Morgunblaðið - 30.05.2016, Page 17

Morgunblaðið - 30.05.2016, Page 17
17 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2016 Líkanið laðar að Feðgin virða fyrir sér Íslandskortið eða Íslandslíkanið í Ráðhúsi Reykjavíkur. Fjölmargir ferðamenn leggja leið sína í Ráðhúsið, meðal annars til að skoða Íslandskortið. Árni Sæberg Söfn eru góðir staðir til þess að varðveita sögu þjóðar. Þau skapa gjarnan samþjappað og notalegt umhverfi – eins konar útdrátt úr raunveruleikanum. Hlutgerðar minjar, svo sem amboð og áhöld, myndir, skrár og skýrslur, fela í sér og miðla fróðleik, jafnvel tæmandi, um ýmis svið þjóðlífs. Öðr- um sviðum verða ekki gerð skil með jafn skýrum hætti innan safnveggja þótt fráleitt séu mörkin á milli svið- anna klippt og skorin. Í umhverfi okkar er hins vegar urmull minja sem illt er að koma fyrir á hefðbundnu safni. Nefna má minjar um sjósókn og landbúnað, tvö mikilvæg svið íslensks þjóðlífs í aldanna rás, minjar um störf fyrri kynslóða, mörk sem þær hafa sett á umhverfi sitt. Sum verða varanleg en líklega eru þau þó fleiri sem nátt- úruöflin með hjálp tímans má út hægt og bítandi: Tökum naust, varir og hróf, fjárborgir, fjárréttir, sel- stöður, akurgerði, áveitugarða og beðasléttur sem dæmi en líka gróðursamfélög í gömlum túnum, fornum engjateigum ellegar í aflögð- um matjurtagörðum – allt hlutar af því sem gjarnan er nefnt menningarlandslag, þ.e. landslag sem maðurinn með mennsku sinni hefur mótað eða sett mark sitt á. Á söfnum varðveitum við áhöld og muni sem mennskunni, nýtingar- brögðunum, tilheyrðu. Þar segja þeir þó oft aðeins hluta sögunnar ef ekki er hugað að heildarsamhengi hennar. Um er að ræða samspil þátta sem tákna má á eftirfarandi hátt; láttu þér ekki bregða þótt ég setji fram dálitla formúlu: Gripur x Verkþekking x Menn- ingarlandslag = Heildstæð minja- sýn Ég viðurkenni að þetta er senni- lega dálítið uppskrúfað og tilgerðar- legt hjá mér; ég skal því reyna að skýra framsetningu mína með dæmi: 1. Í Landbúnaðarsafni Íslands á Hvanneyri eru nokkrir gripir sem tengjast mjöltum og mjólkurvinnslu fyrri tíðar – rétt eins og í flestum byggðasöfnum landsins. Þar standa gripirnir sem misjafn- lega lýsandi dæmi um þjóðhætti fyrri tíðar, þó ærið oft sem dauðir hlutir lítt talandi til nú- tímans. 2. Urmull skriflegra lýsinga á verkþekking- unni, sem gripunum tengdist, er til; þekk- ingunni á því hvernig mjólkin, helsta hráefni daglegrar fæðu okkar Íslendinga í aldanna rás, var unnin og hvernig verkum var hagað, sömu- leiðis allri hirðingu kvikfjárins sem mjólkað var. Líka eru til ljósmyndir, hljóðritaðar frásagnir heimildar- manna, svo og kvikmyndir. Þannig er verkþekkingin skráð í veigamikl- um greinum. Miðlunartækni nú- tímans hefur ótal ráð til áhrifamik- illar framsetningar á henni. 3. Kemur þá að þriðja lið formúl- unnar, menningarlandslaginu, merkjunum um það hvernig menn- irnir bjuggu um sig í landinu/ umhverfi sínu. Menningarlandslag verður aðeins að litlu leyti fært inn á hefðbundið safn. Það nýtur sín best og í skýrustu samhengi þar sem það er að finna. Í dæminu sem hér var tekið væri um að ræða kvíar, stekki, selstöður o.fl., þ.e. mannvirkjaleifar en líka umhverfi þeirra svo sem landslag, gróðurfar/beitarkosti, vatnsból, fararleiðir, afstöðu til veðra og vinda ... Ef til vill er framsetning mín ekki nægilega skýr enn. Til þess að varpa gleggra ljósi á tengsl safna og menn- ingarlandslags rek ég nýlega