Morgunblaðið - 30.05.2016, Blaðsíða 29
MENNING 29
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MAÍ 2016
» San Francisco-ballettinn, undir stjórn HelgaTómassonar, frumsýndi á Listahátíð í Reykja-
vík í fyrradag sýninguna Hátindar á ferli Helga, í
Eldborgarsal Hörpu. Ljósmyndari Morgunblaðs-
ins leit inn á æfingu fyrr um daginn og myndaði
dansarana sem voru að vonum tignarlegir enda
ballettflokkurinn einn þeirra bestu í heimi.
Dansarar San Francisco-ballettsins tignarlegir á æfingu í Eldborg
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Töfrandi dans Á sýningu San Francisco-ballettsins var meðal annars sýnt verk eftir Helga Tómasson, Tríó, við tónlist eftir Pjotr Iljitsj Tsjaíkovskíj.
Afburðafærni Dansararnir heilluðu áhorfendur með frábærri danstækni.
Virtur Dansflokkurinn er þekktur fyrir óvenjumikla breidd og hæfni dans-
aranna, auk listrænnar sýnar sem hefur sett ný viðmið í ballettheiminum.
83 ára SF-ballettinn er elsti ballettflokkur Bandaríkjanna, stofnaður 1933.
Óskarsverð-
launaleikarinn
Colin Firth mun
fara með eitt af
aðalhlutverk-
unum í kvik-
myndinni Kursk
sem Thomas Vin-
terberg mun
leikstýra. Mynd-
in fjallar um það
er kjarnorkukafbáturinn Kúrsk
sökk niður á botn Barentshafs eftir
að eldflaug sprakk um borð í hon-
um árið 2000. Björgunartilraunir
báru ekki árangur og 188 fórust.
Firth leikur
í Kursk
Colin Firth
WARCRAFT 5, 7:30, 10
X-MEN APOCALYPSE 3D 7
ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 5:30
BAD NEIGHBORS 2 8,10
RATCHET & CLANK 5
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar