Morgunblaðið - 04.07.2016, Side 32

Morgunblaðið - 04.07.2016, Side 32
MÁNUDAGUR 4. JÚLÍ 186. DAGUR ÁRSINS 2016  Jón Stefánsson organisti hefði orðið sjötugur á morgun hefði hann lifað. Til að minnast hans efna vinir hans til söngstundar í Félagsheimil- inu Skjólbrekku í Mývatnssveit annað kvöld, þriðjudag, kl. 20 undir yfir- skriftinni Vel er mætt til vinafundar. Ætlunin er að syngja fjárlögin svo- nefndu, en fyrir rúmum tveimur ára- tugum héldu Jón og Margrét Bóas- dóttir söngkona um nokkurra ára skeið námskeið víðs vegar um land til að kynna íslensku ættjarðarlögin og kenna fólki að syngja þau í fjórum röddum. Samhliða því voru gefnar út Bláa og Gula bókin sk. sem hafa að geyma úrval laga úr Íslenska söngva- safninu frá 1914-16. Margrét og Sól- veig Anna Jónsdóttir píanóleikari stýra söngnum annað kvöld ásamt Garðari Cortes og eru allir velkomnir til að syngja ættjarðarlögin í fjórum röddum. Kirkjukórar sveitarinnar bjóða upp á kaffi og kleinur og eng- inn aðgangseyrir er að kvöldinu. Morgunblaðið/Ómar Minnast Jóns Stefáns- sonar með söng  Tuttugasta og áttunda Sumartón- leikaröð Listasafns Sigurjóns Ólafs- son hefst í safninu á Laugarnesi ann- að kvöld, þriðjudag, kl. 20.30. Haldnir verða sjö tónleikar í júlí og fram í ágúst með fjölbreyttri efnisskrá. Á fyrstu tónleikum sum- arsins flytja Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og Francisco Javier Jáuregui gítarleik- ari söngva frá Atl- antshafs- ströndum. Söngvar frá Atlants- hafsströndum Benedikt Bóas benedikt@mbl.is Sandra M. Granquist, deildarstjóri selarannsóknarsviðs á Selasetri Ís- lands og selasérfræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, er einn helsti fræðimaður landsins um seli. Sandra er alin upp í Svíþjóð, flutti hingað til lands 1997 og hefur búið hér á landi síðan, með nokkrum stopp- um í erlendum skólum. Í frí- stundum hannar hún skartgripi, en hönnun hennar fæst á internetinu og í hönnunar- búðum víða um land. „Ég er eins og alvöru Íslendingur með tvö störf,“ segir hún og hlær. Stór talning á landsel er fram undan, en vísbendingar eru um að fækkað hafi í stofninum undanfarin ár. Fjöldi landsela var áætlaður um 33 þúsund dýr árið 1980 en þeim fækkaði um helming til 1990. Síð- asta heildartalning fór fram 2011 og var þá stofninn áætlaður um 11-12 þúsund dýr. „Þetta er mikilvægt rannsóknar- verkefni sem leggur grunn að frek- ari rannsóknum. Við teljum úr flug- vél og förum alla strandlengjuna. Við töldum hluta stofnsins árið 2014. Þá voru vísbendingar um mikla fækkun í stofninum en við vit- um það ekki með vissu. Þá var talið á litlu svæði en núna er búið að tryggja fjármagn til að telja um alla strandlengjuna til að kanna ástand- ið á stofninum. Með verkefninu fáum við nýtt stofnstærðarmat því að stofninn hefur ekki verið metinn síðan 2011, sem er of langur tími. Það eru vísbendingar um fækkun og þá þarf að vakta stofninn oftar,“ segir hún. Vinnur mest með silfur Sandra er nú starfsmaður Haf- rannsóknastofnunar, sem samein- aðist Veiðimálastofnun um mánaða- mótin. Hún flutti hingað til lands árið 1997 