sögu úr eigin upplifun: Um síðustu páska rakst ég á all- skýra tóft í haganum sunnan við byggðina á Hvanneyri, þar sem heit- ir suður í Landi. Þar má finna ýmsar minjar um fyrri búskaparhætti en á þessa tóft hafði ég satt að segja ekki rekist fyrr. Nokkrum dögum seinna skoðaði ég tóftina því nánar, og þá með aðstoð tveggja ungra nágranna, þeirra Arons Bjarna Ísgeirssonar og Guðmundar Braga Borgarssonar, nemenda í Grunnskóla Borgarfjarð- ar á Hvanneyri. Við leiðangurs- mennirnir mældum tóftina, hnitsett- um hana og ljósmynduðum sem best við gátum. Við skráðum allt vand- lega og bárum okkur að eins og al- vöru fræðingar um forneskju væru þar á ferð. Ég naut aldursmunarins við fé- laga mína, sem er liðlega sextíu ár, og taldi með vísun til reynslu áranna sennilegast, að lokinni athugun okk- ar, að þarna stæðu leifar af kví, all- stórri og vandaðri, líklega fyrir einar 35-40 kvíaær. Kvíin er efnismikil, með vænum steinum í hleðslu. Til hennar virðist því hafa verið vandað. Ég er ekki frá því að landið hafi lifnað í augum okkar þremenning- anna við þessa litlu athugun, landið sem við vorum oft búnir að fara um áður og virtist bara vera þúfur, klettar, sinubeðjur, mosi og vegar- slóði. Umhverfið lifnaði við það að við skynjuðum tengsl fólksins, landsins, gróðursins, búfjárins/kvía- ánna og áhaldanna, safngripanna – og hvernig allt þetta ófst saman í eina heild: Dagleg viðfangsefni og lífsafkomu löngu genginna kynslóða. Í ár er Alþjóðlegi safnadagurinn haldinn undir yfirskriftinni Söfn og menningarlandslag. Með henni er minnt á tengsl safna við umhverfi sitt, líkt og hér var tekið lítið dæmi um. Sérstaklega er átt við þá þætti umhverfis sem með einum eða öðr- um hætti eru mótaðir af manninum í daglegri iðju hans. Söfn eiga ekki að- eins að vera innhverf heldur líka að tengja safnkost sinn og starf umhverfinu bæði í félagslegu og efnislegu tilliti, allt eftir eðli safn- kostsins að sjálfsögðu, almenningi til hagsbóta og ánægjuauka. Ávinningurinn við eflingu tengsla safna við menningarlandslagið er nefnilega margþættur:  Meiri og heildstæðari skilning- ur safngesta á sögu þjóðarinnar – og þá hlutverki safnsins.  Efld umhverfisvitund almenn- ings, meiri umhverfisskilningur og hvati til þess að ganga vel um um- hverfið – lesa í það og varðveita.  Viðbótarvídd í náttúruskoðun almennings, heilsubætandi útivist og menntandi afþreying. Reglulega er bent á dæmi um menningarminjar sem eru í eyð- ingarhættu, t.d. nú strandminjar víða um land. Bættur skilningur al- mennings og stjórnvalda ríkis og sveitarfélaga á samhenginu sem hér hefur verið dregið fram er vís leið til þess að meira verði gert til varð- veislu minjanna, í skráningu og greiningu á þeim og til hagnýtingar í þágu framtíðar. Á því sviði hafa mörg íslensk söfn miklu hlutverki að gegna og mikið verk að vinna. Eftir Bjarna Guðmundsson » Í ár er Alþjóðlegi safnadagurinn hald- inn undir yfirskriftinni Söfn og menningar- landslag. Bjarni Guðmundsson Höfundur er forstöðumaður á Land- búnaðarsafni Íslands. Söfn og menningarlandslag Safnið Þeir Guðmundur Bragi Borgarsson með mjólkurfötuna og Aron Bjarni Ísgeirsson við bullustrokkinn. Strokkur af yngri gerð fyrir framan. Ljósmyndir/Bjarni Guðmundsson Kvíin Kvíartóftin, 8x1,9 m að innanmáli, undir þykkum sinufeldi. Hvíta lín- an hefur verið dregin til þess að marka lauslega útlínur kvíarinnar.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.