratt gegnum tölvupóstforritið Outlook. Hér er um að ræða „Visual Basic Script“ orm sem gengur undir nafninu „I- LOVE-YOU". Fólki er bent á að opna ekki tölvupóst með yf- irskriftinni „I LOVE YOU“, heldur eyða honum strax. Vírusinn getur eyðilagt tónlist- arskrár og myndaskrár ásamt því að valda ýmsum öðrum óskunda. Ef Microsoft Outlook eða Outlook Express er notað, er hætta á að vírusinn sendi sjálfan sig á alla sem eru í net- fangaskrá viðkomandi tölvu. Komin eru fram ný afbrigði af „ástarorminum“ ILOVEYOU, en þau heita Joke, IMISSYOU og „I miss you“. Tölvukerfi Bláa lónsins var meðal kerfa sem sýktust af vírusnum, en skv. fréttum Stöðv- ar 2 urðu um 80% fyrirtækja á Islandi sem urðu fyrir barðinu á honum. Bjöm Ragnarsson, fjár- málastjóri Bláa lónsins sagði að vírusinn hefði sloppið inn fyrir vírusvöm kerfisins sl. fimmtu- dagsmorgun. „Þetta er nýr víms og vírusvamir hafa því ekki enn verið búnar til fyrir hann. Einn starfsmanna okkar setti vímsinn af stað. Hann er búinn að eyða öllum skrám sem innihalda myndir, svokölluðum jpg-skrám, sem vom á sameiginlegu svæði. Við vonum að tjónið verði ekki mikið en við tökum dalega afrit- anir af öllum gögnum. Við fáum mann eftir helgina til að líta á kerfið fyrir okkur og hlaða inn gögnum sem hafa tapast", sagði Bjöm og bætti við að þetta kenn- di fólki væntanlega að vera á varðbergi gagnvart slíkum víms- um í ffamtíðinni. Hvenfisháhi í Innri-Njarðvík Innri-Njarðvíkingar gera sér ýmislegt til dundurs þegar vet- ur konungur kveður og blómin fara að springa út. Síðastliðin tvö ár hafa nokkrir einstakling- ar, með stuðningi Systrafélags- ins, staðið fyrir fjölskylduhátíð í hverfmu. Arið 1998 vom þátt- takendur um 100 manns og ári síðar mættu 170 manns, sem verður að teljast afbragðs þátt- taka. I ár stendur til að halda aðra slíka hátíð, þar sem íbúar em þegar famir að spyrjast fyr- ir um hvenær næsta hátíð verð- ur. Erlingur J. Leifsson, er í undir- búningsnefnd fyrir Sögudag 2000, en það er nafnið á hátíð- inni í ár þar sem sögulegum fróðleik um Innri Njarðvík er fléttað inní dagskrána á marg- víslegan hátt. „I fyrra vorum við með ratleik, en svörin við spumingunum byggðust á sögu hverfisins. Mjög góð þátttaka var í ratleiknum og svo var endað í safnaðarheimilinu. Þangað mætti innfæddur Innri- Njarðvíkingur, sem sagði frá uppvexti sínum fyrir nokkmm áratugum. Rúsínan í pylsuend- anum var svo heimsókn íþróttaálfsins. Að lokum var grillað, sest niður og spjallað saman“, segir Erlingur en nefndin hyggst, eins og fyrr segir, endurtaka leikinn innan skamms en fara þá um annan hluta hverfisins í göngu og hengja upp spjöld á þeirri leið með fróðleiksmolum um sögu hverfisins. „Við ætlum að fá aðkeyptan skemmtikraft á há- tíðina en ekki er enn búið að ákveða hvort hún verði haldin 28. maí eða laugardaginnn 3. júní“, segir Erlingur. A síðasta ári fór undirbúnings- nefndin fram á fjárstuðning til Reykjanesbæjar vegna hátíðar- innar. Beiðninni var hafnað á þeim forsendum að hún hefði fordæmisgildi fyrir önnur hverfi f bænum. Erlingur telur að slíkt fordæmi væri bara af hinu góða og Reykjanesbær þyrfti ekki að kosta svo miklu til. „Það er alltaf verið að kvar- ta yfir því að fjölskyldan eyði of litlum tíma saman en slíkur dagur er einmitt gerður fyrir fjölskylduna. Eg tel einnig að hann auki samkennd fólks og gefi því tækifæri til að hittast og tala saman, sem það gerir annars ekki. Við vildum sjá slíkar hátíðir í öllum hverfum", segir Erlingur og hver veit, sú ósk á e.t.v. eftir að verða að veruleika. FLUGMALASTJORNIN KEFLAVIKURFLUGVELLI Tilkynning til íbúo Reykjonesbæjor Vegna framkvæmda við Ijósabúnað á aðalflugbrautinni (norður/suður) á Keflavíkurflugvelli er óhjákvæmilegt annað en að beina allri flugumferð inn á austur/vestur flugbrautina. Þetta mun hafa i för með sér aukna flugumferð yfir byggð meðan á framkvæmdum stendur. Reiknað er með að framkvæmdum Ijúki í lok ágúst nk. Flugvallarstjórinn á Keflavíkurflugvelli Björn Ingi Knútsson 15

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.