Víkurfréttir - 31.05.2000, Page 30
Fleirí lóðir í Gríndavík
Grindavíkurbær auglýsir lausar til umsóknar lóðir á nýju svæði
norðan Vallahverfis við Skipastíg og Árnastíg. Um erað ræða 23
lóðir fyrir einbýlishús, 12 lóðir fyrir parhús, 17 lóðir fyrir raðhús.
Lóðirnar verða afhentar í lokjúlí 2000.
Umsóknareyðublöð fást afhent á skrifstofu
byggingarfulltrúa, Víkurbraut 62 svo og úthlutunarreglur.
Vinsamlega athugið að eldri umsóknir skal endurnýja.
Umsóknum skal skila á sama stað í síðasta lagi
mánudaginn 5. júní 2000 kl. 12.
Byggingarfulltrúi.
Þú getur lesið visir.is á...
www.vf.is
daglega á Netinu!
Rýmingarsölunni
lýkur um helgina.
Enn meiri verðlækkun.
Opið laugardag 10-13.
!
SKÓBÚÐIN t\EFLAVÍK
Hafnargötu 35 - Sími 421 1230
Burtmeðóhugnaðinn
afNikkelsvæðinu
Loksinx virðast ráða-
menn vera að vakna
til aðgerða um úrbæt-
ur á Nikkelsvæðinu, I VF
þann 18. maí sl. birtast tvær
greinar varðandi þetta vand-
ræðamál, sem löngu er orðið
öllum viðkomandi til stór
skammar. Bergur Sigurðsson
mengunarvarnafulltrúi HS
tuðar enn um möguleg eitur-
efni og hugsanlega hættu af
þeim. Bergur segir m.a.:
Umræða um hvort þörf sé
frekari rannsókna þarf að
fara fram á faglegum grunni.
„Eru Iðntæknistofnun og
Háskóli íslands ekki nógu
faglegar.“ ? Skúli Þ Skúlason
vitnar til mikilla rannsókna
frá 1998 þar sem niðurstaðan
varð sú að mengun á svæð-
inu væri viðráðanleg. Það
kemur heim og saman við
allar rannsóknir, sem búið er
að vera að gera allar götur
frá 1972.
Skúli segir frá því að bæj-
arstjóm hafi nýlega borist bréf
frá utanríkisráðuneytinu, þar
sem boðið er upp á leigusamn-
ing um svæðið. Hálf þoku-
kennt verður það í hugum
margra jregar talað er um bréf
frá ráðuneyti. Við hér um slóðir
höfum slæma reynslu af slík-
um bréfum, sérstaklega minnist
ég bréfa, sem höfðu okkur að
fíflum, frá þessu sama
ráðuneyti varðandi Helgu-
víkina og annars frá heil-
brigðisráðuneytinu varðandi D-
álntuna, bæði send í tíð ráð-
herra sem litlar mætur höfðu á
hagsmunamálum okkar hér á
Suðurnesjum. Vonandi hefir
einhver, sem mark er á takandi
skrifað undir þetta bréf og
vissulega vekur það vonir
þegar hið háa ráðuneyti lætur
svo lítið að skrifa vinum sínum
hér syðra bréf.
Ekki fæ ég annað skilið en að
Skúli telji að boðið sé það gott,
að ekki standi á öðru en að
ráðamenn okkar gefi sér tíma
til þess að renna í bæinn og
ganga frá málinu.
Ekki er nú við því að búast að
allir samþykki það og strax í
næsta blaði VF þann 25. maí,
gerir Jóhann Geirdal nokkrar
athugasemdir við þetta kosta-
boð. Þær em mest um að hver
eigi að borga hreinsun svæðis-
ins, sem honum reiknast til að
muni kosta Reykjanesbæ kr. 62
milljónir eða um þriðjung af
því sem Keflavík og Njarðvík
höfðu í afgang af vatnsveitu
peningunum sem Jón Baldvin
gekk svo vasklega fram í að
útvega. En nú höfum við ekki
Jón Baldvin til jress að ganga í
málin fyrir okkur, heldur ekki
Emil Jónsson, sem sá til að
Keflavíkbæ var afhent landið á
Berginu á silfurfati.
Nei, við sitjum uppi með
Halldór Asgrímsson og vika-
pilta hans í utanríkisráðuneyt-
inu. I fljótu bragði virðist mér
að þeir ætli að láta ráðuneytið
hirða álíka lóðarleigu og
Landeigendur Njarðvíkur
innheimta af lóðum sínum.“
Aldrei hefi ég verið hrifinn af
því og enn síður af þessum
leiguskilmálum. Sjálfsagt er að
miða við landið á Berginu og
krefjast þess að Sölunefndin
fjarlægi eigur sínar, tankadótið
ofl. tafarlaust, ella láti bærinn
gera það á hennar kosnað. Hún
hefir það til sölu.
Samningum í þá veru ætti að
vera hægt að ná, ef loksins er
vilji til þess að losa okkur við
þennan óhugnað. Það var
reyndar ætlunin með samn-
ingnum um höfnina í Helgu-
vík, sem Benedikt Gröndal
hratt af stað 1979 og undirrit-
aðir voru 23. maí 1980 og
ítrekað með samþykkt Alþingis
nteð þingsályktun 21. mai
1981. Þessu verki verður að
Ijúka.
Olafur Björnsson.
30