Morgunblaðið - 25.05.2016, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.05.2016, Blaðsíða 18
SVIÐSLJÓS Anna Lilja Þórisdóttir annalilja@mbl.is Fjölmargir framhaldsskólarvíða um land glíma viðalvarlegan fjárhagsvandasem fyrst og fremst má rekja til launakostnaðar kennara. Taka þarf fé úr rekstri til að greiða laun. Þetta segir Hjalti Jón Sveinsson, skólameistari Kvennaskólans og for- maður Skólameistarafélags Íslands. Hann segir óviðunandi að skólameist- arar þurfi reglulega að biðja stjórn- völd um meira fé til reksturs skól- anna. Rekstrarvandi framhaldsskól- anna hefur verið í sviðsljósinu undan- farna daga eftir að kennarar við Verk- menntaskólann á Akureyri, VMA, sendu frá sér ályktun þar sem sagði að skólinn væri nánast gjaldþrota. Hjalti segir að þó að staða VMA sé grafalvarleg sé hún ekkert einsdæmi. „Margir skólar hafa safnað vanskilum frá því um áramót, bæði litlir og stórir – jafnt á höfuðborgarsvæðinu og á landsbyggðinni,“ segir Hjalti. Hann segir að sumir þessara skóla hafi átt afgang frá rekstri síð- ustu ára en hann sé nú að klárast. „Ég fullyrði að þó nokkrir skólar séu einfaldlega komnir í þrot; sumir skulda tugi milljóna sem þeir hafa engan veginn tök á að greiða.“ Stefna á að brúa bilið Ástæður þessarar skuldasöfn- unar eru, að sögn Hjalta, annars veg- ar ýmiss rekstrarkostnaður eins og t.d. rafmagn, hiti og ræsting. Aðal- ástæðan er hins vegar launakostnaður kennara, sem hefur aukist mjög að undanförnu, og Hjalti segir launastiku Mennta- og menningarmálaráðuneyt- isins sem laun kennara eru reiknuð út frá vera úrelta. „Þetta er föst tala sem er miðuð við ungan kennara með BA- eða BS-próf sem hefur innan við tveggja ára kennslureynslu. Núna eru mjög margir kennarar með MA-próf og 20-30 ára reynslu.“ Hann segir að í kjölfar síðustu kjarasamninga fram- haldsskólakennara hafi skólunum ver- ið greiddar bætur til að standa straum af hækkunum en það hafi ekki dugað. Samkvæmt upplýsingum frá Mennta- og menningarmálaráðuneyt- inu var launastikan lækkuð í kjölfar hrunsins. Það hafi eingöngu verið út- færsla innan þess reiknilíkans sem notað er til að meta fjárþörf skólanna. Ráðuneytinu hafi alltaf verið ljós sá munur sem er á henni og meðal- launum kennara. Mismunur launa- stiku og meðallauna í skólum hafi ver- ið um 22% árið 2014. Í fyrra var hann 15% og gert er ráð fyrir að hann fari niður í 7,6% í ár og með hækkun fjár- framlaga og breytingum á skólakerf- inu takist að brúa þetta bil á næsta eða þarnæsta ári. Ekki eins og vegagerð Kristinn Þorsteinsson, skóla- meistari Fjölbrautaskólans í Garðabæ, FG, segir skólann vera „nálægt núll- inu“. Boðið er upp á fjarnám við skól- ann, fyrir það fást sértekjur og þannig hefur tekist að komast hjá lausa- fjárvanda. „Það er ekki hægt að tala um verulegan rekstrarvanda hjá okk- ur en það vantar fé inn í þennan rekstur svo hann geti talist eðlilegur,“ segir Kristinn. „Þegar laun eru 80- 90% af útgjöldum er t.d. ekki hægt að fjárfesta í upplýsingatækni og við höf- um ekki getað endurnýjað búnað. Auðvitað er hægt að halda úti skóla- starfi á þennan hátt en þetta kemur niður á gæðunum og ég tel að það sé farið að gerast. Grunnvandamálið er ekki launastikan heldur einfaldlega að skólarnir fá of litla peninga. Það er síðan hægt að nota ýmsar aðferðir við að deila fénu.“ Hann segir stundum gleymast í umræðunni að skólastarf lúti öðrum lögmálum en mörg opinber verkefni. „Ef skorið er niður í vegafram- kvæmdum eru einfaldlega lagðir færri vegir. Öðru máli gildir um skólana – við eigum alltaf að framkvæma það sama þó að við fáum minni peninga til að gera það.