Morgunblaðið - 04.07.2016, Side 19

Morgunblaðið - 04.07.2016, Side 19
MINNINGAR 19 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2016 ✝ Arnþór JónÞorsteinsson fæddist á Mold- haugum í Hörgár- sveit 13. ágúst 1948. Hann lést á heimili sínu, Skálateigi 1 á Akureyri, 21. júní 2016. Hann var sonur hjónanna Þóru Jónsdóttur Thorla- cius, og Þorsteins Jónssonar, bænda á Moldhaugum. Þau eru bæði látin. Addi, eins og hann var alltaf kallaður var elstur sjö systkina. Systkini hans eru: Ester, f. 1949, Þröstur, f. 1952, Rósa Þur- íður, f. 1954, Eygló Helga, f. 1956, Margrét Harpa, f. 1958 og Ása Björk, f. 1959. Sambýliskona Arnþórs var Guð- laug H. Jónsdóttir, f. 1945. Addi varð gagn- fræðingur frá Hér- aðsskólanum á Laugum í Reykjar- dal. Hann vann ýmis verka- mannastörf, var m.a. mörg ár hjá Útgerðar- félagi Akureyringa. Síðari ár vann hann í Lystigarðinum á sumrin og fram á síðasta dag vann hann á Plastiðjunni Bjargi-Iðjulundi. Útför Arnþórs Jóns fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 4. júlí 2016, klukkan 13.30. Elsku Addi. Nú hefur þú lokið lífsgöngu þinni hér á jörðu. Göngu sem ekki var ætíð svo létt fyrir þig, þar sem þú þurftir að burðast með sjúkdóm sem þú ekki valdir þér sjálfur. Það er ekki alltaf létt að horfa upp á aðstandanda sinn sýna á sér alls kyns myndir úr litrófi persónuleikans, en aldrei man ég þó eftir því að þú hafir kvartað yfir þessu hlutskipti þínu. Sjálfs- vorkunn átti ekki við þig. Þú hafðir meiri áhuga á að fá fréttir af öðrum en tala um sjálfan þig. Það duldist engum sem þig þekkti hve vænt þér þótti um fjölskyldu þína. Þegar þú hittir okkur systkini þín spurðir þú ævinlega um systkinabörnin og stundum hringdir þú í þau. Áhugi þinn beindist mikið að því hversu há þau væru orðin. Þín sérgáfa var m.a. að muna tölur og mundir þú ýmsa hluti sem enginn annar hefði getað munað. Þú varst mikill dýravinur, hafðir sérstakt dálæti á kindum og ætla ég að leyfa mér að segja að þú hafir munað ættartölu flestallra ef ekki allra kindanna, mörg ár aftur í tímann. Og er ég ekki frá því að þú hafir einnig, um tíma, munað að miklu leyti ættartölu kindanna af næsta bæ. Eftir að ég flutti til Noregs skrif- uðumst við á og hafðir þú gaman af að segja mér frá Nínu, kisunni þinni. Bréfin ætla ég að varð- veita. Síðasta daginn þinn sem þú lifðir sóttir þú vinnu og þykist ég vita að þar hafi harkan og elju- semin ráðið för. Þú valdir bjartasta dag ársins til að kveðja. Nú ertu floginn á vit nýrra ævintýra, fullfrískur. Vona ég að þú finnir þá birtu og yl sem þú átt skilið. Öllum þeim sem veittu Adda hjálp og stuðning gegnum árin færi ég mínar bestu þakkir. Elsku bróðir, ég vil kveðja þig með þessum orðum. Gangan með þér æviárin okkur líður seint úr minni. Við sem fellum tregatárin trúum varla brottför þinni. Þína leið til ljóssins bjarta lýsi drottins verndarkraftur. Með kærleiksorð í klökku hjarta kveðjumst núna, sjáumst aftur. (Hákon Aðalsteinsson) F.h. systkinanna, Ása Björk Þorsteinsdóttir. Þegar ég fékk þær fréttir að Addi móðurbróðir væri látinn var mér brugðið, andlátið bar snöggt að og ekki tími til að kveðja. Sem krakki man ég eftir Adda frænda sem miklum stríðnispúka og hrekkjalómi, en skemmtilegur var hann og minnugur, hann mundi hversu háir allir