Morgunblaðið - 04.07.2016, Qupperneq 27
landið sitt eða jafnvel að skoða heim-
inn í sumarfríinu, og biðja þá að
muna hvílík forréttindi það eru og
hugsa til allra þeirra sem eru á
hættulegu flakki um heiminn gegn
vilja sínum.
Hættulegt ástand
„Við þurfum að fjármagna færan-
lega þjónustu fyrir flóttakonur, þar
sem teymi af heilbrigðisstarfsfólki,
sálfræðingi og lögfræðingi fer um og
leitar þær uppi. Nú er búið að loka
landamærunum milli Makedóníu og
Serbíu svo að konurnar hafa dreifst
svolítið og eru að reyna að finna leið í
gegn annars staðar. Þetta er mjög
erfitt og hættulegt ástand, sér-
staklega fyrir konur, en ein af hverj-
um fimm lendir í kynferðisofbeldi á
flóttanum og þær eru peningalausar
og allslausar og því illa í stakk búnar
til að forðast mansal. Þessi teymi eru
þjálfuð til að þekkja einkenni ofbeld-
is og mansals og veita aðstoð og ráð-
gjöf og eru því reyna að finna þetta
flóttafólk og veita aðstoð, ekki síst til
að veita óléttum konum og nýfædd-
um börnum á flótta heilbrigðisþjón-
ustu.“
Auðvelt er að leggja málefninu lið,
einungis þarf að senda SMS-ið
„Konur“ í númerið 1900 og dragast
þá 1.900 kr. af símreikningi.
Rosaleg forréttindi
En skyldi Inga Dóra fara sjálf á
flakk í sumar með fjölskylduna?
„Já, eitthvað verður það, innan-
lands. En ég hugsa auðvitað um þau
forréttindi sem ég nýt, sérstaklega
ef ég hugsa til baka. Ég hef ferðast
út um allan heim og sem Íslend-
ingur hef ég rosaleg forréttindi; ég
get farið hvert sem ég vil og verið
þar í þrjá mánuði án nokkurra
vandræða. Og ef eitthvað kemur
upp á get ég hringt í bankann minn
á Íslandi og látið redda kreditkort-
inu á örfáum mínútum. Sextán mán-
aða sonur minn er búinn að fara til
fjölmargra landa nú þegar, er með
vegabréf með mörgum stimplum og
hefur bara gaman af því að ferðast.
Á sama tíma eru hundruð þúsunda
barna á svipuðum aldri á stöðugu
flakki, í lífshættu, og vildu gjarnan
eiga fastan samastað.“
„Það er ekkert að því að njóta þess
að ferðast, skoða heiminn og slaka á í
fríinu en mig langar að biðja Íslend-
inga að muna hversu heppin við er-
um og hversu mikil forréttindi það
eru að geta pakkað öllu sem fjöl-
skyldan þarf á að halda á ferðalaginu
niður í tösku heima áður en stigið er
upp í flugvélina. Og geta svo snúið
heim aftur þar sem heimili okkar er
öruggt skjól og eigur okkar þar enn,
óskaddaðar.“
Neyð „En nú er ástandið þarna orðið óbærilegt þannig að konur fara af stað út í óvissuna með börnin sín, sem og aldraðir og fatlaðir,“ segir Inga Dóra um ástandið í Sýrlandi.
MENNING 27
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 2016
Á Íslandi eru 78 þúsund konur á aldrinum 15-49 ára.
70 þúsund sýrlenskar konur eru barnshafandi á flótta og þá ein-
göngu utan Sýrlands.
12,2 milljónir manna eru á flótta innan eða utan Sýrlands vegna
stríðsins.
500 þúsund sýrlenskar konur á flótta eru þungaðar.
60% kvenna láta lífið við barnsburð í stríðsátökum eða þegar nátt-
úruhamfarir hafa átt sér stað.
Vissir þú að ...
upp pensilinn. Það er merkilegt
hvernig maður heillast alltaf.
Ég sé landið í öðru ljósi frá því ég
flutti út, þá var ég bara lítil stelpa.
Maður kunni ekki að meta þetta
þegar maður var krakki. En ég kem
mjög oft hingað, enda býr dóttir mín
á Íslandi með barnabörnin.“
borkur@mbl.is
Verslun Tunguhálsi 10 - Sími 415 4000
www.kemi.is - kemi@kemi.is
Fyrir börn - Fyrir fullorðna - Fyrir fagmenn
Vertu upplýstur!
blattafram.is
MÖRG ÞEKKJUM VIÐ BÆÐI
ÞOLENDUR OG GERENDUR
KYNFERÐISOFBELDIS
PERSÓNULEGA.
ERUM VIÐ AÐ SAMÞYKKJA
ÞAÐ MEÐ ÞÖGNINNI?