“ Skólarnir að sligast undan launakostnaði Morgunblaðið/Eggert Stúdentar Skólameistarar eru sammála um að staða skólanna sé slæm. 18 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2016 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Pólitísk um-ræða umfjölmiðla tekur oft á sig skrítnar myndir og ekki skánar það þegar pólitíkin tekur að sér að passa upp á að fjölmiðlarnir fari ekki út af sporinu. Fjölmiðlar voru til umræðu á Alþingi í gær, staða þeirra og lagasetning um þá. Fjölmiðlanefnd var áberandi í umræðunni. Birgitta Jónsdóttir, þingmað- ur Pírata, talaði um að tryggja þyrfti að fjölmiðlar væru óháðir í raun og almenningur vissi hver væri raunverulega eigandi þeirra og hvernig þeir væru fjár- magnaðir. Engin spurning er um það að eignarhald fjölmiðla og fjár- mögnun þeirra eigi að liggja ljós fyrir. Það er bæði sjálfsagt og eðlilegt. Spurningar vakna hins vegar þegar settur er varð- hundur til höfuðs fjölmiðlum. Árið 2011 voru sett fjölmiðlalög. Afrakstur þeirra var meðal ann- ars fjölmiðlanefnd, sem tók við af útvarpsréttarnefnd, en hefur mun víðtækara umboð, nær til dagblaða og vefmiðla auk ljós- vakamiðla. Birgitta rifjaði upp þriggja ára gamla úttekt eftirlits- nefndar ÖSE á íslenskum fjöl- miðlamarkaði og tók í umræðun- um í gær undir ráðleggingar hennar um að efla fjölmiðla- nefnd. Fjölmiðlanefnd er undarlegt fyr- irbæri. Hún er æðsta valdið í þeim málum, sem hún tekur fyrir og er ekki hægt að skjóta ákvörðunum hennar annað. Markmið hennar er háleitt. Hún „skal vinna að því að efla fjölmiðlalæsi, fjölbreytni og fjölræði í fjölmiðlum, standa vörð um tjáningarfrelsi og rétt almennings til upplýsinga,“ seg- ir í starfsreglum nefndarinnar. Á heimasíðu hennar segir að hún taki mál til meðferðar, hvort heldur er á grundvelli aðsendra erinda eða að eigin frumkvæði, sem leitt geti til stjórnvalds- ákvörðunar. Fjölmiðlanefnd taki ákvörðun um það hvort erindi sem berst henni gefi nægar ástæður til meðferðar. Nefndinni er gefið mikið vald og lítt takmarkað umboð og vek- ur furðu að fjölmiðlar, sem frá upphafi höfðu verið óháðir slíku valdi þurfi skyndilega að lúta því á 21. öldinni. Illugi Gunnarsson mennta- málaráðherra sagði í umræðun- um að ástæða væri til að skoða lögin að nýju og stöðu fjölmiðla- nefndar, til dæmis hvort einhver verkefni, sem nefndin hefði í dag mætti færa undir Samkeppn- iseftirlitið. Betur færi á því að leggja nefndina niður og Sam- keppniseftirlitið sæi um þau at- riði, sem lúta að samkeppni fjö- miðla. Best færi á því að leggja fjölmiðla- nefnd niður} Fjölmiðlar og pólitík Skattyfirvöld íFrakklandi gerðu húsleit í gær- morgun í höfuð- stöðvum Google í París. Húsleitin var gerð í kjölfar þess að tæknirisinn var sakaður um að hafa komið sem nemur um 225 millj- örðum króna undan skatti í Frakklandi. Húsleitin hjá Google er ein- ungis einn angi af víðari styr, sem staðið hefur um skattamál fjölþjóðafyrirtækja, sérstaklega innan Evrópusambandsins. Svo virðist sem mörg þeirra hafi komið sér upp flóknu neti dótturfyrirtækja, með það eitt að markmiði að lágmarka skatt- greiðslur sínar í þeim löndum þar sem þau stunda viðskipti. Þetta er sérstaklega um- fangsmikið viðfangsefni innan Evrópusambandsins, þar sem regluverkið þar hefur nánast ýtt undir þessa þróun. Svo dæmi sé nefnt, þá notar Google félag sitt á Írlandi til þess að lækka skatt- byrði sína innan Bretlands og fjárhæðirnar eru töluverðar. Á yfirborðinu í það minnsta virðist sem þessi reikningsskil séu lögleg, en þau vekja spurn- ingar um þann gríðarlega að- stöðumun í sam- keppni sem er á milli risafyrirtækja eins og Google og minni aðila sem geta ekki vikið sér svo glatt undan þungum hrammi skattsins. Mikilvægt er að koma þessum málum sem tengjast fyrir- tækjum á borð við Google í eðli- legt horf. Meðal þess sem þarf að tryggja er að reglur séu skýrar, en jafnframt þarf að draga sem mest úr hvatanum til slíkra bókhaldsæfinga, meðal annars með hóflegri skatt- heimtu svo að æfingarnar borgi sig ekki. Annað sem snýr að skatta- málum fyrirtækja á borð við Google, og huga þarf að jafnt á meginlandi Evrópu sem hér á landi, er skattleysi hluta af starfsemi þeirra. Google, Facebook og önnur slík fyrir- tæki starfa á auglýsingamark- aði víða um heim án þess að taka þátt í skattkerfi landanna eins og fyrirtækin í löndunum sjálf- um þurfa að gera. Þetta er vandamál sem ekki er síður brýnt að uppræta en dótturfyr- irtækjaflækjur alþjóðafyrir- tækjanna. Google og sambæri- leg fyrirtæki njóta margskonar skatta- hagræðis umfram keppinauta} Leitað