Morgunblaðið - 04.07.2016, Page 6
6 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2016
Rafmagnshjól.is • Fiskislóð 45 • Sími 534 6600
Hollensk
rafmagnshjól
vönduð og margverðlaunuð
BAKSVIÐ
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Þéttleiki makríleggja við lögsögu-
mörk Íslands og Færeyja suðaust-
ur af landinu í leiðangri í maí-
mánuði var margfaldur á við það
sem áður hefur sést, að sögn Björns
Gunnarssonar, leiðangursstjóra í ís-
lenska hluta þessa fjölþjóðlega leið-
angurs, og Guðmundar Óskarsson-
ar, fiskifræðings á
Hafrannsóknastofnun. Björn segir
þetta vísbendingar um að á þessu
svæði sé meiri makrílgengd en
nokkru sinni áður.
Skip frá Íslandi og Færeyjum
voru við mælingar nánast á sama
svæði í færeyskri og breskri lög-
sögu, en rannsóknaskipið Bjarni
Sæmundsson var um mánuði fyrr á
ferðinni. Íslenski leiðangurinn náði
að mæla núllpunkt hrygningarinnar
í vesturátt.
Þegar Færeyingar fóru hins veg-
ar um svæðið mánuði síðar fundu
þeir ekki núllpunktinn í vestur, sem
bendir til þess að hrygningin hafi
teygt sig vel inn í íslenska lögsögu.
Þéttleiki makríleggja var mestur
við lögsögumörkin og hrygningin
þar meiri heldur en nokkru sinni
áður. „Við sáum í ár tölur sem ekki
hafa sést á þessu svæði frá upphafi
mælinga 1977,“ segir Björn.
Bagalegt að ekki var farið
inn í íslenska lögsögu
Björn og Guðmundur segja baga-
legt að ekki hafi fengist upplýsing-
ar um hrygningu í íslenskri lögsögu
en hennar varð vart í eggjaleið-
öngrunum 2010 og 2013.
Um ástæður þess að ekki var
haldið áfram lengra í vestur segir
Björn að í sjálfu sér hafi ekki verið
reiknað með svo kröftugri hrygn-
ingu í vesturátt og Færeyingar hafi
ekki sótt um leyfi til rannsókna í ís-
lenskri lögsögu áður en haldið var
af stað. Í stað þess að útvega leyfin
þegar ljóst var hver staðan var létu
Færeyingar staðar numið.
Hugmyndir komu fram um að
rannsóknum á hrygningunni yrði
haldið áfram af hálfu Íslendinga, en
það var ekki talið framkvæmanlegt
með svo skömmum fyrirvara vegna
annarra verkefna og fjárskorts.
Björn og Guðmundur varast að
draga of miklar ályktanir af þessum
niðurstöðum um makrílveiðar við
Ísland í sumar. Björn segir þó að
vissulega séu þetta vísbendingar um
að suðaustur af landinu hafi í vor
verið meiri makrílgengd en nokkru
sinni áður. Ástandið í sjónum og
hitastig sjávar við landið hafi á
margan hátt verið svipað og í maí
fyrra. Sjórinn hafi þó verið heldur
kaldari fyrir sunnan land í maí held-
ur en í meðalári. Á móti megi nefna
að júní hafi verið tiltölulega hlýr.
Útbreiðsla makríls,
síldar og kolmunna
Árlegur togleiðangur Íslendinga,
Norðmanna, Færeyinga og Græn-
lendinga til að kanna útbreiðslu og
magn makríls og síldar í Norðaust-
ur-Atlantshafi hófst á föstudag. Í ár
verður útbreiðsla og magn kol-
munna einnig kannað í fyrsta skipti
í þessum leiðangri, en á þessum árs-
tíma er meginhluti stofnsins geng-
inn inn á yfirferðarsvæði leiðang-
ursins.
Guðmundur verður leiðangurs-
stjóri um borð í Árna Friðrikssyni í
fyrri hlutanum, en Sigurður Jóns-
son seinni helminginn, en mæling-
um Íslendinga lýkur 3. ágúst. Guð-
mundur segir að í ár verði allt
útbreiðslusvæði makríls og síldar
kannað og verður farið eins norð-
arlega og sunnarlega og þörf krefur.
Tvö skip frá Noregi taka þátt, eitt
frá Færeyjum og færeyskt leiguskip
fyrir Grænlendinga auk þess sem
Árni Friðriksson verður í fimm
daga leigu við mælingar í græn-
lenskri lögsögu norðan og vestan Ís-
lands.
Mikil hrygning við lögsögumörk
Þéttleiki makríleggja suðaustur af landinu í maí margfaldur á við það sem áður hefur sést
Mælingar ekki gerðar í íslenskri lögsögu Leiðangur til að mæla síld, makríl og kolmunna hafinn
Ljósmynd/Valur Bogason
Rannsóknir Björn Gunnarsson við vinnu sína um borð í Bjarna Sæmundssyni. Á skjánum má sjá makrílegg.
