Morgunblaðið - 25.05.2016, Page 24
24 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2016
✝ Sigurður Sig-urðsson fædd-
ist í Reykjavík 17.
júní 1945. Hann lést
24. apríl 2016.
Foreldrar hans
voru Gíslína Guðný
Sigurðardóttir,
fædd 14. október
1927, og Leo Hal-
ley, fæddur 1923.
Eiginmaður Gíslínu
var Benedikt Odds-
son, fæddur 14. júní 1913, dáinn
1. maí 1970. Börn þeirra eru:
Borgar, Ólafur, Benedikt, Sig-
ríður, Guðrún, Ragnhildur og
Kristín.
Sambýliskona Sigurðar var
Ragnheiður Þorkelsdóttir, fædd
23. maí 1948. Sonur
þeirra er Sigurður
Gísli, fæddur 7. júní
1984. Barn Sig-
urðar Gísla og
Grétu Vilhjálms-
dóttur, fædd 27.
júní 1983, er
Thelma Lind Sig-
urðardóttir, fædd
7. febrúar 2005.
Börn hans með
Anítu Töru Helga-
dóttur, fædd 15. maí 1987, eru,
Aþena Kiddý, fædd 1. desember
2007, Helgi Fannar, fæddur 29.
desember 2008, og Sylvía Rós,
fædd 15. ágúst 2013.
Jarðarför Sigurðar hefur far-
ið fram í kyrrþey.
Okkur langar að minnast
bróður okkar Sigurðar Sigurðs-
sonar, eða Didda eins og hann
var alltaf kallaður.
Þrátt fyrir að alast ekki upp
saman hittum við hann af og til
og fylgdust með honum í gegn
um lífið. Diddi stundaði aðallega
sjómennsku á yngri árum og síð-
an starfaði hann við fiskvinnslu
og ýmis önnur störf.
Ljósið í lífi hans var einkason-
urinn, Sigurður Gísli.
Hann var afar stoltur af hon-
um og afabörnunum sínum. Eft-
ir að heilsunni hrakaði dvaldi
hann á sjúkrahúsum og síðast
liðið ár var hann á Hrafnistu í
Hafnarfirði og naut þar góðrar
umönnunar sem við viljum
þakka sérstaklega fyrir.
Í grenndinni veit ég um vin, sem ég á,
í víðáttu stórborgarinnar.
En dagarnir æða mér óðfluga frá
og árin án vitundar minnar.
Og yfir til vinarins aldrei ég fer
enda í kappi við tímann.
Sjálfsagt þó veit hann ég vinur hans
er,
því viðtöl við áttum í símann.
En yngri vorum við vinirnir þá,
af vinnunni þreyttir nú erum.
Hégómans takmarki hugðumst við ná
og hóflausan lífróður rérum.
„Ég hringi á morgun, ég hugsaði þá,
„svo hug minn fái hann skilið,
en morgundagurinn endaði á
að ennþá jókst milli’ okkar bilið.
Dapurleg skilaboð dag einn ég fékk,
að dáinn sé vinurinn kæri.
Ég óskaði þess, er að gröf hans ég
gekk,
að í grenndinni ennþá hann væri.
Sjálfur, ef vin þú átt góðan í grennd
gleymdu’ ekki, hvað sem á dynur,
að albesta sending af himnunum send
er sannur og einlægur vinur.
(Höf. ók. Þýð. Sig. Jónsson)
Fyrir hönd systkina,
Sigríður Benediktsdóttir.
Elsku Diddi.
Mig langar að minnast þín í
fáeinum orðum.
Þó leiðir okkar hafi ekki legið
saman undanfarin ár, þá var ég
þeirrar ánægju aðnjótandi að
eiga við þig samvistir sl. ár, og
þótti mér mjög vænt um það,
sérstaklega eftir að þú fluttist að
Hrafnistu í Hafnarfirði.
Það er skrýtin tilfinning að
mæta þér ekki á ganginum á
leiðinni til þinnar heittelskuðu
Ragnheiðar og geta aðeins
spjallað og grínast við þig eins
og við gerðum svo oft.
Sjúkdómurinn þinn gerði það
að verkum að minnið var farið
að bila, en það setti ekki strik í
reikninginn hvað samskipti okk-
ar varðar.
Oftar en ekki fórum við að
heimsækja Ragnheiði á Grensás
þar sem hún dvaldi löngum, en
síðar á Vífilstaði, og að lokum
var hún komin til þín á Hrafn-
Sigurður
Sigurðsson
Elsku mamma
mín. Þú talaðir
stundum um það að
þú myndir fara snemma, en að
það yrði svona snemma grunaði
mann ekki, aðeins 68 ára sem er
enginn aldur.
Og einmitt þegar þið pabbi
ætluðuð að fara að hætta að
vinna og fara að njóta lífsins
sem þið áttuð svo sannarlega
skilið því þið tvö hafið alltaf unn-
ið mikið.