hjá leitarvélinni A aaaaaaahrr, segir miðaldra maður við hliðina á mér, býsna fram- settur og kafloðinn. Ummrrrr! segir sá næsti, gildur meðlimur í flokki miðaldra, og ekki síður loð- inn, um leið og hann grettir sig rosalega, Hrrrrrmmmmmpf, segir þriðji karlinn og ekur sér makindalega til á bekknum. Ofangreint hljómar kannski eins og ég sé staddur í karlakynsvalli, en ég er bara í útiguf- unni í Suðurbæjarlaug árla dags. Það er nefni- lega einhvernveginn svo í gufunni, hvaða gufu sem er, að menn stynja, rymja, emja og and- varpa þegar þeir koma þar inn og setjast niður, hagræða sér í sætinu eða standa upp til að fara. Af hverju veit ég ekki, kannski er það af sælu yfir að komast inn úr kuldanum, kannski þyrm- ir yfir þá grimmd heimsins, nú eða þeir eru kannski að tala saman, hugsanlega að „taka umræðuna“. (Minna heyrist í konum, en ekki veit ég hvernig best er að túlka það.) Stunur, andvarp, muldur og mubb eru líka samskipta- form, það fyrsta sem við tileinkum okkur – áður en við segjum fyrstu orðin tjáum við tilfinningar og þarfir með öðrum hljóðum, þar á meðal með stunum og andvörpum og allskyns óskilgreindum hljóðum þar sem við spreytum okkur á tungumálinu. Kannski eru félagar mínir í gufunni gengnir í barndóm, sveitast frumstæðum orðum eða orð- leysum um leið og þreytan líður úr þeim og vöðvar mýkj- ast: Hmmmmmrrrrgggfx! Frumstæðum orðleysum, segi ég, en í raun er ekkert frumstætt við stunurnar þó þær séu ekki bundnar í orð – þær eru tjáningarform lík- amans, sammannlegt tjáningarform og dýrs- legt í senn, minnir okkur á að við erum dýr. (Fiskarnir stynja líka, emja, rymja og ropa – átta hundruð tegundir fiska gefa frá sér alls- kyns aðskiljanleg hljóð.) Stunurnar verka líka á okkur á annan og djúpstæðari hátt en orðin. Þetta vita listamenn til að mynda og nota: þegar Zack de la Rocha stundi af krafti í upphafi Bombtrack á tón- leikum Rage Against The Machine í Kapla- krika sumarið 1993 gengu viðstaddir af göfl- unum (og voru þó æstir fyrir). Stunurnar og murrið skeyta líka ekki um tungumál, mállýsku eða framburð (þó það geti vissulega verið snúið að átta sig á hvort gufu- félagar mínir séu að stynja af sælu eða stríðu). Mannfræði- rannsóknir mínar í Frakklandi og á Spáni hafa líka sýnt fram á að sama „tungumál“ styðjast menn við þar suður- frá: þar stynja menn og emja af sama þrótti og uppi á Ís- landi. „Það sem ekki er hægt að tjá með orðum, verðum við að þegja um,“ segir í ritgerð austurríska heimspekingsins Ludwigs Wittgensteins sem samin var nokkrum árum eft- ir ferð hans um Ísland í september 1912. Ef hann hefði rat- að í gufubað á leið sinni um landið hefði hann eflaust skipt um skoðun og heimspekisagan orðið önnur: Það sem ekki er hægt að tjá með orðum, túlka stunur. arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Hmmmmmrrrrgggfx! Ummrrr! STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen Í svari Mennta- og menningar- málaráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins segir að sigið hafi jafnt og þétt á ógæfuhliðina hjá framhaldsskólunum frá árinu 2011. Undanfarið ár hafi tekist að draga úr hallanum, hann hafi ver- ið 246 milljónir í lok síðasta árs og áætlanir geri ráð fyrir að í ár minnki hann um 60 milljónir. Illugi Gunnarsson, mennta- og menningarmálaráðherra, sagði á Alþingi í fyrradag að mistök Fjár- sýslu ríkisins hefðu verið ástæða þess að skólarnir hefðu ekki fengið það rekstrarfé sem þeir þurfa. Þessu hafnar Ingþór Karl Eiríksson fjársýslustjóri. „Við fór- um yfir málið í kjölfar þessara ummæla og getum ekki séð að nein mistök hafi verið gerð. Við greiðum rekstrarfé í samræmi við þær fjárheimildir sem til staðar eru og höfum ekki heimild til að greiða fé umfram þær heimildir.“ Ingþór segir að ef greiða ætti fé til framhaldsskólanna umfram heimildir, þá væri það ákvörðun fjármála- og menntamálaráðu- neytisins. „Við höfum ekki heim- ildir til að bregðast við vanda framhaldsskólanna án fyrirmæla frá ráðuneytunum,“ segir hann. Ósammála um mistök 246 MILLJÓNA HALLI

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.