Víkurfréttir - 31.05.2000, Qupperneq 4
Garðaúðunin SPRETTUR
íéik^. c/o Sturlaugur Ólafsson
úða gegn roðamaar og óþrifum
á plöntwm. Eyði illgresi úr gras-
flötnm. Eyði gróðri úr stéttum og
inrikeyrslwm. Leiðandi þjónusta.
Upplýsingar í símum
893 7145, 699 5571 og 421 2794
Uða samdægurs ef óskað er..
Daglega á www.vf.is
Atvinna
Olís-Básinn óskar eftir starfskrafti í
afgreiðslu. Vaktavinna.
Um er að ræða fast starf.
Umsóknareyðublöð á staðnum.
Olís -Básinn
Vatnsnesvegi 16, Keflavík
í Keflavík gjafmildar
Lionessur
Lionessuklúbbur Kefla-
víkur aflientu margar
góðar gjafir fyrir
nokkru. Þær færðu Þroska-
hjálp Suðurnesja 300 þúsund
krónur til framkvæmda á
þjálfunarsundlaug og Lyng-
sel, sem er skammtímavistun
fyrir fatlaða, fékk 100 þús-
und krónur að gjöf. Marita á
Isiandi, sem eru forvarnar-
samtök, fékk einnig 100 þús-
und krónur frá lionessum.
Gísli Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Þroskahjálpar
sagði að þetta væri ekki fyrsta
sinn sem lionessur færðu þeim
góðar gjafir. „Eg vil þakka
Lionessuklúbbi Keflavíkur
kærlega fyrir höfðinglega gjöf
og hún kemur örugglega til
með að nýtast vel. Okkur þykir
gott til þess að vita að við eig-
um góða klúbba og einstakl-
inga sem hjálpa okkur við að
byggja þessa laug því enn eru
eftir 6 milljónir krónar til að
við getum lokið byggingu
hennar. Við ætlum að halda
áfram með verkið og reyna að
klára sundlaugina á þessu ári
og vonandi verður hægt að
greiða hana niður með styrkj-
um, sem við vonumst til að fá“,
sagði Gísli af þessu tilefni.
Kolbrún Marelsdóttir, forstöðu-
maður Lyngsels, sagði að pen-
ingamir færu í kaup á leikföng-
um og tækjum fyrir börnin.
„Þetta er algjör bylting fyrir
okkur hér því við fáum sjaldan
peninga til að kaupa leikföng
og tæki. Við erum mjög ánægð
með þessa góðu gjöf og viljum
senda lionessum kærar þakkir'1,
sagði Kolbrún en hún vildi líka
koma því á framfæri að þau á
Lyngseli væru að fara af stað
með tónlistarbekk og vantaði
stóra hátalara. „Ég vil biðja þá
sem eiga slíka hátalara, og viija
gefa Lyngseli þá, að hafa sam-
band við mig í síma 895-
7892“, sagði Kolbrún forstöðu-
kona að lokum.
jf,' \ . !
■ 11 i'l. ts
Eigendur Glóðarinnar, þeir Ásbjörn
Pálsson, matreiðslumaður, Bjarni Sig-
urðsson, matreiðslumeistari og Bjarni
Gunnólfsson, framleiðslumaður, tóku við rek-
stri Sólsctursins og Café Iðnó í síðustu viku.
Þeir hyggjast gera nokkrar áherslubreytingar
á rekstri staðanna.
Iðnó verður breytt í notalegt kaffihús þar sem
boðið verður upp á ódýrar veitingar, s.s. smárétti,
kökur og smurbrauð. Sérréttamatseðill, A La
Carte, verður síðan tekinn inn á haustdögum á
Sólsetrinu.
Þrátt fyrir þessar breytingar mun Glóðin halda
sínu striki, að sögn Asbjamar. Boðið er upp á
fjölbreytt hlaðborð fyrir hópa eftir pöntunum og
einnig er kominn nýr og girnilegur matseðill
með ýmsum klassískum réttum. Bömin gleymast
heldur ekki á Glóðinni en fyrir þau er sérstakur
bamamatseðill og allir krakkar fá sérstök verð-
laun eftir matinn.
4