Morgunblaðið - 25.05.2016, Side 28

Morgunblaðið - 25.05.2016, Side 28
28 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MAÍ 2016 Rauðage rði 25 · 108 Rey kjavík · Sími 440 1800 · kaelitaekni.is Okkar þekking nýtist þér Verslunarkælar í miklu úrvali • Hillukælar • Tunnukælar • Kæli- & frystikistur • Afgreiðslukælar • Kæli- & frystiskápar • Hitaskápar ofl. Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Spádómur hefur ræst. Aðalmálið er að vera með góðum vinum sem hægt er að treysta. Ef einhver myndi bara vilja borga þér fyrir frábæra sviðsframkomu þína og eldmóð. 20. apríl - 20. maí  Naut Láttu ekkert koma þér úr jafnvægi því fæstir hlutir eru þess virði. Brettu upp erm- arnar og taktu fram verkfæratöskuna. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú tekur hugsanlega upp á ein- hverju í dag sem vekur athygli yfirboðara á þér. Gakktu hreint til verks með djörfung og festu. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Gefðu börnunum meiri tíma, því fátt er yndislegra en að njóta samvista við þau. Einhver er brjálæðislega afbrýðisamur en þú kemst ekki að því fyrr en þú deilir góðum tíð- indum. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Treystu á sjálfan þig, varðandi framtíð þína. Líklegasta vandamálið tengist því að einhver er hrifinn af hugmynd og vill ekki hætta við framkvæmd hennar. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Sjálfselska og óeigingirni vega salt í sérhverju sambandi. Gefðu þér tíma til þess og sæktu orku í umhverfi þitt. 23. sept. - 22. okt.  Vog Til er rétt og röng aðferð við að gera hlutina en rétta aðferðin er ekki alltaf viðeig- andi. Að vera heltekinn og hvatvís er ekki allt- af til vansa. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er engu líkara en allir hlutir gangi upp hjá þér í dag. Er bókstaflega eng- inn að hlusta? Mundu, það þýðir ekkert að hrópa, heyrnin batnar ekki við það. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Það gengur ekki í augun á öllum að spreða fé á báða bóga. Bæði er maður manns gaman og svo skapast góð stemning þegar fjölskyldumeðlimir bera saman bækur sínar. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þig langar til að brjótast út úr viðj- um vanans. Góðu fréttirnar eru þær að núna veistu að minnsta kosti það sem þú veist og í dag er rétti tíminn til þess að nýta sér það. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Fólk kemur með lausnir fyrir þig – fólk sem veit nánast ekkert um vandamálið. Þú heldur að það gæti verið að grínast en öllu gamni fylgir einhver alvara. 19. feb. - 20. mars Fiskar Láttu ekki erfiðar minningar úr fortíð- inni standa í vegi fyrir þér, þegar þú hefst nú handa á nýrri öld. Farðu þér hægt því sjálfs- elska mundi leiða þig villur vega. Töluvert hefur verið ort um heim- sókn forsætisráðherra í Hvíta hús- ið. Ólafur Stefánsson orti: Orkuboltar uppi í Hrepp yrkja jörð og rækta kál; Ingi fór í óvænt skrepp við Obama að segja skál. 16 milljarða hótel byggt í Reykja- vík. Ármann Þorgrímsson yrkir: Seint mun botnlaus fata full. Flestir moka sandi. Enn er mikið álfagull í umferð hér á landi. Síðustu tíðindi í pólitík hafa orðið hagyrðingum að yrkisefni. Ármann Þorgrímsson kallar afturkomu Sig- mundar Davíðs „síðasta dans“ : Foringinn stígur við stokkinn og strýkur þriflegan skrokkinn öllu skal tjalda því áfram vill halda. Nú drepur hann Framsóknarflokkinn. Fía á Sandi er með á nótunum: Simbi virðist brattur, beinn brosandi og vænn á skrokkinn. En áhugi minn er ekki neinn á því