Morgunblaðið - 25.05.2016, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 25.05.2016, Blaðsíða 23
MINNINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2016 ✝ Guðrún Vig-fúsdóttir fædd- ist 4. mars 1924 í Reykjavík. Hún lést á Landspít- alanum 12. maí 2016. Foreldrar henn- ar voru Vigfús L. Árnason, f. 18.9. 1891 í Reykjavík, d. 2.4. 1957, og Vil- borg Elín Magnús- dóttir, f. 19.6. 1892 að Sveins- stöðum í Neshreppi, Snæfellsnesi, d. 30.1. 1951. Systkini hennar voru Hulda, Árni, Guðrún, Aðalheiður Hulda, Bjarni, Bára, Vilborg, Gestur, Jóhann og Ægir. Gest- ur og Ægir lifa systkini sín. Guðrún giftist 13. maí 1944 eftirlifandi eiginmanni sínum, Guðmundi Ólafssyni frá Hurð- arbaki í Vill- ingaholtshreppi, f. 8.10. 1924. For- eldrar hans voru Ólafur Ingi Árna- son og Ólöf Jóna Ólafsdóttir. Börn Guðrúnar og Guðmundar eru fjögur, Vigfús L. Guðmundsson, Ólöf J. Guðmundsdóttir, Þóra Alexía Guðmundsdóttir og Ingvar Guðmundsson, barnabörnin er 11 og barnabarnabörn eru 9. Guðrún og Guðmundur bjuggu allan sinn búskap í Hlíðunum. Guðrún starfaði við verslunarstörf samhliða því að vera heimavinnandi húsmóðir. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 25. maí 2016, klukkan 13. Í dag kveð ég mína elskulegu tengdamóður. Hennar verður lengi minnst. Gunna var hlý og góð kona sem ekkert aumt mátti sjá. Hún var með eindæmum fórnfús og var óvenju gjafmild á alla hluti sem hún hugsanlega gat gefið af sér. Henni féllu aldrei verk úr hendi, hún var mikil hannyrðakona og einstaklega góður gestgjafi sem töfraði fram veisluborð á svip- stundu. Alltaf tók hún á móti mér með opnum örmum og gaf sér tíma til að setjast niður og spjalla um dag- inn og veginn. Það sem var svo einstakt við Gunnu var hvað hún var góður hlustandi og laus við alla gagnrýni. Þegar kom að veislugerð var gott að leita til hennar því þar var hún á heimavelli. Hún var með bakarablóð í æðum og kenndi hún mér mörg góð ráð sem hafa nýst mér vel um ævina, fyrir það er ég þakklát. Alltaf var hún boðin og búin að aðstoða ef þess þurfti hvort sem var að passa barnabörnin, aðstoða við bakstur eða taka fram sauma- vélina þegar sú var tíðin. Fjölskyldan var henni allt, hún fylgdist vel með öllum af miklum áhuga og náði hún sérstaklega vel til barnabarna sinna. Gunna var með gott minni og þegar kom að afmælisdögum, hvort sem var hjá fjölskyldu eða vinum, þá var alltaf kveikt á kerti og hringt í viðkomandi, það var henni mikils virði. Með þessum ljóðlínum kveð ég þig, elsku Gunna, og bið Guð að styrkja Guðmund sem syrgir kæra eiginkonu og lífsförunaut. Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hvíl í friði. Þín, Svava. Elsku besta amma okkar. Að hugsa til þess að þú sért far- in frá okkur gefur okkur sting í hjartað. Það að við munum ekki eiga fleiri stundir með þér í eld- húsinu í Hlíðunum er erfið tilhugs- un. Í eldhúsinu var fótboltinn ræddur í þaula og þar varst þú á heimavelli. Þú fylgdist vel með boltaíþrótt- um og hafðir sterkar skoðanir, helstu fótboltasérfræðingar hafa ekki tærnar þar sem þú varst með hælana. Þú sást til þess að við vor- um á tánum í boltanum og alltaf varstu jafn spennt að vita hvernig leikirnir fóru. Ef það var skorað mark þá varstu tilbúin með 100 kr. fyrir hvert mark, eins og þú orð- aðir það: „margt smátt gerir eitt stórt“. Þú tókst alltaf á móti okkur með opnum örmum og alltaf var nóg af nammi og kræsingum á boðstólum. Þú varst gjafmild og góð og það gladdi þig ekkert meira en að gefa fallegar gjafir. Þegar við hugsum til baka koma bara upp góðar minningar um þig. Ófá spil voru spiluð og alltaf varstu að kenna okkur eitthvað nýtt en ólsen-ólsen varð oftast fyr- ir valinu og þar var