Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.03.2001, Qupperneq 26

Víkurfréttir - 22.03.2001, Qupperneq 26
MAÐUR VIKUNNAR Nafn: Sverrir Vilbergsson Fædd/-ur hvar og h venær: 4. júlí 1942 á Eskifirði Atvinna: Hafnarstjóri í Grindavík Maki: Elín Þorsteinsdóttir Börn: 7 Hvernig býrð þú? í raðhúsi Hvaða bækur ertu að lesa núna? Brot úr sögu þjóðar og Einn á ísnum Hvaða mynd er á músamottunni? Engin Uppáhalds spil? Kani Uppáhaids tímarit? Fiskifréttir Uppáhalds ilmur? Góð matarlykt Uppáhaids hljóð? Þegar konan kallar matur Hræðilegasta tilfinning í heimi? Að vakna við snarpan jarð- skjálfta. Hvað er það fyrsta sem þér kemur í hug, þegar þú vaknar á morgnana? Best að koma sér á klósettið. Rússíbani, hræðilegur eða spennandi? Spennandi að sjá aðra í rússibana, en hef ekki áhuga sjálfur. Hvað hringir síminn þinn oft áður en að þú svarar? Oftast einu sinni til tvisvar. Uppáhalds matur? Hamborgarhryggur með öllu tilheyrandi. Súkkulaði eða vaniilu? Súkkulaði Finnst þér gaman að keyra hratt? Nei ég er uppúr því vax- inn, keyri oftast milli 90 og 100 Sefur þú með tuskudýr? Nei Óveður, spennandi eða hræðilegt? Mér leiðast óveður Hver var fyrsti bíilinn þinn? Chevrolet 1947 Ef þú mættir hitta hvern sem er? Það væri gaman að hitta Alex Ferguson og fá að vera með honum á bekknum einn leik. Afengur drykkur? Beily's I hvaða stjörnumerki ertu? Krabbanum Borðar þú stönglana af brokkólí? Nei Ef þú gætir unnið við hvað sem er, hvað væri það? Ég er ágætlega sáttur í því umhverfi sem ég er í og vona að ég geti lokið starfsæfinni í því. Ef þú mættir velja hárlit þinn hver væri hann? Ég hef alltaf verið dökkhærður og vildi vera það áfram. Er glasið hálf tómt eða hálf fullt? Ég hef stundum heyrt talað um hálf tómt glas, en ekki hálf fullt. Uppáhalds bíómyndir? Gamanmyndir og stnðsmyndir Notarðu fingrasetningu á lyklaborð? Ég reyni það, en það gengur upp og ofan. Hvað er undir rúminu þínu? Gólfið Uppáhalds talan þín? 4 VlKURFflÉTTAMYND: HILMAR BRAGI BÁRÐAflSON Landað á gamla mátann úr Brynjari GK 22 í Grindavík á miðvikudagskvöld í síðustu viku. Mokafli í skugga verkfalls Það fór eins og mig grunaði að eftir því sem nálgaðist verkfall sjómanna glædd- ist afli vertíðarbáta til mikilla muna og er þessi vika sú langbesta sem komið hefur á þessari vertíð. Nú er í fyrsta sinn á þessu ári hægt að tala um umtalsverðan afla hjá neta- bátum og skiluðu 36 netabátar um 1000 tonn- um í vikunni og var Þorsteinn með mestan afla 68,8 tonn“, segir Sverrir Vilbergsson hafnarstjóri í Grindavík. Fjögur togskip lönduðu um 340 tonnum og var Sturla aflahæst með 114,6 tonn. Þrír dragnótabát- ar lönduðu 90 tonnum og var Farsæll með 40,68 tonn. Handfærabátar urðu nú aðeins varir og lönduðu 23 handfærabátar 45 tonnum og var Valþór með mestan afla, 4,65 tonn. 780 tonn komu á land af 32 línubátum og var Kópur með mestan afla, 70 tonn. Um 2210 tonn af botnfiski bámst á land í vik- unni og var þó verkfall tvo þá síðustu. Loðnuafl- inn var einnig góður og var alls landað 8640 tonnum og var Oddeyrin með 2874 tonn í 4 löndunum en Vilhelm Þorsteinsson með 2627 í einni löndun. Sverrir segist vona eins og fleiri að verkfall leys- ist sem allra lyrst þar sem talsverð fiskgengd sé á miðunum, því þeir bátar sem eru að róa mok- fiska. Hlutafélag um Hitaveitu Suðurnesja Það eru nokkrir áratugir síðan ég átti aðild að því, sem vara- maður í bæjarstjóm Keflavíkur, að stofna Hitaveitu Suðumesja. Ég verð að segja að mér hefur alltaf fundist að þar hafi verið unnið einstakt happaverk og töluvert öðmvísi hafi horft við mannlífi á Suðumesjum allan þennan tíma vegna Hitaveitu Suðumesja sem hefur verið af- skaplega farsælt fyrirtæki. Nú hefur verið samþykkt á Al- þingi sem gerir ráð fyrir því að Hitaveita Suðumesja og Raf- veita Hafnarfjarðar verði sam- einaðar og stofnað hlutafélag um reksturinn. Ég hef ekkert við það að athuga. Mér finnst * E- inkí£v\’ aunaó i Auglýsingasímhm ev 421 4717 Sigríður Jóhannesdóttir alþingismaður þetta frekar hagfelld ráðstöfun miðað við það hvemig dæmið lítur út í dag. Sveitarfélögin fá með þessu góðan pening fyrir hlut í þessu félagi og það er hið besta mál. Fyrir liggur að ríkissjóður Is- lands átti áður í Hitaveitu Suð- umesja um 20%. Eftir sammn- ann mun ríkissjóður eiga um 16,7% í hinu sameinaða fyrir- tæki. Ég hef kannski ekki verið sú tindilfættasta þegar sölu ríkis- fyrirtækja eða eigna ríkisins hefur borið á góma en ég verð að segja það að ég sé hér ákveðið lag þar sem ríkissjóður Islands á svo verðmæta eign í þessu fyrirtæki, að hann haldi kannski ekki öllu lengur í þessa eign sína heldur setji hana á markað frekar en ýmislegt ann- að sem rætt hefur verið um. Við höfum ágætt fordæmi úr Mývatnssveitinni, þegar lagt var fram fmmvarp um að selja hlut ríkisins í kísilgúrverk- smiðjunni og kveðið á um að ágóðinn af sölunni rynni til uppbyggingar atvinnulífs í Mývatnssveit. Ég geri það að tillögu minni að ríkissjóður selji þessi bréf sem munu vera að verðmæti u.þ.b. 2 milljarðar og ágóði af sölunni renni til að byggja upp Reykja- nesbraut. Þannig mætti fjár- magna það og maður sæi fyrir endann á þeirri framkvæmd, en svo er því miður ekki eins og staðan er í dag. Ég vona að þessi hugmynd geti orðið kveikjan að farsælli lausn þessa máls. Sigríður Jóhannesdóttir (S) alþingismaður Sverrir Vilbergsson er hafnarstjóri í Grindavík en nú bíða sjómenn í Grindavík, sem og annars staðar eftir að verkfallið leysist þrátt fyrir lög alþingis. Starfsem- in við höfnina hefur þó ekki legið niðri síðustu daga því smábátar hafa verið duglegir við að draga í soðið. 2G

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.