Morgunblaðið - 04.07.2016, Síða 23
unarskóla Íslands 1952-53, við
Námsflokka Reykjavíkur 1953-55 og
1956-58, við Málaskólann Mími 1960-
61, við Gagnfræðaskóla Austur-
bæjar 1956-66 og við Menntaskólann
við Hamrahlíð 1967-95.
Sigurlaug var alþingismaður í
Vestfjarðarkjördæmi 1974-78 og
varaþingmaður. 1978-83. Þá var hún
prófdómari við stúdentspróf við
Menntaskólann í Reykjavík 1958-68
og við Menntaskólann á Laugarvatni
frá 1956.
Sigurlaug var borgarfulltrúi Sjálf-
stæðisflokksins í Reykjavík 1970-74,
sat í stjórn Landssambands sjálf-
stæðiskvenna 1967-79 og var for-
maður þess 1975-79, sat í miðstjórn
Sjálfstæðisflokksins 1975-83, í
Menntamálaráði 1979-83, í stjórn
Æðarræktarfélags Íslands frá 1979-
85 og var formaður þess, í stjórn
Alliance Francaise um árabil og var
formaður Félags frönskukennara á
Íslandi um skeið.
Fjölskylda
Sigurlaug giftist 29.5. 1954 Þor-
steini Óskarssyni Thorarensen, f.
26.8. 1927, lögfræðingi, rithöfundi og
bókaútgefanda. Hann lést 26.10.
2006. Þorsteinn var sonur Óskars
Thorarensen, hreppstjóra á Móeið-
arhvoli og síðar forstjóra BSR, og
k.h., Ingunnar Eggertsdóttur hús-
freyju.
Börn Sigurlaugar og Þorsteins
eru 1) Ingunn, f. 15.11. 1955, grunn-
skólakennari í Reykjavík, gift Hall-
grími Þórarinssyni og eru synir
þeirra Björn, f. 14.7. 1995 og Stefán,
f. 5.10. 2000 en sonur Ingunnar og
Friðriks G. Friðrikssonar stórkaup-
manns er Þorsteinn Baldur, f. 30.6.
1979; 2) Björn, f. 20.3. 1962, tónlist-
armaður og leikari en börn hans og
Eydísar Sveinbjarnardóttur, forseta
Heilbrigðisvísindasviðs við HA, eru
Sveinbjörn, f. 26.11. 1984 og Sig-
urlaug, f. 18.12. 1990, og dóttir
Björns og Þórunnar Óskar Mar-
ínósdóttur víóluleikara er Arna Mar-
ín, f. 28.3. 2000, og 3) Björg, f. 24.9.
1966, prófessor við lagadeild Há-
skóla Íslands, gift Markúsi Sig-
urbjörnssyni, forseta Hæstaréttar,
og eru börn þeirra Ingunn Elísabet,
f. 4.3. 1994, Sigurbjörn, f. 28.2. 1997
og Þorsteinn, f. 28.2. 1997.
Systkini Sigurlaugar: Sigurður
Bjarnason, f. 18.12. 1915, d. 5.1.
2012, ritstjóri Morgunblaðsins, al-
þingismaður og sendiherrra; Björn
Bjarnason, f. 31.12. 1916, d. 20.10.
1994, bóndi í Vigur; Baldur Bjarna-
son, f. 9.11. 1918, d. 8.7. 1998, oddviti
og hreppstjóri í Vigur; Þorbjörg
Bjarnadóttir, f. 16.10. 1922, d. 7.1.
2006, skólastjóri Húsmæðraskólans
á Ísafirði, og Þórunn Bjarnadóttir, f.
14.7. 1925, fyrrv. grunnskólakennari
í Reykjavík.
Foreldrar Sigurlaugar voru
Bjarni Sigurðsson, f. 24.7. 1889, d.
30.7. 1974, hreppstjóri í Vigur, og
k.h., Björg Björnsdóttir, f. 7.7. 1889,
d. 24.1. 1977, húsfreyja.
Úr frændgarði Sigurlaugar Bjarnadóttur
Sigurlaug
Bjarnadóttir
Guðríður Ólafsddóttir
húsfr. í Háagerði
Jón Jónsson eldri
hreppstj. í Háagerði á
Skagaströnd
Björn Jónsson
hreppstj. á Veðramóti
Björg Björnsdóttir
húsfr. í Vigur
Haraldur
Björnsson
leikari
Jón Haraldsson
arkitekt
Jón Þ. Björnsson
skólastj. og oddviti
á Sauðárkróki
Ólína
Ragnheiður
Jónsdóttir
Óskar
Magnússon
skógarb. á
Sámsstöðum
Sigurður Bjarnason
alþm. ritstj. Morgun-
blaðsins og sendiherra
Baldur Bjarnason
hreppstj. í Vigur
Þorbjörg Bjarnadóttir
skólastj.
