Morgunblaðið - 30.05.2016, Side 32
MÁNUDAGUR 30. MAÍ 151. DAGUR ÁRSINS 2016
VEÐUR » 8 www.mbl.is
5 6 9 1 1 0 0
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is
Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100
mbl.is: netfrett@mbl.is
Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR.
1. Skildu drenginn eftir í refsingarskyni
2. Drengur féll ofan í górillugryfju
3. Annie Mist ósátt við dómgæsluna
4. Dúxinn er þrítug móðir
»MEST LESIÐ Á mbl.is
FÓLK Í FRÉTTUM
Gallerí Fold stendur fyrir tvöföldu
uppboði í dag og á morgun kl. 18.
Ástæðan, skv. tilkynningu frá gall-
eríinu, er sú að óvenjumörg afbragðs-
verk hafa borist galleríinu undan-
farnar vikur. Fjöldi stórra verka
gömlu meistaranna verður boðinn
upp og ódýrari verk inn á milli. Af
verkum sem boðin verða upp má
nefna málverk eftir Barböru Árnason
sem kallast „Atvinnuvegirnir“ og er
það stærsta sem galleríinu hefur bor-
ist eftir listakonuna. Af fágætum
verkum má nefna vatnslitamynd eftir
Ásgrím Jónsson af Gunnari á Hlíðar-
enda og Kolskeggi bróður hans og
einnig verður boðið upp stórt mál-
verk af sjómönnum á línuveiðum eftir
Gunnlaug Scheving (sjá mynd) en
verk af því tagi hefur ekki komið í
sölu síðan árið 2012 og var þá slegið
á tæpar níu milljónir króna, skv. til-
kynningu.
Uppboð haldin tvo
daga í röð í Fold
Tilnefningar til Grímunnar - íslensku
sviðslistaverðlaunanna - verða kunn-
gjörðar í dag kl. 16.15 í Þjóðleik-
húskjallaranum. 65 verk voru skráð af
leikhúsum og sviðslista-
hópum í Grímuna í ár,
þar af sjö útvarpsverk,
sjö barnaleikhúsverk, 16
dansverk og 35 sviðs-
verk.
Fjórar valnefndir
starfa árið um kring á
vegum Grímunnar og
velja þær fimm ein-
staklinga eða verk í
hverjum verðlaunaflokki,
sem hljóta tilnefningu.
Verðlaunin verða veitt í
Þjóðleikhúsinu 13. júní.
Tilnefningar til Grím-
unnar kunngjörðar
Á þriðjudag Suðaustlæg átt, 5–10 m/s og skýjað með köflum víða
á landinu, dálítil væta vestast, en bjartviðri norðaustanlands. Hiti
víða 10 til 16 stig.
SPÁ KL. 12.00 Í DAG Hæg suðlæg eða breytileg átt eða hafgola.
Víða skýjað með köflum og líkur á síðdegisskúrum. Hiti yfirleitt 8
til 13 stig, en allt að 17 stigum inn til landsins.
VEÐUR
„Þetta var hreinn skandall
af okkar hálfu. Við vorum
ekki bara með unninn leik
heldur vorum við hreinlega
að rústa þeim. Vonleysið
skein úr augum leikmanna
Kielce og hafði gert það frá
því snemma leiks. En hvern-
ig við klúðruðum þessu er
hreinlega óskiljanlegt,“
sagði Aron Pálmarsson
meðal annars við Morgun-
blaðið eftir úrslitaleik
Meistaradeildarinnar. »1
„Hreinn skandall
af okkar hálfu“
Brottrekstur fyrirliða Þróttar, Halls
Hallssonar, í fyrri hálfleik setti svip
sinn á leik Þróttar og ÍBV í Pepsi-
deildinni í gær. Hallur fékk rauða
spjaldið á 38. mín-
útu í stöðunni 0:0
en honum og Dan-
anum Mikkel
Maigaard lenti þá
saman. Dómarinn,
Þóroddur Hjaltalín,
sneri baki í atvikið
en ákvörðunin var
líklega tekin út frá
því sem aðstoðar-
dómarinn, Hjalti Þór
Halldórsson, sá.
Eyjamenn gengu
á lagið í síðari
hálfleik og skor-
uðu þá eina mark
leiksins. »6
Brottrekstur fyrirliðans
setti svip á leikinn
KR-ingar unnu sinn annan leik í
Pepsi-deild karla í sumar þegar Valur
kom í heimsókn í Vesturbæinn í 6.
