Víkurfréttir


Víkurfréttir - 22.05.2003, Qupperneq 16

Víkurfréttir - 22.05.2003, Qupperneq 16
KNATTSPYRNUKYNNING VF • KEFLAVÍK • NJARÐVÍK VeraKeflavíkurí 1. deild ekki löng Keflvíkingar voru að lcika feikna góða knattspyrnu á undirbún- ingstímabilinu. Þeir unnu hvert úrvalsdeildarliðið á fætur öðru og fyrir fram lítur út fyrir að vera liðsins í 1. deild verði stutt. Liðið er að leika mun skemmtilegrí bolta en í fyrra og er það ekki síst Milan Stefán Jankovic að þakka. Liðið er ungt að árum og meðalaldur liðsins undir 25 árum. Reynsluleysi liðsins er nokkuð cn liðið er það vel mannað að það ætti ekki að koma að sök. Mikið mun mæða á Stefáni Gíslasyni á miðjunni en hann er sá leikmaður sem þeir hefðu þurft í fyrra. Þá er ekki amalegt að Scott Ramsey sé genginn til liðs við félagið. Asamt þcim hafa Keflvíking- ar fengið Harald Axei Einars- son úr Víði og Einar Ottó Antonsson frá Selfossi. Þrír leikmenn hafa yiirgeflð liðið cn það eru Guðmundur Steinarsson, Haukur Ingi Guðnason og Jóhann Bene- diktsson. Eins og er lítur ekki út fyrir að liðið sakni þeirra mikið. Keflavík verður á toppnum í allt sumar cf liðið heldur áfram að leika þann bolta scm það hcfur verið að sýna. VF-spá: l.sæti SPJALL IUD ÞJALFARA Milan Stefán Jankovic er á sínu fyrsta tímabili með Keflavík. Liðið hefur verið að leika vel undir hans stjórn og er það mál manna að sjaldan hafl Kefla- vik leikið eins skemmtilega knattspyrnu og núna. Jankovic sagði í samtali við VF-sport að honum litist mjög vel á sumar- ið. „Eftir að hafa séð liðið leika í síðustu leikjum er ekki hægt ann- að en að vera bjartsýnn. Við höf- um verið að leika vei og vonandi höldum við því áfram”. Hann segist ekki vera hræddur þótt Keflvíkingum sé spáð mikilli velgengni í sumar en tók það þó fram að það gæti verið hættulegt sökum þess hve leikmennirnir eru ungir. „Við munum taka einn leik íyrir í einu og ef við spilum eins og við höfiim verið að spila sé ég okkur ekki tapa mörgum leikjum í sumar. Allir leikmenn liðsins verða að leggja sig fram. Allir leikir eru mikilvægir og því megum við litið misstíga okkur því það getur kostað mikið”. Jankovic segist mjög ánægður í Keflavík og segir hann að undan- farnir mánuðir hafi verið með þeim skemmtilegustu frá því hann kom til íslands. Hann segist ekki hafa lent í neinu vandamáli frá því hann kom, hvorki með leikmenn né stjórn og allir séu tilbúnir til að leggja sitt af mörk- um. „Það er gaman að vera hluti af liði þar sem allir leggja sig fram, bæði á æfingum og í leikj- um. Leikmenn liðsins eru með rosalegan karakter, liðið er að mestu skipað heimamönnum sem gerir umgjörðina i kringum liðið skemmtilegri og mun koma til með að hjálpa okkur í sumar”. Mikil barátta um líf í deildinni Uppgangur Njarðvíkurliðsins hefur verið ótrúlegur á rúmu einu ári. Liðið sem ætlaði aldrei að komast upp úr neðstu deild komst að Iokum upp á heldur óvenjulegan hátt með sameiningu Leift- urs og Dalvíkur. I fyrra kom Iiðið mjög á óvart með góðum leik í 2. deild og náði að tryggja sér sæti í 1. deild. Markmið liðsins í ár hlýtur að vera að halda sér uppi og í raun ekki hægt að gera meiri kröfur til liðsins. Þeir munu heygja mikla baráttu í neðri hlutanum og það sem mun hjálpa liðinu er hversu baráttugiaðir leikmenn liðsins eru. Þeir gefa sig í hvern leik og með fyrirliðann og baráttuhundinn Bjarna Sæmundsson á miðjunni ætti sú bar- átta að halda áfram. Þeir hafa fengið til liðs við sig þrjá spræka spilara, þá Jóhann Steinars- son, Martein Guðjónsson og HoIlendinginnArjan Kats en sá síöastnefndi hefur verið mjög öflugur í hægri bak- verðinum og er mikill styrkur fyrir liðið. Njarðvíkingar hafa þurft að sjá á eftir Sævari Gunnarssyni sem lék vel fyrir liðið í fyrra og þá mun Sverrir Þór Sverrisson sem var að láni frá Grindavík í fyrra ef- laust ekki leika með liðinu. Njarðvíkingar gætu komið á óvart en þeir verða þó fyrir neðan miðju, eflaust í barátt- unni um lífíð í 1. deild. VF-spá: 7. sæti SPJALL VIÐ ÞJÁLFARA Helgi Bogason hefur náð góðum árangri með Njarðvíkurliðið síðan hann tók við. Liðið leikur skemmtilegri knattspyrnu en áður og baráttan er allsráð- andi. Helgi sagði í samtali við Víkurfréttir að sumarið leggist vel í hann. „Við erum staðráðnir í að skemmta okkur vel á knatt- spymuvellinum í sumar og stan- da okkur vel. Hópurinn er svip- aður og í fyrra en við höfum samt séð á eftir sterkum leik- mönnum”, segir Helgi. Njarðvík- ingar töpuðu fyrsta leiknum í deildinni gegn Haukum frekar ósanngjamt og var hann að von- um ekki sáttur með það. „Ég er þræl fffll með tapið á móti Hauk- um. Við hentum frá okkur stig- um, hefði verið frekar óhress með jafntefli miðað við leikinn en tap var óþarft”. Helgi sagði að það væri eðlilegt að liðinu væri spáð neðarlega. „Við vorum neðstu deildarlið í apríl í fyrra eða fyrir 13 mánuðum síðan. Hópurinn er mjög svipaður og þegar menn voru að kljást í 3. deildinni og því erum við í raun óskrifað blað í efri deildum.” Hann segir eitt af markmiðum liðsins hljóti að vera áfram 1. deildar lið í haust. Aðspurður út í það hvaða lið hann teldi verða í baráttunni um sæti í úrvalsdeild sagði hann að sér kæmi það ekki óvart að Þór, Víkingur og Kefla- vík myndu bítast um tvö efstu sætin. 16 VÍKURFRÉTTIR Á NETINU www.vf.is LESTU NÝJUSTU FRÉTTIR DAGLEGA!

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.