Morgunblaðið - 02.06.2016, Síða 18

Morgunblaðið - 02.06.2016, Síða 18
18 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 É g hef alltaf þurft að hafa vand- ræðalega lítið fyrir hárinu á mér. Ég fæ alltaf mikið hrós fyrir fal- legt hár og mér finnst ég eiginlega ekki eiga það skilið, þar sem ég legg oftast mjög lítinn metnað í hárumhirðu eða greiðslu,“ segir Manuela Ósk Harð- ardóttir. Hún segist hafa tekið afdrifaríka ákvörðun 2013 þegar hún ákvað að hætta að lita á sér hárið. „Ég tók ákvörðun um að hætta að lita á mér hárið og lét minn lit vaxa fram. Það var ekki fyrr en í síðasta mánuði sem allur liturinn var vaxinn úr – og ég við- urkenni að ég finn mikinn mun, hvað hárið er heilbrigðara og ferskara,“ segir hún. Þegar Manuela er spurð út í sjampó og hárnæringu segist hún nýlega hafa uppgötv- að afbragðsvörur sem hún notar í hárið á sér. „Ég er nýbúin að uppgötva alveg dásam- legar hárvörur frá merkinu Davines. Ég held ég gæti varla lifað án þurrsjampósins frá þeim! Það er algjörlega það besta sem ég hef prófað, og ég hef prófað þau mörg enda alltaf á ferð og flugi og stundum ekki tími fyrir hárþvott og blástur,“ segir hún. Manuela segist einnig nota sjampóið frá Davines. „Ég er mjög hrifin af bláu næringunni þeirra líka. Ég nota mikið þurrsjampó og hárspreyið frá label M er frábært. Ég er ekki hrifin af olíum í hárið en ég elska „sea salt sprey“ á sumrin. Ég hef líka aðeins verið að prófa mig áfram með krullujárn, en sléttu- járn hef ég aldrei átt eða notað,“ segir hún. Þegar Manuela er spurð út í sitt uppá- haldskrullujárn nefnir hún ROD VS5 frá HH Simonsen. „Fyrir mér er það svona „must have“. Þegar Manuela er spurð út í það hversu oft hún þvoi á sér hárið í hverri viku segir hún það misjafnt. „Ef ég er að ferðast þá þvæ ég það sjaldnar en ætli ég sé ekki að þvo það svona annan hvern dag, undir venjulegum kring- umstæðum. Ég blæs hárið nán- ast alltaf ef það er blautt. Ég er ekki besta manneskjan í að gefa hártrix, en ég held að margir geri sér ekki grein fyrir því hvað góður hárbursti skiptir miklu máli, upp á að halda hárinu fallegu og heilbrigðu. Ég nota Mason Pearson- svínshárabursta og Wet Brush. Þeir fylgja mér við hvert fótmál.“ Hætti að lita hárið 2013 Manuela Ósk Harðardóttir fatahönnuður notar aldrei hárolíur í hárið og gætir þess vel að þvo það ekki of oft. Þá kemur þurrs- jampó eins og himnasending. Marta María | martamaria@mbl.is Manuela Ósk Harðardóttir. Bláa línan frá Davines fer vel með hárið á Ma- nuelu. Línan heitir Love. Manuela elskar þenn- an hárbursta. Þurrsjampóið frá Davines þykir mjög gott. BEAUTYBAR HEFUR OPNAÐ STÓRGLÆSILEGA VERSLUN Á BÍÓGANGI KRINGLUNNAR. 20% AFSLÁTTUR AF VÖLDUM VÖRUM Í TILEFNI OPNUNARINAR ALLT FYRIR ÚTLITIÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.