umferð í gærkvöldi. Með sigrinum fór
KR upp fyrir Val og er með 9 stig en
Valur er með 7 stig. Liðin hafa unnið
tvo leiki hvort um sig en Valur hefur
tapað þremur leikjum en KR aðeins
einum. Stjarnan er á toppnum með 11
stig og mætir Breiðabliki í kvöld. »2
Annar sigur KR-inga í
sumar kom gegn Val
ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR
Skannaðu
kóðann með
símanum þínum
og fylgstu með
veðrinu á
Sigurður Bogi Sævarsson
sbs@mbl.is
Nýtt 56 herbergja hótel að Laugar-
bakka í Miðfirði í Húnaþingi vestra
var opnað fyrir nokkrum dögum og
sér nú fyrir endann á fram-
kvæmdum þar sem gömlum heima-
vistarskóla hefur verið breytt í nú-
tímalegt hótel. „Við Hildur Ýr
Arnarsdóttir konan mín vorum hér
árið 1999 þegar hún annaðist rekst-
ur sumarhótels. Staðurinn heillaði
strax og tengdist draumi okkar um
að hefja eigin hótelrekstur. Við
kynntum málið fyrir forsvars-
mönnum Húnaþings vestra fyrir
nokkrum árum og þegar skólahaldi
hér var hætt voru byggingarnar
auglýstar til sölu. Þá sendum við inn
tilboð sem gengið var að,“ segir Örn
Arnarson, einn af eigendum hótels-
ins.
Nýtt hús innan útveggjanna
Laugarbakki, sem er skammt frá
Hvammstanga, er því sem næst á
miðri leiðinni milli Reykjavíkur og
Akureyrar. „Staðsetningin er góð og
hér eru miklir möguleikar í ferða-
þjónustu. Náttúran er mögnuð og
nefni ég þar til dæmis Hvítserk,
Kolugljúfur, Borgarvirki og selalátr-
in á Vatnsnesi. Það er því ýmislegt
skemmtilegt hægt að gera, en hér
hefur klárlega vantað heilsárshótel
með nútímaþægindum eins og nú er
komið,“ greinir Örn frá.
Að mörgu var að hyggja þegar
hafist var handa við framkvæmdir á
Laugarbakka síðastliðið haust „Það
má segja að innan útveggjanna hafi
verið byggt nýtt hús. Runólfur
Sigurðsson, arkitekt hjá Alhönnun á
Akranesi, kom með teikningar þar
sem stofur voru stúkaðar niður og
gerðar að stórum herbergjum rétt
eins og litlar vistarverurnar sem áð-
ur voru heimavist nemenda, meðan
hér var starfræktur skóli. Þá út-
bjuggum við hér rúmgóðan aukasal
og erum þá með þrjá sali að með-
töldu íþróttahúsinu. Í þeirri álmu,
þar sem kennslustofur voru, verða
stærstu herbergin, til dæmis tvær
fjörutíu fermetra brúðarsvítur. Þá
ætlum við að standsetja íþróttahúsið
og breyta í 2 – 300 manna ráð-
stefnusal. Búningsklefarnir nýtast
svo fyrir heitu pottana sem verða
hér utandyra,“ útskýrir Örn og nefn-
ir að síðustu matreiðsluna á hót-
elinu.
Hráefni úr héraði
„Kokkurinn Unnur Sigurrún
Kristleifsdóttir og Hildur konan mín
unnu saman á hóteli fyrir nokkrum
árum og í okkar huga var Unnur eini
matreiðslumaðurinn sem kom til
greina. Unnur er bæði konditor-
meistari og kokkur og verður frá-
bær í því að útbúa veitingar úr hrá-
efni úr héraði; svo sem lambakjöt,
silung úr vötnunum á Arnarvatns-
heiði, kanínukjöt af Vatnsnesinu og
rækjur úr vinnslunni á Hvamms-
tanga.“
Laugarbakki er á miðri leiðinni
Gömlum heima-
vistarskóla breytt
í þægindahótel
Morgunblaðið/Sigurður Bogi
Gestgjafar Örn Arnarson og Unnur Sigurrún Kristleifsdóttir í salarkynnum hótelsins glæsilega í Húnaþingi vestra.
Byggingarnar á Laugarbakka eru
alls um 4.000 fermetrar; reistar í
þremur áföngum á árunum 1970 til
1990. Þarna var starfræktur
grunnskóli fyrir sveitirnar í Vestur-
Húnavatnssýslu og fyrr á tíð var
þar mikill fjöldi barna. Svo breytt-
ist veruleikinn og í dag er allt
skólahaldið komið á Hvamms-
tanga. Því seldi sveitarfélagið
byggingarnar og nú er þar komið
fyrsta flokks hótel með salar-
kynnum og herbergjum sem eru
rúmgóð, falleg og sólrík.
Framkvæmdum á Laugarbakka
hefur alfarið verið sinnt af iðn-
aðarmönnum í Húnaþingi vestra.
Þetta er hópur 20-25 manna sem
sinnt hafa verkefninu af krafti
enda þurfti því að ljúka nú í sum-
arbyrjun. „Það segir sig sjálft að
svona verkefni kostar talsvert en
Landsbankinn hefur staðið þétt
við bakið á okkur með fjármögn-
unina,“ segir Örn. Bætir því svo við
að búið sé að máta áætlanir um
reksturinn við ýmsar sviðsmyndir
sem allar ganga upp – og bók-
unarstaðan fyrir sumarið sé góð.
Allar sviðsmyndir ganga upp
FYRSTA FLOKKS HÓTEL OG 4.000 FERMETRAR
Laugarbakki Hótelið er á fallegum
stað þaðan sem víðsýnt er yfir Miðfjörð.