hver mun leiða flokkinn. En hafði áður ort „í fýlukasti um daginn“: Áhugi minn upp er þorn- aður, fyrir RÚV og blöðum. Einbein og Tvíbein elta hvorn annan heim að Bessastöðum. Síðar um daginn bætti hún við: Ofurmenni í framboð fór fullt með valda áráttu. Davíð hann er sterkur stór stinnur mjög til baráttu. Sláttur byrjar snemma fyrir norðan, – Davíð Hjálmar Haralds- son yrkir: Nú er sól og sunnanátt, sveppir þorna á tánum. Um hádegisbil hóf ég slátt og hirði beint af ljánum. Páll Imsland heilsar leirliði á þöglum morgni (kannski eftir há- vært laugardagskvöld?): Hann Pjetur Jón prestur á Bakka paufast með fætur tvo skakka. Svo reigir hann haus að rekst hann í daus af harðsperrum stífum í hnakka. Sigurður H. Guðjónsson hrl. kenndi mér þessa stöku en Páll S. Pálsson honum: Hvað er að frétta? Hvað er að? Hvað hefur fyrir borið? Hefur einhver hálsbrotnað, hengt sig eða skorið? Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Af Framsókn, forsetafram- bjóðendum og álfagulli Í klípu „ÉG VIL LÍKA BORGA FYRIR KAFFIBOLLA GAURSINS FYRIR AFTAN MIG.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „MYNDIRÐU TRÚA ÞVÍ? ÉG ER BÚINN AÐ LEITA UM ALLAN BÆ AÐ BLÓMUM FYRIR ÞIG.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að finnast tíminn líða hægt þegar þið eruð ekki saman. BRÓÐIR HRÓLFUR, LEYFÐU MÉR AÐ BJARGA ÞÉR FRÁ EILÍFRI ÞJÁNINGU? HVENÆR VARÐ BRÓÐIR ÓLAFUR AÐ SKILNAÐARLÖGFRÆÐINGI? ÞETTA SKÝ LÍTUR ÚT EINS OG KJÖTHLEIFUR… HVERNIG ER VEÐRIÐ? OG ÞETTA LÍTUR ÚT EINS OG EPLABAKA GÓMSÆTTVíkverji hefur ekki oft heyrt fjallaðum suðurkóreskar bókmenntir og því var forvitni hans vakin þegar hann sá að rithöfundurinn Han Kang frá Suður-Kóreu hefði verið tilnefnd til alþjóðlegu Man Booker- verðlaunanna fyrir skáldsöguna Grænmetisætan. Bókin er furðuleg og óhugguleg. „Áður en konan mín varð grænmetisæta fannst mér hún alltaf fullkomlega óáhugaverð á allan hátt. Til að vera hreinskilinn laðaðist ég ekki einu sinni að henni þegar ég hitti hana í fyrsta skipti,“ segir í upp- hafi bókar og verður frásögnin æ skrítnari upp úr því. x x x Grænmetisætan mætir hvergiskilningi á ákvörðun sinni. Fjöl- skylda hennar og aðstandendur líta á hið nýja mataræði sem móðgun og hneyksli. Einn magnaðasti kafli bók- arinnar er þegar grænmetisætan fer með eiginmanni sínum til fjölskyldu sinnar og faðir hennar hyggst þvinga hana til að borða kjöt. x x x Fyrir rúmri viku var tilkynnt aðHan Kang hefði hlotið verðlaun- in. Hún er 45 ára gömul. Hún kennir skapandi skrif og er þekkt fyrir bækur sínar heima fyrir, en Græn- metisætan (The Vegetarian) er eina bók hennar, sem þýdd hefur verið á ensku. „Verkið fjallar um söguhetju, sem vill verða planta og segja skilið við mannkynið til þess að bjarga sér frá myrkrahlið mannlegs eðlis,“ sagði höfundurinn í samtali við fréttaveituna AFP eftir að tilkynnt hafði verið að bók hennar hefði orðið fyrir valinu. „Mér fannst að með þessari öfgakenndu frásögn gæti ég velt upp … þeirri erfiðu spurningu að vera mennskur.“ x x x Kórea á sér mikla bókmenntahefð.Kóreskar bókmenntir geta hins vegar að sögn sérfróðra verið tor- ræðar vegna menningarlegra vísana, sem Kóreumenn skilja, en eru öðr- um sem lokuð bók. Nú er komin fram ný kynslóð höfunda í Suður- Kóreu, sem er tilbúin að rjúfa hefð- irnar og gætu verðlaun Han opnað dyrnar fyrir alþjóðlegri útbreiðslu bóka þeirra. víkverji@mbl.is Víkverji Syngið Drottni þakkargjörð, leikið fyr- ir Guði vorum á gígju. (Sálm. 147:7)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.