sko ekki í boði að svindla. Þú kenndir okkur líka að maður þarf að kunna að tapa. Þú komst alltaf fram við okkur sem jafningja og það var alltaf hægt að spjalla við þig um allt milli himins og jarðar. Við kveðj- um þig með sorg í hjarta en á sama tíma vitum við að þú ert komin á fallegan stað. Þú varst einstök og munt þú alltaf eiga stóran stað í hjarta okk- ar. Við kveðjum þig elsku amma mín, í upphæðum blessuð sólin skín, þar englar þér vaka yfir. Með kærleika ert þú kvödd í dag, því komið er undir sólarlag, en minninga ljós þitt lifir. (Halldór Jónsson frá Gili) Þín barnabörn, Klara, Einar Karl og Davíð. Amma kær, ert horfin okkur hér, en hlýjar bjartar minningar streyma um hjörtu þau er heitast unnu þér, og hafa mest að þakka, muna og geyma. Þú varst amma yndisleg og góð, og allt hið besta gafst þú hverju sinni, þinn trausti faðmur okkur opinn stóð, og ungar sálir vafðir elsku þinni. Þú gættir okkar, glöð við undum hjá, þær góðu stundir blessun, amma kæra. Nú hinstu kveðju hjörtu okkar tjá í hljóðri sorg og ástarþakkir færa. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hvíl í friði, elsku amma okkar. Margrét, Guðmundur og Alexía. Einstök kona er fallin frá, svo einstök að við höfum kallað hana drottninguna á tyllidögum í okkar hópi. Kynni okkar Gunnu hófust í Austurstræti, þar sem SÍS rak fyrstu kjörbúð á Íslandi. Eigin- maður hennar var deildarstjóri í kjötvinnslunni. Verslunin var á tveimur hæðum og fjölmargir sem unnu þar, það tókst ágætis vin- skapur með mönnum sem hefur haldist síðan. Ekki er svo ýkja langt síðan við nokkur skruppum að Flúðum til gamalla vinnu- félaga, sem ráku þar gistingu, þar urðu fagnaðarfundir. Það leið aldrei langur tími milli þess að við konurnar hittumst og oft voru það fastir tveir dagar í mánuði. Gunna var mikill barnavinur og aldrei kom hún án þess að vera með nammipoka handa börnun- um, sem þau minnast enn í dag. Um leið og við fylgjum drottning- unni okkar hinsta spölinn, sendum við manni hennar og fjölskyldu okkar dýpstu samúðarkveðjur. Ég sendi þér kæra kveðju, nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir, ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum, þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast, svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi, ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Kristjana, Hekla, Gréta og Helga. Guðrún Vigfúsdóttir HINSTA KVEÐJA Þú varst alltaf svo góð við mig, ég fékk athygli þína óskipta, þú lifðir fyrir mig, hlustaðir á mig, talaðir við mig, leiðbeindir mér, lékst við mig, sýndir mér þolinmæði, agaðir mig í kærleika, sagðir mér sögur, fræddir mig og baðst með mér. Þú varst alltaf svo nærgætin og skilningsrík, umhyggjusöm og hjartahlý. Þú varst skjól mitt og varnarþing. Við stóðum saman í blíðu og stríðu, vorum sannir vinir. Mér þótti svo undur vænt um þig, elsku mamma mín. (Sigurbjörn Þorkelsson) Þóra Alexía. Ég kveð þig, hugann heillar minning blíð, hjartans þakkir fyrir liðna tíð, lifðu sæl á ljóssins friðar strönd, leiði sjálfur Drottinn þig við hönd. (Guðrún Jóhannsdóttir) Erna S. Mathiesen. Elsku Óli mágur minn sem fór svo snögglega og svip- lega frá okkur. Óli var hluti af fjölskyldunni í meira en 30 ár. Það verður erfitt að venjast því að hann verði ekki til staðar þeg- ar maður skreppur norður á Strandir. Hver eldar nú fyrir mig kvöldmat? Mig setur hljóða, ég er svo sorgmædd og er búin að hugsa stanslaust til hans. Óli og Lára. Óli og börnin. Óli sjómaður. Óli vörubílstjóri. Óli með derhúfu svo honum yrði ekki kalt á höfðinu. Óli var barngóður, hann var duglegur að vinna, hann flíkaði ekki tilfinningum sínum en varð mýkri með árunum. Óli var