Morgunblaðið - 25.05.2016, Blaðsíða 13
Morgunblaðið/Ófeigur
Leikhópurinn Lotta F.v. Baldur Ragnarsson, Sigsteinn Sigurbergsson, Andrea Ösp Karlsdóttir, Björn Thor-
arensen, Rósa Ásgeirsdóttir og Anna Bergljót Thorarensen vinna saman, borða, sofa og leika saman í allt sumar.
hún byggði leikritin á verkum gömlu
ævintýrameistaranna. Aukinheldur
hafi hún breytt út af vananum og
samið ævintýrið kringum boðskap-
inn en ekki öfugt. „Ég bar söguþráð-
inn upp við Lottu áður en ég hófst
handa við skriftirnar. Síðan fylgdist
hópurinn með ferlinu, allir komu
með sínar hugmyndir og eiga sinn
hlut í sögunni.“
Tíu ný lög
Anna Bergljót segir að Litaland
sé ætlað börnum frá þriggja ára
aldri en sé ekki síður fyrir unglinga
og fullorðna. „Allir eiga að finna eitt-
hvað við sitt hæfi. Við blöndum öllu
saman, erum með prumpubrandara
og dettum á rassinn fyrir litlu börnin
og flóknari orðaleiki og brandara
fyrir fullorðna fólkið. Í leikritinu eru
tíu ný íslensk lög sem við syngjum
og dönsum við alveg eins og vitleys-
ingar, þannig að sýningin er sprell-
fjörug og skemmtileg.“
Heiðurinn af tónlistinni eiga
Lottufélagarnir Baldur Ragnarsson,
Björn Thorarensen og Rósa Ás-
geirsdóttir. Ljóti hálfvitinn Sævar
Sigurgeirsson semur söngtextana
utan eins sem er eftir Baldur. Að
venju kemur út geisladiskur með
leikritinu í tali og tónum á frumsýn-
ingardaginn og verður til sölu alls
staðar þar sem Lotta drepur niður
fæti og víðar. Egill Ingibergsson og
Móeiður Helgadóttir hönnuðu leik-
myndinga og Kristína Berman
hannaði og saumaði búningana,
gulu, rauðu og bláu, og einnig hár-
kollur og grímur í stíl. Rjóð verður
rauð frá hvirfli til ilja eins og aðrir
íbúar Rauðheima. Bláheimar og Gul-
heimar draga vitaskuld einnig nafn
sitt af litarhafti íbúanna.
Eins og við er að búast segir
Anna Bergljót að á ýmsu hafi gengið
á kringum sýningar Lottu í áranna
rás. Í hittifyrra uppgötvaðist
klukkutíma fyrir sýningu í Húsafelli
að Hrói höttur hafði gleymt bún-
ingnum sínum heima. „Það vildi til
að leikarinn, Stefán Benedikt, er
alltaf svo litríkur til fara að Hrói
höttur var fullsæmdur af fötunum
hans. Þau voru að vísu rauð, en Hrói
útskýrði klæðaburðinn fyrir áhorf-
endum þannig að þeir voru alveg
sáttir þótt græna hattinn vantaði.“
Anna Bergljót, sem titlar sig
skvísu í símaskránni, hlakkar mikið
til að leggja ásamt sínum bestu vin-
um upp í sinn tíunda leiðangur með
Lottu, og setur hvorki fyrir sig lang-
keyrslur né að sofa í svefnpokum í
skólum og félagsheimilum úti um all-
ar trissur. Þannig er lífið í skemmt-
anabransanum eins og hún þekkir
það best. Hún segist ekki lengur
standa undir nafni sem skvísa og
ætlar að láta breyta skráningunni
við fyrsta tækifæri.
„Fyrir þremur árum leigðum
við nokkrar vinkonurnar íbúð í 101,
kölluðum heimilið Skvísukot, tipl-
uðum um á háum hælum og sötr-
uðum kokkteila. Sú tíð er löngu liðin.
Núna er ég virðuleg, barnshafandi
kona í Kópavogi með mann sem á
tvö börn fyrir. Nýhætt sem kynning-
arstjóri Menningarfélags Akur-
eyrar, um það bil að fara í fæðingar-
orlof og með plön um að skrifa fleiri
leikrit – líka fyrir Lottu,“ segir Anna
Bergljót, handritshöfundur.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2016
Eos
Skeifunni 8 | Kringlunni | Sími 588 0640 | casa.is
Kartell Take lampar
Verð 14.900.- stk.
