Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.03.2001, Qupperneq 35

Víkurfréttir - 22.03.2001, Qupperneq 35
8 liða úrslit Epson-deildarinnar í körfu: Njapðvík í vandpæðum með Borgnesinga Guðjón Skúlason lék frábærlega með sínu llðl í fyrstu umferð og er að öðrum ólöstuðum heltastl maður úrslitakeppninnar. Njarðvíkingar sigruðu Borgnes- ingar örugglega í úrslitaleik lið- anna um hvort liðið kæmist í und- anúrslit EPSON deildarinnar 87- 57 í Njarðvík í fyrrakvöld. Það vom þremenningarnir Brent- on Birmingham, Teitur Örlygsson og Logi Gunnarsson sem bám uppi sóknarleik Njarðvíkinga en einnig léku þeir Jes Hansen og Halldór Karlsson prýðisvel í jress- um baráttuleik. Eftir jafnan fyrri hálfleik 51-43 skelltu Njarðvík- ingar í lás í þriðja leiðhluta og tryggðu ömggt 20 stiga forskot, svo ömggt að gamla kempan Al- exandre Ermolinskji sá ekki ástæðu til að koma inná í síðasta leikhiutanum en hann hafði verið besti leikmaður Borgnesinga fram að því. Þrátt fyrir sigurinn þurfa Njarð- víkingar að laga ýmislegt, sérstak- lega sóknarmegin, áður en liðið tekur á móti Islandsmeisturum KR næstkomandi sunnudag. Verður þar rimma hörð. Endurkoma Fals og Guðjón í ham! Keflvíkingar gjörsigmðu Hamars- menn frá Hveragerði 103-69 og 62-106 í tveimur ójöfnum viður- eignum í 8 liða úrslitum Epson deildarinnar og tryggðu sér far- seðilinn í undanúrslit. Guðjón Skúlason heldur áfram að setja niður þrista á geigvænlegum hraða, 7 í fyrri leiknum og 10 í þeim seinni. Endurkoma Fals Harðarsonar markaði upphafið að endi fyrri leiksins en með innkomu hans jókst hraðinn til muna og Keflvflc- ingar skildu Hvergerðinga eftir á sokkaleistunum, breyttu stöðunni úr 12-16 í 30-16 og leikurinn gott sem búinn. I seinni leiknum var Gaui ekkert að bíða eftir Fal held- ur vann fyrri hálfleikinn upp á eigin spýmr, 26-27, en staðan í hálfleik var 26-55 teljum við stig samheija Guðjóns einnig. Seinni hálfleikurinn var, eins og í fyrri leiknum, leikur kattarins að músinni og lokatölur 62-106. Einbeitingarleysi Grindvíkinga Grindvfldngar töpuðu 79-75 á Sauðarkróki í fynakvöldkvöld og sagði Einar Einarsson, þjálfari liðsins, að 50 sekúndna einbeit- ingarleysi undir lok þriðja leik- hluta hefði snúið leiknum á sveif Sauðkræklinga og síðan hafi lið hans ekki haldið haus í síðasta leikhlutanum. „Við vomm með 18 stig í plús og að mér fannst, búnir að hafa öll tök á leiknum fram að þessu. Mér fannst jtetta vendipunktur í leikn- um því í stað jressa að brjóta vilja þeirra alveg á bak aftur gáfum við jreim vonameista sem okkur tókst ekki að slökkva í síðasta fjórð- ungnum. Þegar þeir minnkuðu muninn enn frekar fomm við að efast og hika og það kann ekki góðri lukku að stýra. Þrátt fyrir allt þetta fengum við tækifæri til að vinna leikinn en tókst að marg- klúðra síðustu sókninni. Þessi nið- urstaða er vemlega sár sannleikur fyrir mig og mína menn því liðið hafði spilað alveg glimrandi vel ffam undir lok þriðja leikhluta. Við hreinlega köstuðum frá okkur sigrinum á lokamínútunum frekar en að Tindastóll hafi unnið tyrir honum", sagði Einar í símtali við VF, heldur súr í bragði og vel skiljanlegt því Grindvíkingar léku mjög vel í síðustu leikjum Is- landsmótsins og virtust til alls lík- legir í úrslitakeppninni. Sigur Tindastóls var tímamótasigur fyrir Val Ingimundarson og félaga hans því Tindastóll komst þar með í fyrsta sinn í undanúrslit. Þeir mæta Keflavíkurliðinu og hefjast leikar á sunnudag eins og hjá Njarðvík - KR Guðjón maður umferðarinnar Guðjón Skúlason lék frabærlega með sínu liði í fyrstu umferð og er að öðmm ólöstuðum heitasti maður úrslitakeppninnar, skoraði 