Morgunblaðið - 30.05.2016, Page 27

Morgunblaðið - 30.05.2016, Page 27
MENNING 27 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2016 Einsöngvarar úr Kammerkór Sel- tjarnarneskirkju koma fram á tón- leikum í kirkjunni í kvöld kl. 20. Á efnisskránni eru aríur, einsöngslög, dúettar og tríó allt frá barokk- tímabilinu til dagsins í dag, eftir m.a. Pergolesi, Bach, Strauss, Grieg, Puccini, Eyþór Stefánsson og Pál Ísólfsson. Flytjendur eru Guðrún Lóa Jónsdóttir, Halldóra Eyjólfsdóttir, Katla Björk Rann- versdóttir, Ólöf Guðrún Sigurð- ardóttir, Ragnhildur Dóra Þór- hallsdóttir, Salka Rún Sigurðar- dóttir, Sigþrúður Erla Arnardóttir, Snorri Valsson og Þóra Passauer. Meðleikari á tónleikunum er Re- nata Ivan píanóleikari. Tónleikarn- ir eru styrktir af Seltjarnarnesbæ og aðgangur er ókeypis. Tónleikar Kammerkórs Seltjarnarneskirkju í kvöld Raddir Hluti Kammerkórsins syngur á tónleikum kvöldsins. 5511200 | Hverfisgata 19 | leikhusid.is | midasala@leikhusid.is Í hjarta Hróa hattar (Stóra sviðið) Lau 4/6 kl. 19:30 78.sýn Lau 11/6 kl. 15:00 aukasýn Sun 5/6 kl. 19:30 79.sýn Lau 11/6 kl. 19:30 Lokasýn Sýningum lýkur í vor! Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 1/6 kl. 19:30 Ný sýning í hverri viku - Ekkert ákveðið fyrirfram! Mugison (Kassinn) Fim 2/6 kl. 20:30 Fös 10/6 kl. 20:30 Sun 19/6 kl. 20:30 Fös 3/6 kl. 20:30 Sun 12/6 kl. 20:30 Fim 23/6 kl. 20:30 Lau 4/6 kl. 20:30 Fim 16/6 kl. 20:30 Fös 24/6 kl. 20:30 Sun 5/6 kl. 20:30 Fös 17/6 kl. 20:30 Lau 25/6 kl. 20:30 Fim 9/6 kl. 20:30 Lau 18/6 kl. 20:30 Sun 26/6 kl. 20:30 Miðasala á mugison.com Play (Stóra sviðið) Þri 31/5 kl. 19:30 Listahátíð í Reykjavík Ekkert að óttast (Kassinn) Lau 4/6 kl. 19:30 Áhugaleiksýning ársins! DAVID FARR MAMMA MIA – „Stórkostlegt“ HA Kastljós. AUGLÝSING ÁRSINS – ★★★★ – M.G. Fbl. MAMMA MIA! (Stóra sviðið) Þri 31/5 kl. 20:00 Lau 11/6 kl. 20:00 Lau 25/6 kl. 20:00 Mið 1/6 kl. 20:00 Sun 12/6 kl. 20:00 Sun 26/6 kl. 20:00 Fim 2/6 kl. 20:00 Mið 15/6 kl. 20:00 Fös 9/9 kl. 20:00 Fös 3/6 kl. 20:00 Fim 16/6 kl. 20:00 Lau 10/9 kl. 20:00 Lau 4/6 kl. 20:00 Lau 18/6 kl. 20:00 Sun 11/9 kl. 20:00 Sun 5/6 kl. 20:00 Sun 19/6 kl. 20:00 Fös 16/9 kl. 20:00 Þri 7/6 kl. 20:00 Þri 21/6 kl. 20:00 Lau 17/9 kl. 20:00 Mið 8/6 kl. 20:00 Mið 22/6 kl. 20:00 Sun 18/9 kl. 20:00 Fim 9/6 kl. 20:00 Fim 23/6 kl. 20:00 Fös 23/9 kl. 20:00 Fös 10/6 kl. 20:00 Fös 24/6 kl. 20:00 Lau 24/9 kl. 20:00 Uppselt út leikárið! Sýningar haustsins komnar í sölu. Njála (Stóra sviðið) Fim 29/9 kl. 20:00 Mið 5/10 kl. 20:00 Mið 12/10 kl. 20:00 – með morgunkaffinu inn í rúmgott hús sitt og nær allt var fjarlægt af sviðinu til að undirstrika tómleikann í lífi hennar. Mikrófónar voru notaðir með skemmtilegum hætti í upphafi sýningar til að búa til leiklestrarstemningu sem vék þó fljótt fyrir flókinni framvindu og inn- lifun á sviðinu. Myndatökuvélar voru nýttar með snjöllum hætti til að miðla ástarfundum Maríu og Karls. Á forsendum verkanna Sýningarnar fimm sem rýnir sá í leikstjórn Ostermeier staðfesta hversu fær leikstjóri hann er. Óhætt er því að hvetja lesendur til að leggja leið sína í Schaubühne eigi þeir leið um Berlín. Styrkur Ostermeier felst ekki síst í því að nálgast ólík verk á þeirra forsendum þó hann leyfi sér oft á tíðum skemmtilega tilrauna- mennsku. Hann er blessunarlega ekki hræddur við innlifun leikara sinna og sterkar tilfinningar á svið- inu, sem virtist undantekning fremur en regla í þeim fimmtán sýningum sem greinarhöfundur sá. Vit fremur en tilfinningar Auk ofangreindra sýninga sá rýnir tvær uppfærslur í Schaubühne sem frumsýndar voru í upphafi þessa árs, þ.e. Móðurina eftir Bertolt