Víkurfréttir

Tölublað

Víkurfréttir - 31.05.2000, Blaðsíða 29

Víkurfréttir - 31.05.2000, Blaðsíða 29
Keflavík 23 úr leik 23 ára lið Keflavíkur féll úr keppni í Coca-Cola bikar karla í knattspymu, eftir að liðið tapaði fyrir 23 ára liði ÍBV sl. fimmtudagskvöld. Staðan var jöfn að loknum venjulegum Ieiktíma 2-2 og þurfti því að grípa til framlengingar. Að framlengingunni lokinni var staðan orðin 3-3 og þurfti því vítaspyrnukeppni til að ráða úrslitum um hvort liðið kæmist áfram í næstu umferð. Skemmst er frá því að segja að Eyjamenn skoruðu þrjú mörk úr vítaspyrnukepppninni en Keflvíkingar aðeins eitt. Leiknum lauk því með sigri Eyjamanna 6-4. Magnús Þorsteinsson skoraði tvö mörk fyrir Keflavík í gær, en hin tvö mörkin voru skoruð af þeim Guðmundi Steinarssyni og Haraldi Guðmundssyni. -i formi i allt sumar! Aftur á toppinn! Nýkjörin stjórn Körfuknattleikdsdeildar Keflavíkur vill leita eftir umræóu og hugmyndum um hvernig best megi tryggja aó karfan í Keflavík haldist á toppnum. Viö boöum því til skemmtilegs hádegis- fundar laugardaginn 3. júní í Heiöarskóla kl. 11.00. Vorfagnaður GS föstudaginn 2. júní í golfskálanum Fögnum golfvertíð á skemmtilegum vorfagnaði í golfskálanum í Leiru á föstudaginn 2. júní. Þriggja rétta Ijúffengur matseðill, s.s. kalkúnabringur og grillað lamb, forréttur og eftirréttur. Húsið opnað kl. 19:30. Miðaverð aðeins 2.200 kr. á mann. Eftir kvöldverð verða skemmtiatriði og dans fram eftir nóttu. Mætum öll (og tökum með okkur skemmti- lega gesti) og fögnum golfsumri. Skráning i klúbbhúsi og í símum 421-2908 og 421-4103. Vinsamlegast skráið ykkur sem fyrst, ekki seinna en á fimmtudag. Skemmtinefndin arall íKeflavík Skemmtileg mynd úr rallinu. Ein sérleiðin lá um Keflavíkurhöfn þar sem settar höfðu verið hindranir - auðvitað fiskkör. Fjöldi manns fylgdist með. Feðgarnir Rúnar Jónsson og Jón R. Ragnarsson, á Subaru Impreza, unnu sigur á fyrsta ratlmóti ársins, Suðurnesja- rallinu sem fram fór um síðustu helgi á Reykjanesi. Feðgarnir náðu forystunni snemma í rallinu, en þeir voru fyrstir eftir fyrri daginn og héldu svo forystunni allt til enda, þrátt fyrir nokkur vandræði með bílinn. Baldur Jónsson og Geir Óskar Hjartarson á Subaru Legacy urðu í öðru sæti, en í því þriðja höfnuðu þeir Hjörtur P. Jónsson og ísak Guðjóns- son á Toyota Corolla. Aðeins sautján bflar luku keppni af þeim 24 sem hófu hana, enda var keppnin geysihörð og skildu aðeins nokkrar sek- úndur á milli keppenda í lengstu sérleiðunum. Golfklúbbur Suðurnesja Lífeyrissjóðsmót styrkt af Lífeyrissjóði Suðurnesja og VÍB Golfklúbbur Suðurnesja 3. júní 2000. Mótið er opið öllum golfklúbbum á Suðurnesjum. Ræst út milli kl. 08. og 15. Punktakeppni - hámarksforgjöf 36. Mótsgjald er kr. 1.500.- innifalið er gosdrykkur og gjöf á 1. teig og kaffi/súkkulaði og samloka á 10. teig. Verðlaun verða veitt fyrir 1.-10. sæti. Allir eiga möguleika. Pantið rástíma í síma 421 4100. Golfskálinn er opinn milli kl. 10 og 22 alla daga. Tölvupóstur: gs@gs.is - Vefsíða: www.gs.is GS-GG-GSV-GSG - setjum þátttökumet 29

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.