voru í fjölskyldunni, sem og þyngd þeirra (ef það var gefið upp) og alla afmælisdaga mundi hann. Ég man að við frændsystkinin reyndum stundum að hanka hann á einhverjum staðreyndum en það var vita vonlaust. Eftir að ég eignaðist fjöl- skyldu kom hann stundum í heimsókn og var þá kampakátur og lék á als oddi. Hann var mikill áhugamaður um skák og vakti hann og viðhélt áhuga stelpn- anna minna á skák og er ég nokk- uð viss um að hann kenndi þeim öllum mannganginn. Þegar hann kom í heimsókn var yfirleitt grip- ið í eina skák eða tvær og var það yfirleitt við Arne, manninn minn, og það var alveg á hreinu hversu margar skákir hver hafði unnið, þótt langt hefði liðið á milli skáka. Hann var duglegur að mæta í afmælisveislur og alltaf hringdi hann með afmæliskveðju þegar einhver fjölskyldumeðlimur átti afmæli. Hann var veisluglaður og naut sín innan um fjölskyldu sína. Síðustu ár hefur Addi verið þátttakandi í lífi mínu og hef ég kynnst honum á annan hátt en þegar ég var barn. Addi var mjög sjálfstæður og mat alltaf mikið sjálfstæði sitt, hann var stoltur, ákveðinn og stóð fast á því sem hann trúði á. Hann var um- hyggjusamur og var svo lánsam- ur síðustu árin sín að eignast kisu sem gaf honum mjög mikið, bæði félagsskap og nærveru. Hann var vinusamur og stundvís og vildi sinna vinnu sinni vel, sem hann gerði. Þegar ég bað dætur mínar að segja nokkur orð um Adda frænda sinn sögðu þær að hann væri skemmtilegur, fyndinn, kærleiksríkur, örlátur og góður. Farin er góður maður, hvíl þú í friði, elsku Addi okkar. Sendum Gullu, aðstandendum hans og vinum innilegar samúð- arkveðjur. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Kærleikskveðja, Dagný Þóra, Arne Vagn, Snædís Sara, Klara Fönn og Ísabella Eygló. Arnþór Jón Þorsteinsson Elsku Bjarni. Ég kveð þig með söknuði í hjarta en gleðst jafnframt yf- ir öllum þeim góðu minningum sem rifjast upp á stundu sem þessari. Þú varst okkur systkinunum á Herjólfsstöðum sem afi og okk- ur þótti vænt um þig sem slíkan. Þú spurðir okkur alltaf tíðinda og hvattir okkur áfram í því sem við tókum okkur fyrir hendur. Við minnumst reiðtúranna á milli bæja og upp að Skálm- arbæ. Þegar þú attir okkur sam- an í kappreiðar á tamningar- trippunum og lést okkur ríða út í stórar tjarnir á hrossunum til þess að baða. Veiðitúranna í bæjarlæknum og allrar spila- mennskunnar við eldhúsborðið í Hraunbæ. Þegar litið er til baka eru fyrstu minningar mínar af þér þegar þú komst ríðandi í hlað á Herjólfsstöðum, bast hestinn við staur fyrir utan og komst inn í kaffi. Þegar þú gerðir þig líkleg- an til þess að fara varstu alltaf tilbúinn að teyma undir stelpu- skottunni sem brosti hringinn yfir að fá að setjast á bak hross- unum hans Bjarna í Hraunbæ. Oftar en ekki lögðum við einnig á bak og fylgdum þér áleiðis suður í hæð eða alla leiðina heim að Hraunbæ. Allt frá barnsaldri hafa mér verið sagðar sögur sem lýsa hversu einstakur maður þú varst og þannig munum við minnast þín. Þú varst mikill hestamaður og er margur gæðingurinn sem Bjarni Þorbergsson ✝ Bjarni Þor-bergsson fædd- ist 4. ágúst 1928. Hann lést 19. júní 2016. Jarðarförin fór fram 28. júní 2016. hefur komið úr þinni ræktun. Ég minnist sérstaklega sagnanna af gæð- ingnum Blakk og eins man ég vel eft- ir hryssunni