Víkurfréttir - 22.05.2003, Side 12
VÍKURFRÉTTAVIÐTALIÐ
Árni Sigfússon bæjarstjóri í Reykjanesbæ í viðtali
m«
Á sunnudaginn er eitt ár liðið síðan sveitarstjórnarkosningar voru haldnar þar sem Sjálfstæðisflokkurinn í Reykjanesbæ vann stórsigur og hreinan
meirihluta í bæjarstjórn. Til að stýra skútu Sjálfstæðismanna var fenginn reyndur skipstjóri sem ættaður er úr Vestmannaeyjum, Árni Sigfússon sem
varð bæjarstjóraefni Sjálfstæðismanna í kosningabaráttunni. Árni hefur nú starfað rétt tæplega eitt ár sem bæjarstjóri, en hann tók við starfinu í júní á
síðasta ári. í næstu tveimur tölublöðum Víkurfrétta verður viðtal við bæjarstjóra, auk þess sem fjallað verður um ýmis málefni bæjarins.
Aukin atvinnuuppbygging og betri ásýnd
Nú var Reykjanesbær töluvert
skuldsettur þcgar þú tókst við -
hvernig hefur gengið að ná
skuldum niður?
Reykjanesbær er skuldugur og
verkeíhi okkar er mikið frekar að
halda í horfi og til framtíðar að
horfa á möguleika til skulda-
lækkunar. Með þeim aðgerðum
sem við höfum farið í á þessu ári,
t.d. tengt fasteignafélagi og
breyttu skipulagi í rekstri þá sjá-
um við ffam á verulega skulda-
lækkun. Hinsvegar verða menn
að hafa í huga að hluti af þessu er
aukinn rekstrarkostnaður. Það
eru engin töfrabrögð í þessu og
við verðum að vinna okkur
skipulega og skynsamlega í
gegnum hlutina og ég tel að við
séum að gera það með þessu
móti.
Það eru miklar framkvæmdir í
gangi í bænum - er bærinn til-
búinn til í þessar framkvæmd-
ir?
Já það er mjög mikilvægt nýta
það tækifæri sem er núna. Við
erum að undirbúa atvinnusvæði í
Helguvík, ekki bara fyrir stál-
pípugerð heldur er verið að und-
irbúa allt atvinnusvæðið. Við það
fáum við efhi sem er mjög hag-
kvæmt að nýta nú. Ef við hugs-
uðum tvö ár fram í tímann þá
væri hagkvæmnin farin og ann-
aðhvort er að nýta tækifærið
núna og byggja upp eða líklega
aldrei. En aðalatriðið er að fyrst
og fremst eru þetta framkvæmdir
sem stuðla að aukinni atvinnu-
uppbyggingu og betri ásýnd og
umhverfi bæjar sem laðar að
íbúa. Um leið og við sköpum þá
atvinnuaðstöðu þá erum við að
skapa hér jákvætt umhverfi sem
íbúar viljum.
Umræða um að sameina Sand-
gerði, Gerðahrepp, Voga og
Reykjanesbæ hefur verið að
aukast upp á síðkastið - hvern-
ig líst þér á slíka sameiningu?
Mér líst mjög vel á slíka samein-
ingu. Ég tel mjög mikilvægt að
sveitarfélögin og sérstaklega
minni sveitarfélög skynji hag-
kvæmni þess að sameinast. Þau
þijú sveitarfélög sem sameinuð-
ust á sínum tíma eru best sett í
dag vegna sameiningarinnar. En
við verðum að vera reiðubúin að
opna fyrir fleirum, en með því
sköpum við raunverulega eitt at-
vinnusvæði, eitt þjónustusvæði,
tryggjum sambærileg gæði þjón-
ustu, tryggjum sama aðgang að
atvinnutækifærum og lækkum
stjómsýslukostnað.
Munt þú eitthvað beita þér í
þessu máli?
Ég er reiðubúinn til þess. Hins-
vegar finnst mér mjög mikilvægt
að minni sveitarfélögin hafi for-
ystu í málinu. Það er svo algengt
í svona málum ef að sá stærri
knýr á, þá þyki minni sveitarfé-
lögum vera um að ræða óþægi-
lega þrýsting. Þegar ég hef hitt
forystumenn sveitarfélaganna hef
ég látið þá skoðun mína í ljós að
ég teldi sameiningu mjög æski-
lega og til hagsbóta.
Heldurðu að það sé meiri um-
ræða meðal íbúa sveitarfélag-
anna heldur en þeirra sem sitja
við stjórnvölinn?
Já ég er nokkuð sannfærður um
að íbúamir ræða þetta meira og
velta þessu upp, en ég tel að
stjómendur sveitarfélaganna séu
varfærnari því ef þeir láta eitt-
hvað uppi þá em þeir að gefa yf-
irlýsingu.
