Víkurfréttir - 31.05.2000, Síða 22
Eldið hagkvæmt því
afurðav@rð er mjög hátt
Sæbýli í Vogum er nú
óðum að stækka og um
þessar mundir stendur
yfir hlutafjárútboð hjá fyrir-
tækinu. Boðnar eru út 16
millj.kr. á nafnvirði á geng-
inu 7,5, eða 120 millj.kr. að
söluvirði. Heildarhlutafé fyr-
irtækisins eftir útboð verður
36,7 millj. kr. að nafnvirði
eða rúmar 275 millj. kr. að
markaðsvirði. Arið 1998
voru flutt út 600 kg. af
sæeyra, sem er aðal útflutn-
ingsafurð eldisstöðvarinnar,
en árið 2005 er stefnt að því
að flytja út 200 tonn. Viðræð-
ur eru nú á lokastigi við fyr-
irtæki í Kanada um að setja
þar upp eldisstöð á sæeyra
þar sem íslenski stofninn er
talinn vera mjög góður.
Ræktun á sandhverfu hefur
einnig verið stunduð hjá Sæ-
býli um nokkurt skeið með
góðum árangri. Silja Dögg
Gunnarsdóttir gerði sér ferð
út í Voga í síðustu viku og
fræddist um starfsemi fyrir-
tækisins og framtíð þess sem
virðist vera skínandi björt,
svo ekki sér meira sagt.
Borða söl og þara
Sæbýli var stofnað árið 1993 af
Asgeiri E. Guðnasyni, Agnari
Steinarssyni og Sigurgeir B.
Kristinssyni. Jón Gunnarsson
hefur verið framkvæmdastjóri
fyrirtækisins síðan 1999. „Fyrir
14 árum síðan voru sæeyru
fyrst flutt frá Kalifomíu til ís-
lands en ræktunartilraunir með
þau gengu ekki vel í fyrstu. As-
geir E. Guðnason, vann þá hjá
Hafrannsóknarstofnun og fékk
mikinn áhuga á ræktun þeirra.
Hann komst að því þau þyrftu
söl til að vaxa, en sæeyrun em
þaraætur. Fjölgunin gekk vel,
undir handleiðslu Asgeirs og
þá stofnaði hann Sæbýli ásamt
fleirum", segir Jón þegar hann
Séð inní sandhverfu
eldissalinn.
er spurður út í sögu fyrirtækis-
ins.
Tímafrekt ræktunarferli
Kjörhiti sæeyrans er 15-16
gráðu heitur sjór en sjórinn við
eldisstöðina í Vogum er mjög
hentugur þar sem hann er 11
gráðu heitur. Það þarf því ekki
að hita hann upp um margar
gráður til að sæeyrun geti vaxið
og dafnað í volgum sjó. Jón
segir að eldið hafi þróast í
gegnum árin og samhliða þvf
hafi stöðin stækkað. „Það má
eiginlega skipta núverandi
ræktunarferli í þrjú skref. Fyrst
þarf að fjölga dýrunum, en
fjölgunin fer fram í gróðurhús-
um. Dýrin em þar í 6-7 mánuði
og nærast á þömngum en þeir
þurfa mikla birtu til að vaxa.
Síðan tekur við ungviðaeldi og
eru dýrin þá flutt í annað hús
og þar ölum við þau í 1-1,5 ár.
Þá em þau flutt í „áframeldi",
eins og við köllum það, en þau
verða ekki útflutningshæf fyrr
en þau eru orðin 4-4,5 ára göm-
ul“, segir Jón og af þessu má
sjá að eldið er mikil nákvæmn-
isvinna sem tekur langan tíma.
Étin lifandi
Þrátt fyrir langt ræktunarferli
þá er eldið hagkvæmt því af-
urðaverð er mjög hátt að sögn
Jóns. „Meginhluti framleiðsl-
unnar er seldur til Japans en
minna magn til Bandaríkjanna.
Sæeyrun eru flutt út lifandi
með flugi en Japönum þykir
þau herramannsmatur og
sneiða þau niður og borða á
meðan þau eru enn lifandi",
segir Jón og það er ekki laust
við að blaðamaður finni fyrir
nettri velgju við að hlusta á lýs-
inguna, en sinn er siður í landi
hverju...
22