Morgunblaðið - 30.05.2016, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2016
Þau voru skörp skilin á millitveggja hluta viðtalsþáttarins
Eyjunnar í gær. Í fyrri hlutanum
mættust
tveir for-
setafram-
bjóðendur
og áttu
huggulegt
spjall sem
skildi lítið eftir fyrir kjósendur. Í
seinni hlutanum mættust Davíð
Oddsson og Guðni Th. Jóhannesson
og þar var tekist á svo gagn var að
fyrir áhorfendur.
Davíð vakti athygli á því að Guðnihefði hlaupið frá skoðunum
sínum í nokkrum mikilvægum mál-
um. Eins og til að gæta samræmis
hljóp Guðni í þættinum frá því að
hafa hlaupið frá skoðunum sínum,
en lenti svo í miklum vandræðum og
reiddist verulega þegar farið var að
vitna í og lesa upp fyrri ummæli
hans um þorskastríðin, Icesave og
stjórnarskrárbreytingar.
En það er ekki nóg að reiðast ográðast á þann sem rifjar upp
það sem sagt hefur verið og vekur
athygli á misræmi í málflutningi.
Menn verða að gangast við því og út-
skýra það.
Guðni verður að útskýra það aðhafa beitt sér fyrir samþykkt
Icesave-samninga og hrætt lands-
menn með því að annars gæti ein-
angrun eins og hjá Norður-Kóreu
verið það sem biði okkar, hann verð-
ur að gangast við því að hafa af óút-
skýrðum ástæðum viljað kollvarpa
stjórnarskránni í kjölfar falls bank-
anna og að hafa gert lítið úr þeim af-
rekum sem unnin voru í þorskastríð-
unum.
Fólk á skilið að vita hvar það hef-ur forseta sinn og þess vegna
mega forsetaframbjóðendur ekki
hagræða orðum sínum svo þau
hljómi vel í kosningabaráttu.
Hlaupist undan
eigin orðum
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 29.5., kl. 18.00
Reykjavík 10 rigning
Bolungarvík 10 skýjað
Akureyri 9 skýjað
Nuuk 2 skýjað
Þórshöfn 9 léttskýjað
Ósló 12 rigning
Kaupmannahöfn 22 skýjað
Stokkhólmur 16 léttskýjað
Helsinki 18 léttskýjað
Lúxemborg 19 skýjað
Brussel 18 súld
Dublin 17 léttskýjað
Glasgow 17 léttskýjað
London 19 skýjað
París 17 rigning
Amsterdam 18 rigning
Hamborg 20 léttskýjað
Berlín 27 léttskýjað
Vín 26 heiðskírt
Moskva 24 skýjað
Algarve 20 léttskýjað
Madríd 18 skýjað
Barcelona 23 léttskýjað
Mallorca 24 léttskýjað
Róm 23 léttskýjað
Aþena 28 heiðskírt
Winnipeg 16 skýjað
Montreal 17 alskýjað
New York 28 skýjað
Chicago 23 léttskýjað
Orlando 29 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
30. maí Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 3:26 23:26
ÍSAFJÖRÐUR 2:47 24:14
SIGLUFJÖRÐUR 2:28 23:59
DJÚPIVOGUR 2:46 23:05
Bíldshöfða 18 - 110 Reykjavík
sími: 557 9510 - www.patti.is
Opið virka daga kl. 10-18
ÍSLENSKIR SÓFAR SNIÐNIR AÐ ÞÍNUM ÞÖRFUM
MÁL OG ÁKLÆÐI AÐ EIGIN VALI
NÝ SENDING AF BORÐSTOFUHÚSGÖGNUM
Brynjólfur Svein-
bergsson, fv. mjólkur-
bússtjóri, andaðist á
Sjúkrahúsinu á
Hvammstanga að
kvöldi 25. maí sl.
Hann var fæddur á
Blönduósi 17. jan.
1934.
Brynjólfur nam
mjólkurfræði við
Meieris skole í Þránd-
heimi og útskrifaðist
þaðan 1955. Hann hóf
þá störf við mjólkur-
vinnslu á Selfossi, þar
til hann réðst að ný-
stofnaðri Mjólkurstöð KVH/
KFHB á Hvammstanga árið 1959.