Sigur- von. Væntumþykja og gagnkvæm virð- ing var það sem gerði þig að svo góðum hestamanni, það mættu margir taka þig sér til fyrirmyndar í dag. Ég minnist allra smalaferð- anna í landi Hraunbæjar, þar fórum við síðast saman árið 2011. Þá fórst þú á Spennu, 83 ára gamall, en varðst eins og unglingur þegar þú varst kom- inn í hnakkinn. Áður en þú fluttir á Klaustur vorum við mamma vanar að koma við í Hraunbæ þegar við riðum Álftavershringinn og einnig var fyrsti reiðtúrinn á tamningartrippunum jafnan far- inn suður að Hraunbæ. Síðan þú fluttist austur hef ég saknað þess að sjá þig ekki birtast í dyrunum, brosmildan og hlýjan. Nú mun ég sakna þess að geta ekki sagt þér sögur af tamning- artrippunum og hlýtt á sögur frá þeim tíma er þú varst sjálfur að temja. Ég gæti haldið endalaust áfram og talið upp minningar úr afréttarsmölun, kappreiðum, sauðburði og fleiru, en mun hér láta staðar numið. Þín verður sárt saknað af heimilisfólkinu á Herjólfsstöðum og minningu þinni verður haldið á lofti um ókomna tíð. Þó sorgin sé mikil erum við fyrst og fremst þakklát fyrir að hafa kynnst jafn ein- stökum manni og þér. Blessuð sé minning þín. Harpa Ósk Jóhannesdóttir, Herjólfsstöðum. Orka, hlátur og ein- staka bölv, ekki aðeins landið greri. Sálin mun lifa eins sterkt og hans tak og aldrei mun hann gleymast. Á leiki hann leiðir sínar lagði oft og var þar tíður gestur, Björn Bjarnarson ✝ Björn Bjarn-arson fæddist 28. júlí 1943. Hann lést 16. júní 2016. Útförin hefur farið fram í kyrr- þey. sama hvaða sport, hann studdi þá sem honum stóðu næstir. Á Volvo, traktor eða trukk, ávallt var hann flottur. Á Þristinum trónaði hann þó allra hæst, var þar vel settur. Hans tré nú laufum vax- ið er og eflaust er hann stoltur Stoltust erum við þó hér, því hann var allra bestur. Daníel. Góðan daginn, Erna Elíasdóttir heiti ég, var sagt í góðlátlegu glensi í símtólinu. Þannig símtöl fékk ég stundum frá Ernu frænku þeg- ar henni fannst of langt um lið- ið frá því að við höfðum talast saman. Erna frænka og mamma voru systur og einu börn foreldra sinna. Þær voru mjög nánar og miklar vinkonur. Voru fjölskylduböndin ákaflega sterk og trygg í gegnum lífið og fengum við börn þeirra það vegarnesti. Mínar fyrstu minningar um Ernu frænku eru þegar við bjuggum öll saman á Vita- teignum; foreldrar mínir, Kolla systir, Erna og Steini – tvíbur- arnir komu seinna. Oft var glatt á hjalla og ég stundum með tvær mömmur til að hugga og ala mig upp. Minningarnar streyma um hugann til bernsk- unnar, jólahátíðirnar sem skipst var á að halda hjá ömmu og afa á aðfangadag, heima hjá okkur á jóladag og svo hjá ykk- ur Steina á gamlársdag. Berja- mór og veiðitúrar. Erna frænka var yndisleg manneskja, glettin, góð, kær- leiksrík og gæti ég lengi, lengi haldið áfram að telja upp alla þá mannkosti sem hún hafði. Það var alltaf gott að leita til hennar, hvort sem það var á unglingsárum mínum eða eftir að ég stofnaði mína eigin fjöl- skyldu, hvort sem um var að ræða „vandamál“ unglingsár- anna eða að passa börnin mín. Alltaf var Erna tilbúin að lið- sinna. Það var aldrei komið að tómum kofa þar. Aldrei var sá Erna Elíasdóttir ✝ Erna Elíasdótt-ir fæddist 8. júlí 1939. Hún lést 16. júní 2016. Útför Ernu fór fram 28. júní 2016. atburður í