Kartell Battery
lampar
Verð frá 25.900.- stk.
VITA gólflampar
Verð frá 31.800.- stk.
Iittala Kastehelmi
Verð frá 4.090,- stk.
Ritzenhoff
bjórglös og krúsir
Verð frá 2.490,- stk.
Kay Bojesen
Söngfugl
Verð 12.650,- stk.
Flottar gjafir fyrir útskriftina
VITA borðlampar
Verð frá 21.900.- stk.
Menu skartgripatré
Verð 10.350,-
Kahler Omaggio
vasar
Verð frá 4.990,-
Níu manns komu að stofnun Leik-
hópsins Lottu haustið 2006. Þeir
áttu það sameiginlegt að hafa
brennandi áhuga á leiklist og
fannst ómögulegt að leikhúsin
væru lokuð á sumrin. Þeir tóku
sig því til og keyptu bíl út á krít
og leigðu kerru undir leikmuni –
og settu upp leikrit.
Fyrsta verkefnið var Dýrin í
Hálsaskógi sem sýnt var 20. maí
2007 í Elliðaárdal í þeirri von að
sýningin laðaði nógu marga áhorfendur að til að hægt væri að
standa í skilum. Tiltækið stóð undir væntingum, dalurinn fylltist af
fólki og Leikhópurinn Lotta fékk byr undir báða vængi. Þetta sumar
sýndi hópurinn leikritið á meira en 40 stöðum víðsvegar um landið
og var alls staðar tekið fagnandi. Um 15 þúsund manns sáu út-
færslu Lottu á Dýrunum í Hálsaskógi og síðan hefur áhorfendum
fjölgað jafnt og þétt.
Dalurinn fylltist af fólki
LEIKHÓPURINN LOTTA
Lottan Fagurlega skreytt, splunku-
nýtt tíu ára gamalt VW-rúgbrauð.
Bláverjar Björn og Rósa búa í Bláheimum, sem er að hruni komnir. Gulverjar Baldur og Sigsteinn í Gulheimum neita fyrst að aðstoða Bláverja.
Leikhópurinn Lotta frumsýnir
Litaland kl. 18 í dag, miðvikudag,
við Rafstöðvarhúsið í Elliðaárdal.
Síðan á ýmsum stöðum á landinu.
Nánari upplýsingar: www.leikhóp-
urinnlotta.is
Ferðamönnum í Reykjavík heldur
áfram að fjölga en á fyrstu fjórum
mánuðum ársins fjölgaði þeim um
35% milli ára. Svipuð þróun var í
Berlín, en þar var 30% aukning á
síðasta ári og metár í fjölda ferða-
manna þegar 30 milljónir sóttu
borgina heim.
Á málþingi sem haldið verður kl.
17-20 í dag, miðvikudag 25. maí, í
Hörpu verður rætt um ferðaþjón-
ustu, skapandi greinar og menn-
ingu í ferðamannaborgunum Berlín
og Reykjavík. Framkvæmdastjórar
annars vegar visitBerlin og hins
vegar Kulturprojekte Berlin verða í
pallborði ásamt Degi B. Eggertssyni
borgarstjóra og Áshildi Bragadótt-
ur, forstöðukonu Visit Reykjavík/
Höfuðborgarstofu. Aðrir þátttak-
endur á málþinginu eru forsvars-
menn ferðaþjónustufyrirtækja,
skapandi greina og menningar-
stofnana.
Á málþinginu sem markar upphaf
samstarfs milli Visit Reykjavík og
visitBerlin, verður velt upp ýmsum
spurningum, m.a. hvort öflugt
menningarlíf sem er eitt helsta að-
dráttarafl beggja borga fari saman
með auknum fjölda ferðamanna og
hvort borg geti í senn verið skap-
andi með áherslu á öflugt menning-
ar líf og áfangastaður ferðamanna.
Málþing í Hörpu um tvær ferðamannaborgir
Harpa Flestir eru sammála um að fjölbreytt menningarlíf og aðlaðandi og
skemmtileg miðborg séu forsendur þess að Reykjavík eflist sem áfangastaður.
Skapandi greinar í skapandi
borgum - Reykjavík og Berlín