Morgunblaðið - 04.07.2016, Side 22

Morgunblaðið - 04.07.2016, Side 22
22 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2016 Ég er í Danmörku hjá dóttur minni, Elísabetu, og ætla að haldaupp á daginn með henni og fjölskyldu hennar. Hin börn mínkoma líka frá Íslandi til að fagna deginum með mér,“ segir Pét- ur Marteinn Páll Urbancic sem á 85 ára afmæli í dag. Pétur fæddist í Vín í Austurríki en kom til Íslands árið 1938 með foreldrum sínum, dr. Viktori J. Urbancic, hljómsveitarstjóra og tónskáldi, og dr. Melittu Ur- bancic, skáldi og myndhöggvara. Pétur lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík 1950, út- skrifaðist frá Tónlistarskólanum í Reykjavík 1951 með burtfararpróf í selló- og kontrabassaleik árið 1951. Hann lauk fyrrihlutaprófi í íslensk- um fræðum við Háskóla Íslands 1953 en fór síðan til Vínar, þar sem hann stundaði nám í samanburðarmálfræði og þýðingum. Pétur hóf störf við Landsbanka Íslands á námsárum sínum og var starfsmaður Seðlabanka Íslands frá stofnun hans 1961-97. Pétur lék með Sinfón- íuhljómsveit Íslands á sjötta áratugnum, í leikhúsum borgarinnar, í fjöl- mörgum útvarps- og sjónvarpsþáttum og inn á fjölda hljómplatna. Pétur er prófarkalesari, löggiltur skjalaþýðandi og dómtúlkur og hefur starfað sem slíkur m.a. fyrir þýska sendiráðið. Hann hefur verið leiðsögumaður ferðamanna til fjölda ára, stundar enn leiðsögu, var meðal stofnfélaga í Félagi leiðsögumanna og varaformaður þess í nokk- ur ár. Þá hefur hann starfað mikið fyrir kaþólska söfnuðinn í Reykjavík og var um tíma formaður Félags kaþólskra leikmanna. Eiginkona Péturs var Ebba Ingibjörg Egilsdóttir Urbancic, kennari, f. 10.7. 1933, d. 31.3. 2015. Börn þeirra eru Ásta Melitta, Viktor Jóhann- es, Anna María, Linda Katrín og Elísabet Sigríður og eru barnabörnin alls 12 talsins. Fjölskyldan Hjónin Pétur og Ebba ásamt börnum sínum saman komin í tilefni áttræðisafmælis Ebbu árið 2013. Heldur upp á af- mælið í Danmörku Pétur Urbancic er 85 ára í dag S igurlaug fæddist í Vigur í Ísafjarðardjúpi 4.7. 1926 og ólst þar upp í stórum systkinahópi við æð- ardúntekju og önnur þeirra tíma sveitastörf. Sigurlaug lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum á Akureyri 1947, lauk cand.phil.-prófi frá HÍ 1948, BA-prófi í ensku og frönsku við há- skólann í Leeds 1951 og stundaði framhaldsnám í frönsku og frönsk- um bókmenntum við Sorbonne- háskóla 1951-52. Starfsferill Sigurlaug var blaðamaður við Morgunblaðið 1952-55. Hún var kennari við Gagnfræðaskólann á Akranesi 1947-48, við Versl- Sigurlaug Bjarnadóttir, fyrrv. menntaskólak. og alþm. – 90 ára Fjölskyldan Þorsteinn og Sigurlaug með börnum sínum, Ingunni, Birni og Björgu Thorarensen, árið 1992. Frá dúntekju í Vigur til náms í Sorbonne Hjónin Sigurlaug og Þorsteinn á göngu úti í Vigur, en Þorsteinn lést 2006. Bríet Brá Gunnlaugsdóttir, Auður Guðbjörg Gautadóttir, Embla Þóra Þorvalds- dóttir og Þórný Harpa Rósinkranz Heimisdóttir söfnuðu 16.324 krónum með tombólu í Ólafsfirði. Hlutavelta Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is 19.490 Verð Verkfærasalan - Síðumúla 11 - 560-8888 - www.vfs.is 2.990 Verð WERA Skrúfjárnasett 6 stk Mínus skrúfjárn frá 3.0 - 6.5mm og plús PH1 pg PH2. WERA 031280 Topplyklasett 171stk Vandað topplyklasett frá BATO með skröllum í stærðum 1/2", 3/8" og 1/4". Fjöldi hluta er 171 stk. BT 1171 Frábær verð!

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.