Og einnig hefur margt verið
að gera hjá ykkur í sambandi við
okkur fimm systkinin og barna-
börnin, því elsku mamma mín,
þið pabbi hafið gert svo margt
fyrir okkur öll, og sérstaklega
hefur þú verið mér og börnunum
mínum innan handar eftir að ég
varð ein með þau.
Sigurlaug Jóhanna
Bergvinsdóttir
✝ Sigurlaug Jó-hanna Berg-
vinsdóttir fæddist
22. september
1947. Hún lést 25.
apríl 2016.
Útför Sigurlaug-
ar fór fram 29. apr-
íl 2016.
Nú er enginn til
að hjálpa mér með
ýmislegt sem ég gat
alltaf treyst á að þú
myndir aðstoða mig
með, til dæmis
héldum við Katrín
Dögg báðar upp á
útskriftarveislurnar
okkar heima hjá
ykkur pabba.
Eins aðstoðaðir
þú mikið með því að
bjóða okkur í mat, gaukaðir
ýmsu bæði að mér og börnunum
mínum, krakkarnir mínir gistu
svo oft hjá ykkur pabba og einn-
ig skutlaðir þú þeim mikið því ég
var svo oft að vinna á nóttunni.
Aprílmánuður í fyrra var mik-
ill gleðimánuður hjá mér því þá
fékk ég leigubílaleyfið og enginn
samgladdist mér eins mikið og
þú.
Nú í apríl, ári seinna, þá er
bara sorg. Elsku mamma mín,
það er svo margt sem ég gæti
þakkað þér fyrir en Mogginn
þinn rúmar það ekki allt.
Ég vildi bara óska þess að ég
hefði hitt þig einu sinni á lífi í
þessum mánuði en því miður þá
trassaði ég það að heimsækja
ykkur.
En það huggar mig þó að ég
var þó á leiðinni til þín daginn
sem þú fórst á sjúkrahúsið, þú
varst einmitt að elda fyrir mig
þegar þú fórst að finna til. Elsku
mamma mín, þakka þér kærlega
fyrir allt sem þú gerðir fyrir mig
og börnin mín, við elskum þig
óendanlega mikið og söknum þín
endalaust. Þín dóttir,
Arnbjörg Ólafía.
Elsku yndislega, amma mín.
Ég á engin orð yfir hvað ég er
þakklát fyrir þig og ég tel mig
og alla sem þekktu þig svo óend-
anlega heppin að hafa fengið þau
forréttindi að kynnast þér. Þú
varst alltaf svo góð við allt og
alla og vildir öllum það besta.
Maður gat talað við þig um
allt og þú reyndir alltaf með
brosi að hjálpa.
Þú fluttir oft en náðir samt að
gera hverja einustu íbúð svo
heimilislega og þægilega og
manni líður alltaf vel heima hjá
þér og afa.
Söknuðurinn er mikill en
minningarnar lifa og þær eru
svo margar og ómetanlegar.
Elska þig og sakna þín ótrúlega
mikið, en ég veit að þú verður
alltaf hjá mér.
Þín ömmustelpa,
Karen Sif.
Örfá fátækleg orð frá okkur
Maríu við andlát kærrar vinkonu
og velgjörðarkonu í okkar garð í
hart nær hálfa öld. Við María
vorum eins og gengur að rugla
saman reytum okkar á árinu
1968 í Hveragerði þegar við
kynntumst Sigurlaugu og Sveini
sem höfðu hafið búskap þar.
Við fengum við og við að gæta
elstu dótturinnar, Sólveigar, og
svo tóku við skemmtilegar sam-
verustundir við spilamennsku.
Þær stundir áttu eftir að verða
margar á komandi árum og var
oft spilað fram á rauða nótt.
Ekki síst var gaman að koma
til þeirra Sigurlaugar og Sveins
austur á Hérað á meðan þau
bjuggu þar.
Þangað komum við nokkrum
sinnum ásamt börnum okkar og
nutum gestrisni og hlýju þeirra
hjóna í okkar garð.
Börnunum fjölgaði eftir því
sem árin liðu og þau fylgdust
með þegar foreldrarnir gripu í
spilin.
HINSTA KVEÐJA
Sigurlaug er frábær
amma, alltaf glöð og
skemmtileg, sér aðeins það
besta í fólki og hún er besti
bakari í heimi.
Björn Ingi Helgason.
Síðasta skiptið
sem ég fékk að sjá
fallega andlitið þitt
var mér einstök
stund.
Ég er ánægður að hafa fengið
að fylgja þér alla leið og að hafa
fengið að vera hjá þér þessar síð-
ustu vikur og náð að spjalla við þig
er eitthvað sem ég mun alltaf
halda í og muna. Minningar okkar
eru með mér á hverjum degi og
röddin þín líka. Þú kenndir mér
svo margt í gegnum allt mitt líf.
Þú fékkst að sjá mig vaxa í rúm
22 ár og sagðir mér oft hvað ég
Signý
Magnúsdóttir
✝ Signý Magn-úsdóttir fæddist
20. janúar 1948. Hún
lést 7. apríl 2016.