60 stig á 55 mínútum og nýtti 58% þriggja stiga skota sinna. Keflavíkurliðið tók Hamars- menn mjög létt. Er liðið á toppnuni á réttum tíma? Það varð nú niðurstaðan en við áttum ekki von á þcssu svona auðveldu. Liðið er einfaldlega að spila mjög vel og það small allt saman í báðum leikjunum. Það er alltaf ánægjulegt jiegar vel gengur og ég hef verið að fá mikið af góðum skotfæmm upp úr okkar kerfum. Það hjálpast allir við að skapa skotfærin og mér gengið vel að setja skotin niður. Það er engin ein ástæða á bakvið hittn- ina, ég hef verið að skjóta mikið á æfingum og skrokkurinn er í fínu lagi“, sagði Guðjón. í upphaft tímabils sagðir þú að stefnan væri sett á að taka alla titlana. Eftir meiðsl eru tveir sterkir Ieikmenn eru komnir til baka (Falur,Hjörtur) og Fannar að auki bætst í hópinn. Ertu nú kominn með liðið í kringum þig sem þú áttir von í upphafi tíma- bils þegar þcssi yfirlýsing var gefin? ,Já, ég myndi segja það. Mark- miðið breyttist ekkert. Við emm búnir að klúðra tveimur titlum í ár, bikartap gegn liði sem við vor- um að taka með 40 stigum núna og töp gegn ísafirði og Borgames og fleiri liðum í deildinni.Við misstum þama bæði bikartitil og deildarmeistaratitil. Við fómm vel yfir hlutina að lokinni deildar- keppninni og menn em að bregð- ast rétt við.“ Verður Fannar með út úrsiita- keppnina? ,£g efast um það. Eg held hann verði út jiennan mánuð. Við sjá- um til“. Aðalfundur Sparisjóðs- ins í Keflavík var haldinn 15. mars s.l. Benedikt Sigurðsson, stjórnarformaður flutti skýrslu stjómar. Geirmund- ur Kristinsson flutti síðan skýrslu sparisjóðsstjóra og sagði að árið 2000 hafi Sparisjóðurinn í Keflavík skilað góðri rekstraraf- komu. Hagnaður varð 123,5 niilljónir eftir skatta og framlag til afskriftareikn- ings og varð arðsemi eigin- fjár þá 12,9%. Sparisjóður- inn beitti ekki þeirri reikn- ingsskilaaðferð að færa eignarhlutann í Kaupþingi h.f. á markaðsverði líkt og margir aðrir sparisjóðir en sú aðferð hefði skilað marg- falt meiri hagnaði. Sam- þykkt var tillaga um 10% arðgreiðslu til stofnfjáraðila og auk þess var stofnfé end- urmetið um 4,53%. Geirmundur kynnti nýtt frum- varp til laga um banka og sparisjóði sem tekur á breyttu rekstrarformi og mögulegri hlutafjárvæðingu sparisjóð- anna. Miklar umræður urðu um frumvarpið og töldu fund- armenn að rétt væri að skoða hlutafélagaleiðina gaumgæfi- lega. I framhaldi af því upp- lýsti Geirmundur að stjórn sparisjóðsins hefði ráðið Deloitte & Touch h.f. til verksins. I dag er sparisjóðurinn sjálfs- eignarstofnun en í hinu nýja frumvarpi er einnig gert ráð fyrir að sparisjóðum verði gert kleift að styrkja það rekstrarform með hærri arð- greiðslum en gert hefur verið. Sparisjóðir hafa því valkost um það að breyta sér í hluta- félög eða viðhalda sjálfseign- arforminu. Samkvæmt gildandi lögum fer fundur stjómfjáreiganda með æðsta vald í málefnum sparisjóðs en stofníjáreigend- ur kjósa þó aðeins 3 stjómar- menn af 5. Hlutaðeigandi sveitarstjóm tilnefnir 2 stjóm- armenn en með með nýjum lögum verður heimilað að breyta samþykktum þannig að stofnfjáreigendur kjósi alla stjómina. Ef hlutafélagaleiðin er farin mun sá hluti stofnfjár sem ekki gengur til stofnfjáreig- enda verða eign sérstakrar sjálfseignarstofnunar og verð- ur megintilgangur hennar að stuðla að vexti og viðgangi sparisjóðsins. Sérstakt full- trúaráð myndi kjósa stjórn hennar. Stofnfjáraðilar Spari- sjóðsins í Keflavík era nú um 560. Nýtt lagafrumvarp um hlutafélög rætt á aðal- fundi Sparisjéðsins Daglegar fréttir frá Suðurnesjum á www.vf.is 35

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.