Þórunn Bjarnadóttir
kennari í Rvík
Stefán Stefánsson
b. á Heiði í
Gönguskörðum
Sigurður Stefánsson
pr. og alþm. í Vigur
Þórunn Bjarnadóttir
húsfr. í Vigur
Bjarni Sigurðsson
hreppstj. í Vigur
Helga Ólafsdóttir
húsfr. á Kjaransstöðum,
af Stephensen- og
Schevingætt
Bjarni Brynjólfsson
hreppstj., skipasm. og
dbrm. á Kjaransstöðum
Sigurður
Sigurðsson
sýslum. á
Sauðárkróki
Sigurður Sigurðsson
listmálari
Hrólfur Sigurðsson
listmálari á
Sauðárkróki
Árni Sigurðsson
fyrrv. prestur á Blönduósi
Stefán
Stefánsson
skólameistari
Valtýr
Stefánsson
ritstj.
Morgun-
blaðsins
Hulda
Stefánsdóttir
skólastj.
Guðrún Sigurðardóttir
húsfr. á Heiði
Þorbjörg Stefánsdóttir
húsfr. í Veðramóti
Á þjóðhátíð Sigurlaug og Þórunn,
systir hennar, á Þingvöllum 1994.
ÍSLENDINGAR 23
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2016
90 ára
Jakob Árnason
Sigríður Friðriksdóttir
Sigurlaug Bjarnadóttir
85 ára
Kári Arnórsson
Pétur M. Páll Urbancic
Ragnheiður Magnúsdóttir
80 ára
Elín S. Aðalsteinsdóttir
Helga Pálmadóttir
Sigurður Hannesson
Valborg Ingunn Valdimarsd.
75 ára
Árni Vilhjálmsson
Ester Haraldsdóttir
Guðmundur Helgi Gíslason
Kjartan Jónsson
Valur Johansen
Þórgunnur Þórarinsdóttir
70 ára
Friðbergur Þór Leósson
Geir Geirsson
Haukur Tómasson
Helgi Þór Axelsson
Hulda Guðmundsdóttir
Ingi Olsen
Ísleifur Pétursson
Jón Sævar Hallvarðsson
Steinunn Helga Axelsdóttir
60 ára
Ásdís Sigurðardóttir
Björn Kristján Hafberg
Guðmundur B. Þórarinsson
Guðni Bergur Einarsson
Gunnar Örn Rúnarsson
Hulda Margrét Hákonar-
dóttir
Margrét S. Guðbrandsd.
Sigríður Jónsdóttir
Sigríður María Bjarnadóttir
Stella Björg Kjartansdóttir
Svanhildur Pálmadóttir
Ögn Magna Magnúsdóttir
50 ára
Agnar Árnason
Andrea Kristín Gunnarsd.
Arna Elísabet Karlsdóttir
Bergur Barðason
Birna Guðjónsdóttir
Elenka Slavcheva
Halldór Margeir Sverrisson
Helen Björgvinsd. Scheving
Ingi Örn Hafsteinsson
Ion Chelaru
Jóhann A. Samúelsson
Kristmundur Kristmundss.
Númi Orri Blöndal
Sólveig Friðrikka Lúðvíksd.
Sólveig Jóhanna Grétarsd.
Valur Stefánsson
Þorgerður Sigurðardóttir
Örn Stefánsson
40 ára
Björg Hreinsdóttir
David Langlois
Eiríkur Steinn Kristjánsson
Helgi Þór Sigurðsson
Ingunn Jónsdóttir
Jón Ari Arason
Magnús Tómas Gíslason
María Stefánsdóttir
Sigurbjörn Hr. Magnússon
Stefán Ingi Sigurðsson
Svanur Freyr Jóhannsson
30 ára
Andreas Peter Petersson
Atli Þór Sigurðsson
Auður M. Guðmundsdóttir
Guðný Stefánsdóttir
Guðrún Einarsdóttir
Julio Cesar Leon Verdugo
Karen Björg Jóhannsdóttir
Lilja Sif Einarsdóttir
Pétur Smári Ólafsson
Til hamingju með daginn
40 ára Þröstur er úr
Reykjavík en býr í Kópa-
vogi. Hann er útvarps-
maður á KissFM og
hestahvíslari.
Maki: Anna Kristín Ólafs-
dóttir, f. 1978, skrif-
stofustj. hjá Kjarnavörum.
Börn: Alexander Ottó, f.
1996, Victor Orri, f. 2004,
og Sveinn Logi, f. 2009.
Foreldrar: Gestur Ottó
Jónsson, f. 1929, d. 1999,
og Jónína Sigurðardóttir,
f. 1934, bús. í Rvík.
