Morgunblaðið - 04.07.2016, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 04.07.2016, Qupperneq 1
M Á N U D A G U R 4. J Ú L Í 2 0 1 6 Stofnað 1913  154. tölublað  104. árgangur  VANN FYRST KVENNA A-FLOKK Á LANDSMÓTI MADS OG MÆJA ERU SAMHENT VEITUM KONUM Á FLÓTTA BÆRILEGRA LÍF FIÐURFÉ OG FLEIRI SKEPNUR 12 SÖFNUNARÁTAK 26EYRÚN ÝR Á HÓLUM 11 Ævintýri íslenska landsliðsins í Evrópu- keppninni í knattspyrnu lauk í París í gær- kvöldi. Liðið tapaði 2:5 gegn Frakklandi í átta liða úrslitunum og heldur því heim á leið eftir frábæra frammistöðu, sem fáir höfðu séð fyrir. Þrátt fyrir úrslitin var þakklæti til strákanna ofarlega í huga fólks sem rætt var við í gærkvöldi. Á vellinum í París sungu hátt í tíu þúsund íslenskir áhorfendur allan leiktímann og löngu eftir að leiknum lauk. Víðs vegar um land safnaðist fólk saman og fylgdist með leiknum á stórum skjáum úti undir beru lofti. Flestir voru á Arnarhóli, þar sem stemningin var mikil. Í keppninni í Frakklandi gerði íslenska lið- ið jafntefli gegn Portúgal og Ungverjalandi og vann Austurríki og England áður en kom að leiknum gegn Frökkum í gær. Staðan í leikhléi var 4:0 en í síðari hálfleik skoruðu Kolbeinn Sigþórsson og Birkir Bjarnason fyr- ir íslenska liðið, sem skoraði í öllum leikjum sínum. Leikurinn í gær var síðasti leikur Lars Lagerbäck sem landsliðsþjálfara. „Takk fyrir, strákar, við erum ótrúlega stolt af ykkur,“ sögðu viðmælendur blaðsins á Rútstúni í Kópavogi í gærkvöldi. „Það er búið að vera gaman í þrjár vikur,“ sagði ann- ar viðmælandi. Hrifu heila þjóð með sér BBC sagði m.a. í gær að árangur Íslend- inga á mótinu hefði hrifið með sér heila þjóð og jafnframt verið ein besta sigursaga móts sem nauðsynlega hefði þurft slíkar sögur. Móttökuathöfn hefur verið skipulögð fyrir landsliðið á Arnarhóli klukkan 19 í kvöld. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Takk vinur! Gylfi Sigurðsson faðmar föður sinn, Sigurð Aðalsteinsson, að leikslokum í París í gærkvöldi. Ljóshærða, brosandi konan fyrir aftan feðgana er Alexandra Ívarsdóttir, unnusta Gylfa. TAKK FYRIR OKKUR STRÁKAR  Ævintýri landsliðsins á Evrópumótinu í knattspyrnu lauk í París í gærkvöldi  Liðið skoraði í öllum leikjum sínum í keppninni  „Takk fyrir, strákar, við erum ótrúlega stolt af ykkur,“ sagði fólk í Kópavogi MEM í fótbolta »2, 4, 16, 17 og íþróttir. Bless Lars Lagerbäck og strákarnir klappa fyrir áhorfendum, þakka frábæran stuðning.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.