Vann hann þar að öflugri upp-
byggingu allan sinn starfsaldur,
m.a. að ostagerð sem varð lands-
kunn undir heitinu „Hvamms-
tangaosturinn“. Hann lét þar af
störfum í árslok 1999, eftir 40 ára
farsælt starf.
Brynjólfur var mikill félags-
málamaður. Hann var
stofnfélagi í Tækni-
félagi mjólkuriðn-
aðarins og virtur inn-
an sinnar stéttar.
Hann tók virkan þátt
í uppbyggingu fyr-
irtækja á Hvamms-
tanga og stofnaði
m.a. Meleyri rækju-
verksmiðju og sauma-
stofuna Drífu. Brynj-
ólfur var varaþing-
maður fyrir Fram-
sóknarflokkinn, og
sat um árabil í
hreppsnefnd
Hvammstangahrepps, oftast sem
oddviti. Átti hann mestan heiður
af lagningu hitaveitu frá Laugar-
bakka til Hvammstanga árið 1972,
sem hann var alla tíð mjög stoltur
af.
Eftirlifandi eiginkona hans er
Brynja Bjarnadóttir, fædd árið
1942, ættuð úr Flóanum, og eign-
uðust þau þrjú börn.
Andlát
Brynjólfur Sveinbergsson
Benedikt Bóas
benedikt@mbl.is
Klara Bjartmarz, framkvæmdar-
stjóri KSÍ, var eftirlitsmaður
UEFA á úrslitaleik Meistaradeildar
kvenna á fimmtudag. Þetta er mikill
heiður fyrir Klöru og íslenska
knattspyrnu að hún skuli hafa verið
tilnefnd til þessara starfa. „Ég fékk
tilnefningu frá UEFA um mánuði
áður en leikurinn fór fram og vissi
að ég væri ein af þeim fáu sem
kæmu til greina. Í framhaldinu kom
svo staðfesting og þó að þessi tíma-
setning væri ekki góð var þetta
þannig verkefni að maður segir ekki
nei,“ segir Klara.
Hún stoppaði ekki lengi á Íslandi,
á laugardaginn fór hún aftur utan
til að fylgjast með undirbúning ís-
lenska landsliðsins í Noregi.
Í leiknum á fimmtudaginn mætt-
ust risarnir í kvennaknattspyrnu,
Wolfsburg og Lyon, og var leikið á
Città del Tricolore vellinum í Reg-
gio á Ítalíu. Lyon hafði betur eftir
vítaspyrnukeppni. Klara ber ábyrgð
á að leikurinn fari fram samkvæmt
öllum reglugerðum. „Ég er mætt
fimm dögum fyrir leik og sé til þess
að búningsklefar, öll þjónusta við
liðin og dómara og öll framkvæmd á
leiknum sé samkvæmt reglugerð-
um.“ Klara var ekki eini norræni
starfsmaður leiksins því öryggis-
stjórinn var frá Finnlandi og
dómaraeftirlitsmaðurinn var frá
Svíþjóð. „Við kölluðum okkur nor-
rænu klíkuna og höfðum gaman af.“
Horfir mikið á vellina
Klara reyndi að njóta leiksins þó í
mörg horn væri að líta en eitt vakti
sérstaka athygli hennar; sjálfur
völlurinn – Città del Tricolore í
Reggio – sem tekur um 20 þúsund
manns en KSÍ skoðar nú ýmsar
hugmyndir um hvernig best sé að
stækka Laugardalsvöllinn. „Nú
horfir maður svo mikið á vellina.
Þetta er flott stærð. Hann er reynd-
ar opinn í hornunum en rúmar 20
þúsund manns. Það var allt mjög
aðgengilegt, góðir búningsklefar,
mjög fínar aðstæður í kring og
skemmtileg stemmning á vellinum.“
„Þannig verkefni að
maður segir ekki nei“
Klara Bjartmarz var eftirlitsmaður
UEFA á úrslitaleik Meistaradeildar kvenna
Ljósmynd/Úr einkasafni
Á vellinum Klara á Città del Trico-
lore sem tekur um 20.000 manns.