Heyrst hefur gagnrýni frá
verktökum á Suðurnesjum
sem telja samninginn um end-
urgerð Hafnargötunnar þar
sem þeir hafa gagnrýnt að
samið hafi verið við örfáa að-
ila. Af hverju var verkið ekki
boðið út?
Þá er öllum slíkum gott að hug-
leiða að við emm með mjög hátt
stig atvinnuleysis á svæðinu. Við
vorum með á fimmta hundrað
manns atvinnulausa á vormánuð-
um. Það var mjög mikilvægt að
leita leiða til að tryggja að
heimamenn hefðu ákveðinn for-
gang í þessi verkefni. Þegar
Spjallað við talnameistara!
Arni Sigfússon bæjarstjóri situr á milli
þeirra Reyni Valbergssonar og
Guðmundar Kjartanssonar
endurskoðanda á bæjarstjórnarfundi í
Reykjanesbæ á þriðjudagskvöldið.
Nú er verið að hanna glæsilegt hús yfir Víkingaskipið fslending, sem mun í fyrsta lagi vera kynning á sögu menningarinnar til forna, siglingar forfeðranna til Grænlands
og Vesturheims. f öðru lagi verður Víkingaþorpið „hliðið" inn í landið sem iið í menningartengdri ferðaþjónustu, sem sýni og kynni þær söguslóðir og söfn á íslandi sem
bíða ferðamannsins. Naust íslendings mun hýsa víkingaskipið sjálft, söguslóðakynningu og ákveðna þætti úr sýningu Smithsonian safnsins um víkinga Norðursins. Með
staðsetningu sýningarinnar að Fitjum í Njarðvík, spölkorn frá leifsstöð og Reykjanesbrautinni og áherslunni á þessa þrjá þætti, er tryggt áhugavert „hlið" inn í hið sögu-
lega í landinu öllu.
margir verktakar á okkar mæli-
kvarða komu saman að þessu
verkefhi þá var mjög æskilegt að
leita samstarfs við þá. Að öðrum
kosti hefðu þessi verkefni allt
eins getað farið úr bænum og við
værum ekki að stuðla að því að
minnka atvinnuleysi á þessu
svæði.
Skilurðu gagnrýni verktak-
anna sem ekki voru í hópnum?
Já ég geri það. Þeir sem fá ekki
vilja vera í þeim hópi sem fær og
ég vona að gagnrýnin gangi ekki
út á það að hafa ekki fengið að
vera með. En ég tel að meginleið
okkar eigi að vera í gegnum út-
boð. En við þurfum að hafa þor
til að gera undantekningar á því
og þegar aðstæður voru eins og
ég var að lýsa þá þarf að bregðast
við og þá gerum við það þrátt
fyrir gagnrýni einhverra. Ég vil
bara að það komi fram að þeir
sem koma að þessu verkefhi eru
þaulreyndir i sambærilegum
verkefnum og hafa náð lægstu
útboðum inn í Reykjavík.
Einnig hefur það verið gagn-
rýnt að Reykjanesbær hafi lagt
áhaldahús bæjarins niður og
samið við fyrirtækið Nesprýði
um viðhald. Hverju svarar þú
þeirri gagnrýni?
Nú er rangt með farið. Það er
ekkert búið að semja við eitt fýr-
irtæki um viðhald. Ef við forum
aðeins yfir málið þá er það
þannig að við erum að horfa á
verkefni sem verið er að vinna
sem tengjast mikið því sem verk-
takar á svæðinu eru að vinna.
Veghefill er hér að slétta götur,
það er verið að ganga frá blóma-
beðum, smáverkefni sem tengjast
gatnagerð, hálkueyðing og fleiri
smærri verkefhi. Mjög mörg af
þessum verkum eru verkefhi sem
aðrir verktakar eru að sinna.
Breytingin á Ahaldahúsinu eða
Þjónustumiðstöðinni eru að við
kaupum þessa vinnu meira af
einkaaðilum og á móti skipu-
leggjum við þjónustuborð sem er
á okkar vegum. Þetta þjónustu-
borð er byggt á tíðnistýrðu við-
haldi og verkbeiðnum og að baki
hverri verkbeiðni eru skilgreind
verð og það er engin sjálfiaka í
vinnu hér og við fórum fram á
það að viðkomandi verktaki
sinnu hveiju verkefni. Nesprýði
er bara eitt af þessum fyrirtækj-
um sem vinna fyrir Reykjanesbæ
því það eru fjölmargir verktakar
og einstaklingar sem koma að
viðhaldi í bænum.
Síðari hluti
í næsta tölublaði Víkurfrétta
12
VlKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!