Útför Signýjar
fór fram 18. apríl
2016.
væri flottur og náðir
alltaf að hressa mig
með fallegum orð-
um. Gleymi aldrei
þeim sumartímum
sem ég var hjá
ömmu og afa á
Skagaströnd. Og
það er alls ekki
langt síðan við eydd-
um góðum stundum
saman. Þú hlustaðir
alltaf þegar ég hafði
eitthvað að segja og varst yfirleitt
alltaf sammála mér, sama hvað ég
sagði. Alltaf skal ég hugsa um það
góða sem við áttum þrátt fyrir erf-
iða tíma sem eru. Ég held fast í allt
sem þú kenndir mér og sagðir.
Góða ferð hvert sem þú ferð og
skilaðu kveðju til afa. Ég elska
þig, amma Signý.
Kveðja, þinn
Róbert Freyr.
Elskuleg eiginkona, móðir, tengdamóðir,
amma, systir og mágkona,
HELGA STEINGRÍMSDÓTTIR,
Miðvangi 17, Hafnarfirði,
lést á hjúkrunarheimilinu Sólvangi í
Hafnarfirði 5. maí sl. Útförin hefur farið
fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Sólvangs í Hafnarfirði
sem sinnti henni af einstakri hlýju og alúð.
.
Hallgrímur Pétursson,
Steingrímur Hallgrímsson, Virginija Galinyté,
Guðrún Hallgrímsdóttir,
Guðmundur St. Steingrímsson, Helga Benediktsdóttir
og barnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar,
fósturfaðir, tengdafaðir og afi,
BALDUR KJARTANSSON
húsasmíðameistari,
Mánabraut 10, Kópavogi,
lést á Landspítalanum Fossvogi fimmtu-
daginn 5. maí. Útförin hefur farið fram.
Þökkum auðsýnda samúð.
.
Soffía Emilía Richter,
Haraldur Baldursson,
Kristín Baldursdóttir, Eric Romine,
María Kristbjörg Ingvarsdóttir,
Gunnar Víðir Ingvarsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Faðir okkar og tengdafaðir,
ÁSMUNDUR ÓLAFSSON
húsasmíðameistari,
lést á hjúkrunarheimilinu Ási, Hveragerði,
laugardaginn 21. maí. Útför hans fer fram
frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn
27. maí kl. 15.
.
Auður Björk Ásmundsdóttir, Sighvatur Karlsson,
Stígrún Ása Ásmundsdóttir,
Ólafur Ásmundsson, Áslaug Óskarsdóttir,
Jakob Ásmundsson, Rebekka Cordova,
Þorgerður Ásmundsdóttir.
Ástkær dóttir mín, eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma,
HULDA ÁSGRÍMSDÓTTIR
frá Stóru-Ökrum 2,
lést á Heilbrigðisstofnun Norðurlands á
Sauðárkróki föstudaginn 13. maí 2016.
Útförin fer fram frá Miklabæjarkirkju laugardaginn 28. maí kl. 14.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á Gjafasjóð endurhæfingar
Heilbrigðisstofunarinnar á Sauðárkóki.
.
Ragnhildur Lúðvíksdóttir
Jón Sigurðsson
Ragnhildur Jónsdóttir Agnar Gíslason
Anna Hlín Jónsdóttir Magnús Barðdal
Óskar Már Jónsson Guðrún Eik Skúladóttir
barnabörn
Elskuleg faðir okkar og afi,
PÉTUR SIGURJÓNSSON
forstjóri,
andaðist á hjúkrunarheimilinu Droplaugar-
stöðum þann 16. maí.
Útför hins látna fer fram frá Fossvogskirkju
fimmtudaginn 26. maí klukkan 13.
Þökkum öllum ættingjum og vinum, starfsfólki Droplaugarstaða
og Oddfellowbræðrum úr stúku númer 7, Þorkeli Mána, sýnda
samúð.
.
Börn, barnabörn og aðstandendur.
Hjartkær eiginmaður minn, faðir, tengda-
faðir, afi og langafi,
ÞRÁINN KARLSSON
leikari,
lést á Sjúkrahúsinu á Akureyri sunnu-
daginn 22. maí síðastliðinn. Útförin
fer fram frá Akureyrarkirkju mánudaginn 30. maí klukkan 13.30.
.
Ragnheiður Garðarsdóttir,
Rebekka Þráinsdóttir, Örlygur Benediktsson,
Hildigunnur Þráinsdóttir,
Kristín Konráðsdóttir, Ísleifur Karl Guðmundsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Þökkum af alhug auðsýnda samúð og
stuðning allan vegna andláts og útfarar
okkar elskulega
FRIÐRIKS JÚLÍUSAR
BJÖRGVINSSONAR
vélvirkja,
nemanda LbhÍ, Hvanneyri,
frá Núpi í Berufirði.
.
Björgvin R. Gunnarsson Vilborg Friðriksdóttir
Kolbrún Rós Katrín Birta
Hjörvar Freyr Helena Draumey
Linda Margrét Gunnarsdóttir
Friðrik Steinsson Ásta Lárusdóttir