Morgunblaðið - 30.05.2016, Side 24
24 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2016
Garðsláttuvélar
í miklu úrvali
Mikið og fjölbreytt úrval garðsláttuvéla
* Sláttuvélar með raf- eða bensínmótor
* Sláttuvélar með eða án grassafnara
* Sláttuvélar með eða án drifs
ÞÓR FH
Akureyri:
Lónsbakka
601 Akureyri
Sími 568-1555
Opnunartími:
Opið alla virka daga
frá kl 8:00 - 18:00
Lokað um helgar
Reykjavík:
Krókháls 16
110 Reykjavík
Sími 568-1500
Vefsíða og
netverslun:
www.thor.is
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Láttu ekki vini þína snúa á þig með
einhverju ómerkilegu bragði. Ef þú hins vegar
ert reikull í ráði þá fer margt úrskeiðis.
20. apríl - 20. maí
Naut Það er stundum best að halda sig til
hlés, þótt það kosti mistök hjá öðrum. Var-
astu að láta telja þig á eitthvað sem þú veist
innst inni að er ekki rétt fyrir þig.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Láttu ekki illa, þótt þér finnist dag-
skráin í dag mótuð af öðrum og lítið tillit tek-
ið til þinna þarfa. Þinn tími mun koma. Nýttu
tækifærið og prófaðu nýja hluti.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Það er allt í lagi að hlusta á ráð ann-
arra og hafa að leiðarljósi ef þú hlustar fyrst
og fremst á sjálfan þig. Farðu fínt í hlutina
þegar þú ræðir viðkvæm málefni.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þú ættir að fara þér hægar í að dæma
fólk. Heimsæktu listagallerí, listaverslun eða
listasafn til þess að svala áhuga þínum. Nú er
tækifærið til að víkka sjóndeildarhringinn.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Skrifaðu niður allt sem þú þarft að
gera og raðaðu svo verkefnunum eftir mik-
ilvægi þeirra. Afköstin munu koma þér á
óvart. Þú gætir séð tiltekið verkefni í nýju
ljósi.
23. sept. - 22. okt.
Vog Hafðu ekki áhyggjur ef þú nennir ekki að
vera framsækinn og uppfinningasamur í
vinnunni. Það eiga allir sína slæmu daga, þú
gerir betur næst.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Allt hefur sinn tíma, bæði starf
og leikur og að jafnaði gengur starfið fyrir.
Veldu nýjasta og mest spennandi kostinn,
jafnvel þótt þú sért ekki viss um að ráða við
hann.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Öðrum finnst þú sérlega glæsi-
leg/ur í dag. Nýttu tækifærið og berðu fram
spurningar sem brenna þér í brjósti. Barnsleg
einlægni þín er heillandi.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Allir litlu hlutirnir fara í þínar fín-
ustu, en ekki stóru vandamálin. Haltu þig við
raunveruleikann. Fallegt útsýni væri ánægju-
legt í dag, eitthvað til þess að láta sig hlakka
til.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Fegurðin er ekki hvað síst fólgin í
því sem lítið fer fyrir. Reyndu að aðskilja sjálf-
an þig frá því hvernig hlutverk þitt í sambandi
við aðra er skilgreint.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Þú ert óvenjuþrár í dag. Vertu þolin-
móð/ur og umburðarlynd/ur og mundu að
öðrum getur liðið eins gagnvart þér.
Það er mörg búmanns raunin.Páll Imsland heilsaði leirliði á
sæmilegum degi:
Það vildi til vestur í Dölum
eitt vorið á túnum og bölum,
að grasið allt brást þar
og grænt varla sást þar.
Þeir kenndu það þrálátum kölum.
Sigurlín Hermannsdóttir skil-
greindi limruna á Leirnum:
Limran er lífsglaður háttur
löngum er á henni sláttur.
Hún byrjar í glensi
og botnar í skensi
það er hennar megin og máttur.
Páll Imsland sagði skilgreiningu
Sigurlínar snjalla – „mér datt í því
samhengi í hug hin hliðin á málinu,
eins konar anti-skilgreining og er-
um við þá komin út í fílósófíu fárán-
leikans, sem er einmitt ein af höf-
uðdygðum limrunnar“:
Limran ef elur á ergi,
er uppfull af gremju og kergi,
er misheppnuð smíð
og mun alla tíð
munast sem allra mest hvergi.
Það er alltaf skemmtilegt þegar
hagyrðingar kasta fram vísum hver
af öðrum og skaðar ekki þótt efnið
sé lítilfjörlegt. Hjörleifur Jónsson
skrifaði „skortur“ á leirinn og bætti
síðan við:
Neglur andans nálgast skort
nagast inn að kviku.
Ég hef næstum ekkert ort
í eina’og hálfa viku.