Mikið verkefni
» Eggjaleiðangurinn er fjöl-
þjóðlegt verkefni skipulagt af
Alþjóðahafrannsóknaráðinu
(ICES) og er reynt að meta
fjölda eggja á hrygningarsvæði
makríls. Hrygningin hefst við
strendur Portúgals í febrúar og
teygir sig allt norður í íslensku
landhelgina og lýkur í byrjun
ágúst.
» Alls koma að sýnatökunni tíu
Evrópulönd: Portúgal, Spánn,
Írland, Bretland, Holland, Dan-
mörk, Þýskaland, Noregur, Fær-
eyjar og Ísland, og ellefu rann-
sóknastofnanir. Farnir eru
tuttugu rannsóknaleiðangrar
frá því í febrúar og fram í ágúst.
» Markmiðið er að áætla stærð
hrygningarstofns makríls í NA-
Atlantshafi út frá fjölda
hrygndra eggja og er farið í slík-
an leiðangur á þriggja ára fresti.
Mælingarnar eru ásamt öðrum
gögnum mikilvægar fyrir stofn-
stærðarmat og þar með veiði-
ráðgjöf ICES fyrir makrílstofn-
inn.
Leitað var eftir aðstoð þyrlu Land-
helgisgæslunnar eftir hádegi á
laugardag vegna konu sem fallið
hafði í klettum ofan við Reynis-
fjöru, Víkurmegin. TF-LÍF var
komin á vettvang um klukkan 13.30
og sigu læknir og sigmaður úr
áhöfn niður á slysstað. Þá höfðu
björgunarsveitarmenn og læknir
vaðið sjó meðfram klettunum og
höfðu þeir búið um konuna og tóku
við siglínunni.
Féll í klettum ofan við Reynisfjöru
Huginn VE byrjaði á makrílveiðum undan Suðurlandi 14. júní, en smám
saman hefur skipum fjölgað og í gær var um tugur skipa á miðunum.
Guðmundur Ingi Guðmundsson, skipstjóri á Hugin, sagði að aflabrögð
hefðu verið misjöfn, þannig hefði verið ágætis afli á laugardag, en gær-
dagurinn að stórum hluta farið í leit. Um miðjan dag sagðist hann reikna
með að kasta fljótlega þannig að næðist að hífa áður en leikur Íslands og
Frakka byrjaði. Um borð snerist dagurinn um fótbolta eins og víðar.
Þeir á Hugin voru í gær að veiðum í Hávadýpi austur af Eyjum og höfðu
alls fengið um 1500 tonn á vertíðinni. Aflinn er unnin um borð og hefur
ýmist verið hausaður og slógdreginn eða heilfrystur eftir óskum við-
skiptavina. Talsvert hærra verð hefði fengist fyrir afurðirnar heldur en í
byrjun vertíðar í fyrra. Guðmundur Ingi sagði að í heildina hefðu afla-
brögð verið lakari í ár heldur en á sama tíma í fyrra. Hins vegar væri mak-
ríllinn fljótur að fitna; fyrir hálfum mánuði hefði fituprósentan verið
7-8%, en nú væri hún komin í 20%
Um tugur skipa að veiðum
ÆTLAÐI AÐ HÍFA ÁÐUR EN LEIKURINN VIÐ FRAKKA BYRJAÐI
Karlmaður á áttræðisaldri lést síðdegis á laug-
ardag í Hraunbæ í Reykjavík þegar vörubifreið
sem hann var að gera við rann á hann. Þetta kem-
ur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuð-
borgarsvæðinu.
Málsatvik liggja að öðru leyti ekki fyrir og eru
til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgar-
svæðinu.
Lögreglan óskar eftir vitnum að atvikinu og
eru þau vinsamlega beðin að hafa samband við
lögreglu með því að senda tölvupóst á netfangið
stella.mjoll@lrh.is.
Banaslys í Hraunbæ
Drengurinn sem lést í
bruna á Stokkseyri á
föstudag hét Hjalti Jak-
ob Ingason og var fædd-
ur 2. maí árið 2012.
Hann bjó í foreldra-
húsum á Heiðarbrún 12
á Stokkseyri ásamt
tveimur yngri systk-
inum.
Hann lést þegar eldur
kom upp í húsbíl sem
stóð við íbúðarhús á Stokkseyri. Barst tilkynning
um eldinn um klukkan þrjú á föstudag en þegar
lögregla og slökkvilið komu á staðinn var bifreið-
in alelda. Í tilkynningu á vef lögreglunnar segir
að drengurinn hafi verið að leik í bílnum þegar
eldurinn braust út.
Lögreglan á Suðurlandi vinnur að rannsókn
slyssins ásamt tæknideild lögreglunnar á höfuð-
borgarsvæðinu.
Lést á Stokkseyri
Hinn árlegi Fornbíladagur var haldinn á Árbæjarsafni í gær.
Fjöldinn allur af fjölbreyttum bílum var til sýnis fyrir gesti og
gangandi, en bílarnir eru í eigu meðlima í Fornbílaklúbbi Ís-
lands. Eigendur fornbílanna spjölluðu við gesti safnsins og Rún-
ar Sigurjónsson stjanaði við eina af elstu bifreiðunum.
Fornbíladagurinn á Árbæjarsafni
Morgunblaðið/Þórður
Bílasýning í blíðunni