Þröstur
Gestsson
30 ára Ingólfur er frá
Reykjadal, S-Þing., en býr í
Hrísey. Hann er forritari
hjá Stefnu ehf.
Maki: Hrund Teitsdóttir, f.
1985, grunnskólakennari í
Hrísey.
Börn: Brynjólfur, f. 2008,
Patrekur, f. 2011, og Bryn-
dís Petra, f. 2014.
Foreldrar: Sigfús Haraldur
Bogason, f. 1960, og Þóra
Fríður Björnsdóttir, f. 1963,
eigendur að Dalakofanum
á Laugum í Reykjadal.
Ingólfur
Sigfússon
30 ára Sigga Dóra er
Borgnesingur, hún er með
BA í félagsráðgjöf og
starfar sem tómstunda-
fulltrúi hjá UMSB.
Maki: Gísli Már Arn-
arsson, f. 1986, rafvirki
hjá Arnari rafvirkja ehf.
Börn: Emelía Ýr, f. 2010,
og Embla Björg, f. 2012.
Foreldrar: Sigurgeir Ósk-
ar Erlendsson, f. 1954, og
Annabella Albertsdóttir, f.
1952. Þau eiga og reka
Geirabakarí í Borgarnesi.
Sigríður Dóra
Sigurgeirsdóttir
Hafrún Kristjánsdóttir hefur varið dokt-
orsritgerð sína í líf- og læknavísindum
við Háskóla Íslands. Ritgerðin ber heitið
Að bæta aðgengi að sálfræðimeðferð í
heilsugæslu með ósérhæfðri hugrænni
atferlismeðferð í hóp (Improving Ac-
cess to Psychological Treatment in
Primary Care through Transdiagnostic
Cognitive Behavioural Group Therapy).
Umsjónarkennari var dr. Jón Friðrik Sig-
urðsson, prófessor við Læknadeild Há-
skóla Íslands og Sálfræðisvið Háskól-
ans í Reykjavík. Leiðbeinandi var Paul
Salkovskis, prófessor við University of
Bath á Englandi.
Hugræn atferlismeðferð er árangurs-
ríkt og hagkvæmt meðferðarform, en á
síðustu árum hefur áhugi á ósértækri
hugrænni atferlismeðferð í hóp
(ÓHAMH) farið vaxandi. Meginmarkmið
rannsóknarinnar var að meta árangur
af íslenska ÓHAMH-meðferðavísinum.
Þrjár rannsóknir voru gerðar til þess að
ná þessu markmiði.
Í rannsókn I voru próffræðilegir
eiginleikar íslensku útgáfunnar af
CORE-OM árangursmatslistanum
metnir. Alls tóku 594 þátt. CORE-OM
var lagður fyrir alla þátttakendur ásamt
öðrum sjálfsmatskvörðum. Ósértækir
eiginleikar
listans voru
sérstaklega
metnir. Í rann-
sóknum II og III
voru þátttak-
endur 382 ein-
staklingar sem
áttu við þung-
lyndis- og/eða
kvíðaraskanir að stríða og tóku þátt í
ÓHAMH.
Niðurstöður: Próffræðilegir eigin-
leikar CORE-OM voru viðunandi og í ljós
kom að listinn hefur ósértæka eigin-
leika. Niðurstöður rannsókna II og III
sýndu að meðferðin bar árangur, en
kvíða- og þunglyndiseinkenni þátttak-
enda voru minni í lok meðferðar en þau
voru í upphafi hennar. Fjöldi geðgrein-
inga hafði ekki áhrif á árangurinn og
meðferðin dró jafnt úr sértækum sem
almennum einkennum geðraskana.
Ályktanir: Hinn íslenski ÓHAMH-
meðferðavísir er árangursríkur og hent-
ar fólki með þunglyndis- og kvíða-
raskanir og hann gæti því reynst gagn-
legur ef auka á aðgengi sjúklinga í
heilsugæslu að gagnreyndri sálfræði-
meðferð.
Hafrún Kristjánsdóttir
Hafrún Kristjánsdóttir lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
1999 og BA-prófi í sálfræði frá HÍ 2003. Tveim árum seinna lauk Hafrún Cand.
psych. prófi frá sömu deild og innritaðist í doktorsnám við Læknadeild HÍ árið
2010. Hafrún starfaði sem sálfræðingur á geðsviði Landspítala á árunum 2005–
2013. Árið 2011 hóf hún störf við Háskólann í Reykjavík og hefur gegnt sviðs-
stjórastöðu íþróttafræðisviðs skólans frá árinu 2013.
Doktor
Frekari upplýsingar á vefverslun okkar
www.donna.is
Hjartahnoð og hjartastuðtæki
björguðu lífi mínu
Er næsta hjartastuðtæki
langt frá þér?
Verð frá kr. 199.600