Fía á Sandi bætti við:
Orð og pappír ætti að spara
aðhald bætir þjóðarhag.
Af því bara ætti ég bara
enga vísu að gera í dag.
Þá var röðin komin að Pétri Stef-
ánssyni:
Áður kvað ég uppá sport
í anda hress og kvikur.
Núna hef ég ekkert ort
í ærið margar vikur.
Ingólfur Ómar orti:
Færni hefur fróma skort
fjarri andans ríki.
Varla get ég vísu ort
vel svo öðrum líki.
Sigrún Haraldsdóttir spurði: „Er
hægt að toppa þetta?“
Ekki mikið af mér gef,
augað dreg í pung.
(þetta er nú með betri hortittum
finnst mér)
Sáralítið samið hef
síðan ég var ung.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Limran og fílósófía
fáránleikans
Í klípu
„MJÖG GÓÐ SJÓN. ÞÚ NÁÐIR MEIRA
AÐ SEGJA SÍMANÚMERINU MÍNU RÉTT.
HRINGDU Í MIG EF ÞÚ SÉRÐ HANA.“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÞETTA ER SKRÝTIÐ.
HJARTAÐ ÞITT STOPPAÐI.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að gera hlutina
saman.
NÁGRANNARNIR
VORU AÐ
KVARTA
AFTUR
ÉG GET EKKI
SUNGIÐ
HÆRRA!
ÆTLARÐU EKKI AÐ
SEGJA NEITT UM
STEIKINA ÞÍNA?
ÞAÐ ER EKKI
KURTEISI AÐ TALA OG
TYGGJA Á SAMA TÍMA
ÓKEI!
ÉG SKIL
FYRR EN!!
tygg
tygg
tygg
tygg
tyggtygg
tygg
tygg
tygg
t
yggtygg
tyggt
ygg
tygg
tyg
g
tyg
g
tygg
tyg
g
tygg
tygg tygg
tyggtyg
g
tygg
tygg
tygg
tygg
tygg tyggtygg
MJÁRRÍ
blaðagrein á dögunum sagði frá því
að neikvæð viðhorf ríktu hér á
landi gagnvart feitu fólki. Sam-
kvæmt könnun þekkja margir ein-
staklinga sem hefur verið strítt
vegna þyngdar sinnar. Þetta þykir
yfirvöldum heilbrigðismála slæm
þróun og á Vesturlöndum þykir
nauðsynlegt að berjast gegn fitu-
fordómum. Í Stundinni greindi frá
sextán ára stúlku sem býr við sára
fátækt og finnur af þeim sökum fyrir
fordómum jafnaldra sinna. Á netinu
má lesa um rannsókn sem leiðir í ljós
fordóma gagnvart konum með húð-
flúr. Svona mætti áfram telja og svo
sannarlega er ljótt og sárt þegar fólki
er ekki sýnd full virðing. En getur
verið að hugtakið fordómar sé ofnot-
að? Að ráðast á minnimáttar eða þá
sem eru á einhvern máta öðruvísi á
oft ekkert skylt við fordóma heldur
er fyrst og síðast að kunna ekki ein-
falda mannasiði, að mati Víkverja.
x x x
Og meira um fjölbreytileika mann-lífsins, sem er svo skemmti-
legur. Á vegum Reykjavíkurborgar
var haldin fjölmenningarhátíð sl.
laugardag, sem heppnaðist vel. Vík-
verji sækir annars í alþjóðagleðina
gjarnan á kvöldin þegar hann fer í
heita pottinn í Laugardalslauginni.
Sundlaugarnar eru eftirsóttir staðir
meðal erlendra ferðamanna sem fjöl-
menna þangað á kvöldin. Oft eru þar
Bandaríkjamenn, en líka Danir,
Bretar, Þjóðverjar og svo mætti
lengi áfram telja. Þarna hafa líka
stundum birst Indverjar, fólk með
framandi svip til dæmis frá Delí og
Mumbai, en í síðarnefndu borginni
búa um 14 milljónir. Eftir ferð til
Indlands fyrir nokkrum árum finnst
Víkverja gaman að rabba við fólk
þaðan og fá sýn þess á Íslandi sem er
svart ef Indland er hvítt.
x x x
Af öðrum svipmyndum úr mannlíf-inu þá finnst Víkverja gaman að
lesa um dúxa og dáðafólk sem nú er
að ljúka framhaldsskólanámi. Ungt
afreksfólk verðskuldar athygli enda
hefur það oft skemmtilega sýn á til-
veruna. Og verði væntingar þess að
veruleika þá verður ekki vandlifað á
Íslandi, þar sem annars ríkja óvissu-
tímar að sögn góðra manna. víkver-
ji@mbl.is
Víkverji
Fel Drottni vegu þína og treyst hon-
um, hann mun vel fyrir sjá.
(Davíðssálm. 37:5).