eftir að hafa alist upp í Svíþjóð. Hún hefur alltaf verið að hanna og búa eitthvað til í hönd- unum frá því hún var lítil. „Ég lagði í raun aldrei perlurnar frá mér. Ég vinn mest núna með silfur og ekta steina og perlur auk þess að hanna úr ull. Ég er með flestar vörur mínar á kisinn.is/ sandrag og í nokkrum hönnunar- búðum víða um land. Vinsælustu vörurnar mínar er hægt að skoða á netinu en einnig í búðunum Sirka á Akureyri og Petit á Suðurlands- braut auk hönnunarbúðanna. Það versla ekki allir á netinu.“ Lagði perlurnar aldrei frá sér  Sandra stýrir selatalningu og hannar skartgripi Ljósmynd/Úr einkasafni Glæsilegur Stór talning á landsel er fram undan, en vísbendingar eru um að fækkað hafi í stofninum undanfarin ár. Ljósmynd/Úr einkasafni Skart Sandra býr til glæsilegt skart í frítíma sínum og selur á vefnum. Sandra M. Granquist Ljósmynd/Úr einkasafni Í vinnunni Sandra að sinna vinnunni í fjörunni. Hún vinnur nú hjá Hafrann- sóknastofnun eftir að stofnunin sameinaðist Veiðimálastofnun í júlíbyrjun. VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 517 KR. ÁSKRIFT 5613 KR. HELGARÁSKRIFT 3505 KR. PDF Á MBL.IS 4978 KR. I-PAD ÁSKRIFT 4978 KR. 1. Löw gleymdi Íslendingum 2. Flugu til Parísar en lentu í … 3. Kom með partívélinni 4. Maradona: Ísland getur valdið … »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM Á þriðjudag og miðvikudag Hæg breytileg átt eða hafgola. Bjart með köflum en líkur á síðdegisskúrum sunnanlands. Á fimmtudag Norðaustlæg átt, 5-13, hvassast með suðaust- urströndinni. Hiti 6 til 18 stig, hlýjast á vestanverðu landinu. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Bjart að mestu sunnan- og vestantil á land- inu en líkur á síðdegisskúrum á stöku stað. Hiti 8 til 18 stig. VEÐUR ÍBV og Valur komust fyrst liða í undanúrslit í Borg- unarbikarnum í knattspyrnu karla í gær. Valsmenn kjöl- drógu lánlausa leikmenn Fylkis, 5:0, á heimavelli sín- um. Blikar máttu hins vegar bíta í það súra epli að tapa á heimavelli fyrir ÍBV í hörkuleik, 3:2. þar sem Sim- on Smidt var á skotskónum. Hann skoraði tvö mörk og innsiglaði sigur Eyja- manna. »6 ÍBV og Valur áfram í bikarnum „Við tókum okkur saman í andlitinu eftir slaka byrjun, erum komnir á gott skrið og erum að reyna að ná smá stöðugleika. Þetta er orðið þannig að það er sama hvernig staðan er, mað- ur trúir því alltaf að við séum að fara að vinna og ég trúi því allt- af að ég sé að fara að skora,“ sagði Jóhann Helgi Hann- esson, leik- maður Þórs Ak- ureyri, eftir sjötta sigur liðsins í In- kasso-deildinni í knattspyrnu á laug- ardaginn. »8 Sjötti sigur Þórs í röð og sjálfstraust er mikið Þýska landsliðið vann það ítalska í fyrsta sinn á stórmóti í knattspyrnu karla á laugardagskvöldið á Evrópu- mótinu í Frakklandi. Sigur heims- meistaranna var torsóttur og varð ekki innsiglaður fyrr en eftir langa og stranga vítaspyrnukeppni, 6:5, þar sem mönnum voru mislagðir fætur. Jafnt var að loknum hefðbundnum leiktíma og framlengingu. »8 Torsóttur sigur hjá heimsmeisturunum ÍÞRÓTTIR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.