Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 31.05.2000, Blaðsíða 8

Víkurfréttir - 31.05.2000, Blaðsíða 8
Afrakstur vetrarins sýndur Lcikskólabörn á Heiðarseli héldu skemmtilega lista- sýningu í síðustu viku. Þar sýndu þau afrakstur vetrarins og foreldrar voru með kaifisölu. Ekki er annað hægt að segja en að gestir haíi kunnað vel að meta verk litlu snillinganna. VF-mynd: Hilmar Bragi 1 iK EIGNAMIDLUN SUDURNESJA Sigurður Ragnarsson, fasteignasali-Böðvar Jónsson, sölumaður Hafnargötu 17, Keflavík - Sími 421 1700 Fax 421 1790 - Vefsíða www.es.is Efnalaug og Þvottaþjónusta Nú er rétta tækifærið komið. Góð og vel rekin starfsemi sem hentar fyrir 3 starfsmenn. Fyrirtækið er búið nýjum og vönduðum tækjum og er með mörg fyrirtæki í föstum viðskiptum. Starfsemin felur í sér m.a. hreinsun á fatnaði, leigu á dúkum og gólfmottum ofl. Nánari upplýsingar á skrifstofu. Málaraþjónustan Getum bætt viö okkur inniverkefnum í sumar. Upplýsingar gefa Carl, sími 896 5801 og Einar, sími 899 8004 Vilhjálmur Þorleifsson við sóðaskapinn í beðinu á Holtinu. VF-mynd: Silja Dögg Sóðap á ferð Vélarhlutar, trébretti og annað rusl var meðal þess sem Vil- hjálmur Þorleifsson, bæjar- starfsmaður, fann I blóma- beðinu í Holtinu við Faxa- braut í síðustu viku. „Eg er I____________________ hneykslaður á þessum sóðaskap. Það munar engu fyrir fólk að trylla þessu upp í Sorpeyðingastöð. Ég trúi ekki að börn hafi verið að verki, því þetta eru þungir hlutir og mikið magn“, sagði Vilhjálmur en hann var í óðaönn við að hreinsa upp ruslið þegar blaðamann Víkurfrétta bar að garði. Nemendasýningar í Svar t a- Pakkhúsinu Tvær sýningar opna í Svarta Pakk- húsinu, Hafnargötu 2 í Reykjanes- bæ, á næstu dögum. Nemendur í Baðstofunni opna sýningu á efri hæð hússins á morgun, en Kristinn Már Pálmason hefur leiðbeint þeim í vetur. Opn- unartími sýningarinnar er frá kl. 17-20 á fimmtudag og föstudag og frá kl. 14-20 á laugardag og sunnudag. Þetta er árviss nem- endasýning sem hefur verið vel sótt á liðnum árum, en Baðstofan hefur verið starfrækt sl. 30 ár. Nemendur Reynis Katrínarsonar, hjá Mynd- listarfélaginu opna sýningu nk. laugardag, en hún verður opin um helgina frá kl. 14-20. Listamennimir eru á aldrinum 18-70 ára og verkin eru unnin með blýanti, pastellitum, vatnslitum, olíu og akríl. 8

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.