Víkurfréttir - 22.03.2001, Qupperneq 17
Teitur Örlygsson, körfu-
boltakappinn knái,
fermdist í Njarðvík-
urkirkju árið 1981. Teitur
fullyrðir að hann hafi verið
mjög stilltur og prúður í
kirkjunni og að körfuboltinn
hafi algjörlega verið látinn
eiga sig á meðan á veislunni
stóð.
„Fermingarveislan mín var
haldin heima og mig minnir að
boðið hafi verið uppá kalt borð
og svo kafti og með því á eftir.
Eg var með glóðarauga á ferm-
ingardaginn sem ég nældi mér
í í fótbolta deginum áður, mér
og mömmu til mikils ama.“,
segir Teitur.
Að sögn Teits langaði hann
mest í „steríó græjur“ í ferm-
ingargjöf sem hann fékk.
„Steríó græjurnar eru án efa
mín eftirminnilegasta ferming-
argjöf, þær vom rosalega flott-
ar. Eg fékk líka eitthvað af
peningum sem ég hreinlega
eyddi í einhverja vitleysu.
Sumarið varð fyrir vikið mjög
skemmtilegt.“, segir Teitur og
kveðst hafa hugsað mun meira
um gjafimar en sjálfan tilgang
fermingarinnar.
Ragnar Smárason,
verslunarstjóri Hagkaups:
DVD-tækin
eru vinsæl
eir hjá Hagkaupum slá ekki slöku
við í fermingagjafasamkeppninni,
frekar en aðrir. Að sögn Kagnars
Snorrasonar, verslunarstjóra Hagkaups
í Njarðvíkum, eru hinar hefðbundnu
fermingargjafir alltaf jafn vinsælar.
„Við erum með mjög gott verð á hefð-
bundnum fermingargjöfum eins og
hljómflutningstækjum, sjónvörpum og
myndbandstækjum. Þetta seldist allt
saman mjög vel í fyrra. Það sem við
erum með nýtt eru eins konar hljóm-
tæki með sjónvarpsskermi framan á
sem hægt er að bera hvert sem er. Slíkt
tæki kostar um 15.000 kr. Það hefur ein-
nig orðið mikill kippur í sölu á DVD-
tækjum, þar sem verð á þeim hefur
lækkað mjög undanfarið.“, segir
Ragnar Snorrason.
Hvar verður ferm-
ingarveislan þín
haldin?
María Rán Ragnarsdóttir:
I samkomuhúsinu í Sandgerði
Fríða Dís Guðmundsdóttir:
Veislan mín verður í
Miðhúsum
Hildur Mekkín
Draupnisdóttir:
Hún verður í Golfskálanum
Karl Gunnarsson:
I Golfskálanum í Leiru
Stefán Valur Sigurðarson:
Hún verður haldin heima
Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is
17