fjöl- skyldu minni að ekki væri gert ráð fyrir að Erna og Steini væru þar þátttakendur. Með það vegarnesti ól- ust börnin mín upp og þannig litu þau á. Amma, afi, Erna og Steini. Elsku Erna, ég kveð þig með söknuði og þakka þér fyrir allt. Allt mitt líf hefur þú skipað stóran sess í mínu hjarta og minni fjölskyldu. Vonandi eruð þið systur farnar að skauta, hlæja og gantast saman eins og ykkar háttur var. Læt eitt ljóð sem er í miklu uppáhaldi fylgja með í þessum kveðjuorðum. Hægt líður þoka af hafi hylur mjúklega tinda sólin er sest bakvið fjöllin er síðustu geislana binda. Húmið það sígur um sæinn sólskríkjan kveður nú daginn. Blómin sem dagana dýrka drúpa nú höfði í sárum áður í glampandi geislum gráta nú daggartárum. Enn þó að skríði yfir skuggar skín aftur sólin og huggar. (Kjartan H. Guðmundsson) Elsku Steini, Kristín, Björk, Elín, Lilja, Elli, tengdabörn og barnabörn. Við fjölskyldan vottum ykkur innilega samúð. Elín Hanna. Elsku mamma mín, amma, tengdamamma, systir og móðursystir, KATARÍNA ÞORSTEINSDÓTTIR tækniteiknari, lést á líknardeild Landspítalans 30. júní. Útförin fer fram frá Neskirkju fimmtudaginn 7. júlí klukkan 13. . Emma Hildur Helgadóttir Áslaug Þorsteinsdóttir Casper R. Vissing Björn Markús Þórsson Katrín R. Caspersdóttir Sonja Þórey Þórsdóttir Steinunn Þórsdóttir og fjölskyldur Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, SIGURÐUR EYMUNDSSON rafmagnstæknifræðingur, lést á heimili sínu 27. júní síðastliðinn. Útförin fer fram frá Hallgrímskirkju föstudaginn 8. júlí klukkan 15. . Olga Óla Bjarnadóttir Eymundur Sigurðsson Ragnheiður Bragadóttir Hanna Birna Sigurðardóttir Jesper Dalby Bjarni Gaukur Sigurðsson Elísabet Jónsdóttir og barnabörn Okkar innilegustu þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför hjartkærrar eiginkonu, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, HRAFNHILDAR S. BJÖRNSDÓTTUR, Réttarheiði 31, Hveragerði. Sérstakar þakkir til starfsfólks og lækna á sjúkrahúsinu á Selfossi og Landspítala fyrir einstaka umhyggju. Guð blessi ykkur öll og ykkar störf. . Guðmundur Einarsson Kjartan Bjarnason Þórey Sigurðardóttir Birgir Bjarnason Rannveig Guðmundsdóttir Geir Bjarnason Ásta H. Viðar Baldur Sívertsen Tanja Sívertsen barnabörn og barnabarnabörn Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, UNNUR SVEINSDÓTTIR, Dalalandi 14, Reykjavík, lést á Hrafnistu í Reykjavík 27. júní. Útförin fer fram frá Bústaðakirkju fimmtudaginn 7. júlí klukkan 13. . Kristján Ágúst Baldursson Stefanía Þorvaldsdóttir Sveinn Baldursson Einar Valur Baldursson barnabörn og barnabarnabörn. Morgunblaðið birtir minningargreinar end- urgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morgunblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Smellt á Morgunblaðslógóið í hægra horninu efst og viðeigandi liður, „Senda inn minning- argrein,“ valinn úr felliglugganum. Einnig er hægt að slá inn slóðina www.mbl.is/sendagrein Skilafrestur | Ef óskað er eftir birtingu á útfar- ardegi verður greinin að hafa borist eigi síðar en á hádegi tveimur virkum dögum fyrr (á föstudegi ef útför er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, enda þótt grein berist áður en skilafrestur rennur út. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.