Brecht sem byggist á samnefndri skáldsögu eftir Maxim Gorki í leikstjórn Peters Kleinert og  [um það bil] eftir Jonas Hassan Khemiri í leikstjórn Minu Sa- lehpour. Uppsetningin á Móðurinni var samstarfsverkefni við Ernst- Busch-leiklistarháskólann í Berlín, en leikstjóri sýningarinnar er prófessor við skólann og leikararnir allir nýút- skrifaðir fyrir utan reynsluboltann Ursulu Werner sem fór með titilhlut- verkið, en hún er á áttræðisaldri og var fastráðin við Maxim Gorki Thea- ter í samfleytt 35 ár. Hér var á ferð- inni kraftmikil sýning í hráu um- hverfi. Örfá borð voru nýtt með hugvitssamlegum hætti, m.a. sem krítartöflur við lestrarkennslu. Tón- list Hanns Eisler naut sín vel, en leik- arar munduðu rafmögnuð hljóðfæri sín af miklu öryggi og sungu án þess að vera of upptekin af fagurfræði radda sinna. Skemmtilegar voru fjöl- margar vísanir í samtímann, eins og þegar leikkonurnar beruðu brjóst sín í tilefni 1. maí göngu verksins til þess eins að láta minna sig á að sagan gerðist ekki í dag heldur fyrir hundr- að árum. Leikarar áttu það líka til að detta út úr hlutverkum sínum og fara t.d. að ræða leiktækni við Werner. Þó framvindan væri þannig sífellt brotin upp og markvisst reynt að höfða til vits áhorfenda fremur en tilfinninga tókst Werner engu að síður vel að miðla sársauka móður sem dregst inn í baráttu verkalýðsins fyrir bættum kjörum í því skyni að bjarga syni sín- um frá glötun en horfir þó eftir hon- um í dauðann. Áhrifamikið var eitt síðasta samtal þeirra í fangelsinu undir vökulu auga fangavarðarins. Hamstrar í hlaupahjóli Forvitnilegt var að sjá leikritið  [um það bil] tekið allt öðrum tökum en hérlendis, en Una Þorleifsdóttir leikstýrði verkinu hjá Þjóðleikhúsinu undir lok síðasta árs með afar eftir- minnilegum hætti. Í stað sjö leikara voru aðeins fjórir, tveir af hvoru kyni, sem túlkuðu ríflega tuttugu persónur verksins. Þegar gengið var í salinn sátu leikararnir hver í sínu horni við agnarsmá borð, uppáklæddir í jakka- fötum úr efni skreyttu hundraðdoll- araseðlum með risastóra hamstra- hausa og klipptu gullpappír í konfetti líkt og til að undirstrika að flestir hamast eins og hamstrar í hlaupahjóli við að vinna sér inn peninga í hinu kapítalísku samfélagi sem höfundur deilir á. Fyrir miðju sviði tróndi risastór, svartur hálfhnöttur sem í lokasen- unni reyndist vera efri hlutinn af risa- stórum, svörtum sparigrís, en tók óþarflega mikið pláss miðað við litla notkun. Vel virkaði að láta alla leikara verksins bregða sér í hlutverk betl- arans Péturs en ungur aldur leik- kvennanna tveggja virkaði fremur illa og gekk alls ekki upp í eintali sex- tugu konunnar sem hrinti fyrir bíl annarri konu sem fékk starfið henn- ar. Endinum var breytt og lokaeintal- inu m.a. sleppt, en við það datt botn- inn að stórum hluta úr verkinu. Eftir sat köld, smart og hröð sýning, sem skorti hins vegar þá tilfinningalegu dýpt og fínni blæbrigði sem frábær uppfærsla Unu bauð upp á. Að lokum fá stjórnendur Schau- bühne sérstakt hrós fyrir að sleppa ávallt hléi á sýningum, hvort sem þær eru hálfur annar klukkutími að lengd eða tæpir þrír tímar. Fyrir vikið næst heilsteyptari upplifun og betra tempó. Stjórnendur íslenskra leik- húsa mættu svo sannarlega horfa til þessa í auknum mæli. færs leikstjóra Ljósmynd/Arno Declair Í einrúmi Renato Schuch, Lore Stefanek, Nina Hoss, Mark Waschke og Stephanie Eidt í Bella Figura. Ljósmynd/Arno Declair Þjóðníðingur Christoph Gawenda í hlutverki Tómasar Stokkmann. Ljósmynd/Arno Declair Raddir Einföld umgjörð um mósaíkverkið Crave eftir Söruh Kane.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.