Víkurfréttir - 22.03.2001, Blaðsíða 25
Rúna Reynisdóttir kaupkona:
Engir ljósa-
bekkir, bara
burstað í sér
tennurnar!
Rúna Reynisdóttir, betur
þekkt sem Rúna í
Mangó, fermdist árið
1980 í Keflavíkurkirkju.
Rúna er eigandi fyrr-
greindrar verslunar sem er
ein sú vinsælasta á Suður-
nesjum og hefur hún mikið
um það segja hvaða stefnur
fermingartískan tekur ár
hvert.
Rúna segir fermingarathöfnina
og veisluhöldin hafa verið með
svipuðu sniði þegar hún
fermdist og í dag en að til-
standið hafi verið heldur
minna. „Veislan mín var haldin
heima hjá mömmu og pabba.
Boðið var upp á kalt hlaðborð
og svo var kaffi og með á eftir.
Mig minnir að um sjötíu til
áttatíu manns hafi mætt í veisl-
una mína. Fermingarfötin mín
em mér mjög eftirminnileg en
ég var í fjólubláum kjól úr
Topphúsinu við Bankastræti og
svo fékk ég ullarkápu úr versl-
un sem hét Traffic. Eg var sko
algjör gella!“, segir Rúna og
hlær og bætir því við að Sigrún
Hauksdóttir hafi séð um hár-
greiðsluna. Hún segist jafn-
ffamt ekki muna til þess að þá
hafi prufugreiðslur tíðkast.
Rúna segir ekkert hafa verið
um það að stelpur hafr farið í
alls kyns snyrtingar eða sótt
ljósabekkina. „Það var ekki
einu sinni sett á sig smá púður
eða maskara. Það eina sem var
gert var einfaldlega að bursta í
sér tennumar!"
Það sem Rúna óskaði sér í
fermingargjöf var stórt og
mikið kasettutæki. „A þessum
tíma voru kasettutækin aðal
málið og svo voru húsgögn í
herbergið mjög vinsælar gjafir.
Eftirminnilegasta gjöfin mín er
þó úrið frá henni ömmu. Eg
fékk svolítið af peningum sem
ég lagði inn á lokaðan
vaxtareikning. Það þótti mjög
skynsamlegt en ég var svo
óheppin að árið eftir átti mynt-
breytingin sér stað svo þegar
ég ætlaði að leysa peningin út
var upphæðin orðin heldur
minni. Eg hugsaði auðvitað
mikið um gjafirnar og pen-
ingana en ég gerði mér nú samt
vel grein fyrir því út á hvað
fermingin gengi og ég sótti fer-
mingarfræðsluna af miklum
áhuga“, segir Rúna Reynis-
dóttir.
y i/ujfi
Það vteri sko að
bera i bakhafullan
lækinn að telja
allt upp,
sem við eigum til
fermíngagjafa!
Þetta
er bara örlítið
brot af þvi!
Verið velkomin!
€ STAPAFELL
HAFNARGÖTU 29 • SÍMI 421 2300
RAÐGREIÐSLUR
Wi (f3
Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is
25