Morgunblaðið - 02.06.2016, Page 23
Þ
að getur líka verið ákaflega notalegt að fara í Nauthólsvík og þær allra
hörðustu stinga sér náttúrlega til sunds í Atlantshafinu.
Það fer þó enginn út í laug eða sjó nema að vera í einhverju sem hylur.
Sundbolatískan í ár er dálítið í anda áttunda áratugarins og minnir tölu-
vert á tískustraumana sem voru ríkjandi í Kaliforníu 1970 og eitthvað.
Brúnrauði liturinn kemur sterkur inn enda fer hann vel við sólbrúna húð. Þessi
brúnrauði sundbolur úr Lindex er afar heillandi en
hann er með mörgum böndum í bakið og er ákaflega
klæðilegur. Aðhaldslínan frá Speedo er líka að gera
nokkkuð góða hluti en sniðið á sundbolunum í þeirri
línu er framúrskarandi. Svarthvíti sundbolurinn kem-
ur líka einlitur en hann býr yfir þeim eiginleikum að
halda vel að sem flestum þykir flokkast sem kostur.
Þær sem eru með náttúrulegan bláan húðlit gætu
makað á sig sjálfbrúnkandi efnum til að líta ekki út fyrir
að vera látnar þegar þær komast loksins undir bert loft.
Autobronzant Tonique sjálfbrúnkandi olían frá Biot-
herm er nokkuð sem engin sólelskandi kona ætti að láta
framhjá sér fara. Þessi olía byggir upp húðlitinn smátt
og smátt án þess að viðkomandi verði appelsínugulur á
litinn. Frá Biotherm er einnig fáanleg Aqua-Gelée
Autobronzante serum fyrir andlit sem byggir upp brúnkuna í andlitinu. Þetta sjálf-
brúnkandi efni frískar upp á andlitið og leyfir náttúrulegri fegurð að skína í gegn.
Þegar í sundlaugina sjálfa er komið skiptir miklu máli að bera á sig sólarvörn til að
reyna að koma í veg fyrir að fólk skaði á sér húðina. Mikilvægast af öllu, þegar í sund-
laugina er komið, er að njóta lífsins. Leyfa vatninu að leika um líkamann og njóta þess að liggja á
sólbekk inn á milli og gera ekki neitt nema vera. Ef þú hefur ekki eirð í þér til að slappa af getur þú
hlustað á uppbyggilegt útvarpsefni af sarpi Rásar 1 eða lesið. Góðar stundir!
Bakaðu
þig í sólinni
Eitt það besta við íslenska sumarið, fyrir utan bjartar og
ljúfar sumarnætur, er þegar hitastigið fer í tveggja stafa
tölu sem gerir það að verkum að hægt er að baka sig í
sólinni við sundlaugar landsins.
Marta María | martamaria@mbl.is
Það jafnast fátt á við það að
skrúbba húðina með bursta og
sturtuspápu með Arnicu sem kem-
ur frá Weleda.
Þessi fæst í
Lindex.
Það er fátt betra en að
heimsækja sundlaugar
landins í sól og sumaryl.
Sundbolur
frá Speedo
með að-
haldi.
Getty Images/iStockphoto
Það eru mikil
áhrif frá átt-
unda ára-
tugnum í
sundbola-
tískunni í ár.
Biotherm Autobronzant Toni-
que er sjálfbrúnkandi olía.
Aquea-Gelée er frábært til að
byggja upp brúnku í andliti.
Getty Images/iStockphoto
Þessi sól-
gleraugu
fást í Sjáðu.
Arnicu sturtu-
sápan frá We-
leda gerir
hverja sund-
ferð ennþá
betri. Hún ilm-
ar ekki bara
vel heldur
mýkir húðina.
Frábært gelnaglalakk
Endist í allt að tvær vikur
Startpakkinn inniheldur allt til að
gera gelneglur heima
einstaklega einfalt
enginn þurrktími
LED lampi í startpakka
fullt af fallegum litum
SensatioNail.com
FIMMTUDAGUR 2. JÚNÍ 2016 MORGUNBLAÐIÐ 23