mjög heimakær og kunni best við sig með fjölskyldu sinni. Ólafur Jóhannes Friðriksson ✝ Ólafur Jóhann-es Friðriksson fæddist 2. apríl 1962. Hann lést 25. apríl 2016. Útför Ólafs fór fram 7. maí 2016. Ég var aldrei gestur heima hjá Láru og Óla heldur ein af fjölskyldunni. Það var alltaf hægt að koma mér og mínum fyrir. Og börnin mín tvö bjuggu heima hjá Láru og Óla sitt hvort sumarið og var það ekkert mál. Það var yndislegt að sjá Óla í afahlutverkinu. Nýr kafli í lífi hans var að byrja og hann naut hans í botn. Elsku Lára, Örvar, Unnur, Veiga, Jón Arnar og Arna, ég veit að þetta er gríðarlegt högg fyrir ykkur og hreinlega ömurlegt að þetta hafi gerst. Munið að sorgin mildast með tímanum og þið látið minninguna um Óla lifa. Ég votta einnig föður Óla og systkinum samúð mína. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn.) Hrund. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURSTEINN SIGURSTEINSSON, Skjólbrekku, andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 17. maí. Útförin fer fram frá Borgarneskirkju fimmtudaginn 26. maí klukkan 14. Blóm og kransar afþökkuð en þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Borgarfjarðar. . Guðrún Jóhannsdóttir, Viggó Sigursteinsson, Björgvin Sigursteinsson, Steinunn B. Hilmarsdóttir, Björk Sigursteinsdóttir, Sigurður J. Sigurðarson og barnabörn. Ástkær móðir mín, dóttir, systir og mágkona, AUÐUR GUNNARSDÓTTIR, Hraunbæ 150, lést á Landspítalanum Hringbraut þann 11. maí 2016. Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju föstudaginn 27. maí kl. 13. . Ásta Rut Hjartardóttir Sigríður Benný Eiríksdóttir Eiríkur Gunnarsson Valgerður Stefánsdóttir Trausti Gunnarsson Berglind Rut Sveinsdóttir Hildur Gunnarsdóttir Guðjón Pétur Ólafsson Ragnheiður Gunnarsdóttir Bjarni Snæbjörnsson Unnur Gunnarsdóttir Minningarathöfn um ástkæra móður mína, systur, tengdamóður og ömmu, GUÐBJÖRGU MARGRÉTI GISSURARDÓTTUR MAUGHAN (DISTU) sem lést 1. febrúar, verður haldin í Fríkirkjunni Kefas, Fagraþingi 2a, 203 Kópavogi, föstudaginn 27. maí kl. 14. . Brynja Maughan David Holmes Eliza Björk Holmes Jóna Gissurardóttir Þorgerður Ína Gissurardóttir Halldór Skaftason Kristján Gissurarson Þórunn A. Magnúsdóttir Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, fósturfaðir og afi, EINAR LAXNESS, sagnfræðingur, Stóragerði 29, Reykjavík, lést á heimili sínu mánudaginn 23. maí. Jarðarförin verður auglýst síðar. . Elsa Jóna Theódórsdóttir, Sigríður Einarsdóttir Laxness, Halldór E. Laxness, Margrét E. Laxness, Einar E. Laxness, Hjalti Garðar Lúðvíksson, Theódór Lúðvíksson og fjölskyldur. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og langalangafi, FRIÐRIK INGIMAR JÓNSSON rafvirki, lést á Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn 20. maí. Útförin fer fram frá Hafnarfjarðar- kirkju föstudaginn 3. júní kl. 13. . Halldóra Guðmundsdóttir Þórunn Ingimarsdóttir Bjarnveig Ingimarsdóttir Magnús Agnarsson Ingunn Ingimarsdóttir Kristinn G. Ólafsson Halldóra Ingimarsdóttir Pétur M. Sigurðssson Bergþóra V. Ingimarsdóttir Einar Th. Jónsson Jón Ingimarsson María Ósk Steinþórsdóttir barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn. Morgunblaðið birtir minn- ingargreinar endurgjalds- laust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsam- lega beðnir að nota innsendikerfi blaðsins. Smellt á Morgunblaðs- lógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minningargrein,“ valinn úr felli- glugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/ sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfarardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dög- um fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.