Morgunblaðið - 25.05.2016, Page 26

Morgunblaðið - 25.05.2016, Page 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2016 Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Margrét Júlíana, frumkvöðull og eigandi fyrirtækisins Ro-samosi, fagnar í dag 43 ára afmæli sínu. Hún er menntuð íklassískum söng frá Royal Academy of Music í Lundúnum og býr í Hafnarfirði ásamt dóttur sinni, Þórdísi Áróru Due Kjart- ansdóttur, sem verður 9 ára í sumar. Þessa dagana er mikið fyrir stafni. Í næstu viku mun fyrirtækið hennar, Rosamosi, gefa út tölvuleikinn Mussila, sem gengur út á að kenna börnum grunnatriðin í nótnalestri og tónlist. Þetta er æv- intýralegur tónlistarleikur, ætlaður börnum á aldrinum 6 til 10 ára þar sem spilarinn tekst á við fjölbreyttar áskoranir með tónelskum skrímslum Mussila. Það vill svo til að meðeigandi Margrétar, Hilmar Þór Birgisson, varð þrítugur í gær þannig að nú er nokkurs konar afmælisvika hjá fyrirtækinu. Þrátt fyrir annríki verður dagurinn haldinn hátíðlegur. „Ég reyni alltaf að halda upp á daginn en það er misjafnt hve mik- inn tíma maður hefur til að gera eitthvað sniðugt. Í kvöld mun ég bjóða fjölskyldunni í mat,“ segir Margrét. Áhugamálin eru margvísleg. Hún hefur snúið sér aftur að tón- smíðum og vonast til að hefja upptökur þegar tími gefst. Auk tón- smíðanna eyðir Margrét frítíma sínum ýmist í listteikningu, góðra vina hópi eða notalegri heilsulind. tfh@mbl.is Mæðgin Margrét Júlíana ásamt dóttur sinni, Þórdísi. Allt á milljón vegna útgáfu og afmælis Margrét Júlíana Sigurðardóttir 43 ára A lbert fæddist í Reykjavík 25.5. 1976 og ólst þar upp í Breiðholtinu til sjö ára aldurs er fjöl- skyldan flutti til Eugene í Oregon í Bandaríkjunum þar sem foreldrar hans stunduðu nám í mark- aðsfræði. Heim komin brá fjölskyldan sér aftur í Breiðholtið og nú í Seljahverfi þar sem Albert eyddi unglingsárun- um. Hann var í Seljaskóla og lauk þaðan grunnskólaprófum, lauk stúd- entsprófum frá VÍ 1997, stundaði síð- an nám í viðskiptafræði við HÍ og lauk þaðan prófum 2003: „Það var svolítið menningarsjokk að koma úr friðsömum smábæ í Bandaríkjunum þar sem maður lék sér í skógi og lækjum, og flytja í Seljahvefið. Það var svolítið róstursamara þar og meira um að vera en ágætt hverfi og góður skóli sem þá a.m.k. var fjöl- mennasti grunnskóli landsins.“ Albert æfði og keppti í frjálsum íþróttum með skólanum sínum í Eu- gene frá átta ára aldri, æfði síðan með ÍR og keppti á mótum til 2004 er hann meiddist og lagði keppnisskóna á hilluna. Albert Þór Magnússon, umboðsaðili Lindex á Íslandi – 40 ára Fjölskyldan á ferðalagi Talið frá vinstri: Daníel Victor, Albert Þór, Magnús Valur, Lóa Dagbjört og Anna Sóley. Með áhuga á flugvélum, fleyjum og fögrum bílum Suður um höfin Albert Þór siglir inn í sólarlagið á suðrænum slóðum. Kópavogur Hjálmar Bjarni Krist- mannsson fæddist 21. maí 2015. Hann vó 1.604 g og var 42 cm langur. Foreldrar hans eru Bergrún Stef- ánsdóttir og Kristmann Hjálmarsson. Nýir borgarar Garðabær Brynja Dís Bjarkadóttir fæddist 28. febrúar 2016 kl. 12.24. Hún vó 3.530 g og var 51 cm að lengd. Foreldrar hennar eru Kristín Gunn- arsdóttir og Bjarki Páll Eysteinsson. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isbestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís Bez t á bo rgarann

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.