Morgunblaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 6
6 EM Í FÓTBOLTA KARLA MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016 Enda er allt þetta til eftirbreytni, ekki síst hnípinni þjóð í vanda ef manni leyfist enn að tala um Íslend- inga í því samhengi. Hvað sem öðru líður er öllum hollt að upplifa sælu- stundir eins og undanfarnar vikur, hvort sem áhrifin vara lengi eða að- eins til skamms tíma. Samstaðan og einhugurinn, þó ekki væri nema bara hve vel tókst til í víkingaklapp- inu svokallaða, og hefur líklega verið sýnt á nær hverri sjónvarpsstöð í víðri veröld, ætti að sýna Íslend- ingum hvers þeir eru megnugir ef allir taka saman höndum. „Strákarnir okkar“ í handbolta- landsliðinu hafa um langt árabil sameinað þjóðina á ýmsum gleði- stundum, landsliðið í körfubolta heillaði þjóðina upp úr skónum í fyrra þegar það tók þátt í úrslita- keppni EM í fyrsta sinn og margir aðrir íþróttamenn hafa skipt þjóðina miklu máli síðustu áratugi. Því verð- ur varla á móti mælt hve slík sam- einingartákn eru mikilvæg. Öll ævintýri taka enda og þessu í Frakklandi er lokið. En góð inni- stæða er fyrir því að hlakka til næstu ára. Takk, strákar! Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Ógleymanleg stund Stemningin á meðal Íslendinga á öllum aldri var ósvikin á leiknum. Stoltar mæður Halla Kr. Halldórsdóttir, móðir Birkis Bjarnasonar, faðmar son sinn eftir leikinn í París í fyrrakvöld. Til hægri eru Jón Daði Böðvarsson og móðir hans, Ingibjörg Erna Sveinsdóttir. Fátt sameinar betur en afbragðs landslið  Ótrúlegu þriggja vikna ævintýri í Frakklandi lokið Áfram Íslaaaand! Stuðningsmenn Íslands voru til fyrirmyndar að vanda, margir skrautlegir og allir fjörugir, hópurinn söng linnulítið allan tímann. Langt innkast Engu líkara er en þrír aðstoðarmenn franska landsliðsþjálf- arans vilji reyna að átta sig á hvernig Aron Einar Gunnarsson fer að þessu... Hvað ef? Jón Daði Böðvarsson skýtur yfir markið þegar staðan var 2:0. Ungur nemur Það er aldrei of snemmt að læra víkingaklappið eða aðrar hentugar aðferðir til að styðja landsliðið. Vinstra megin á myndinni er Kristbjörg Jónasdóttir, unnusta Arons Einars fyrirliða, og sonur þeirra, Óliver Breki. Í PARÍS Skapti Hallgrímsson skapti@mbl.is Þriggja vikna sannkallaðri ævin- týraför Íslendinga á Evrópumót karla í knattspyrnu lauk ekki á þann veg sem þjóðin vonaði. En þrátt fyr- ir tap í síðasta leik í fyrrakvöld gegn gestgjöfunum, Frökkum, sem gætu hæglega sigrað á mótinu, ganga Ís- lendingar stoltir frá borði. Það var áberandi, hvar sem komið var í Frakklandi, til Parísar, Nice, Marseille, Saint-Étienne eða smá- bæjarins Annecy í Alpafjöllunum, þar sem landsliðið hafði bækistöðvar meðan það var á EM, hve fólk hreifst af landsliði Íslendinga og stuðningsmönnunum. Mörgum þótti með hreinum ólíkindum hvað þessi fámenna þjóð úr norðri hafði afrek- að. Og ekki má gleyma því að í þess- ari fyrstu úrslitakeppni Evrópumóts sem karlalandsliðið tekur þátt í tap- aði það aðeins þessum eina leik, gerði tvö jafntefli og sigraði í tveim- ur leikjum; sló meðal annars Eng- land út í 16 liða úrslitum með 2:1 sigri. Það hefði einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar! Sjá mátti á samfélagsmiðlum að jafnvel hörðustu antisportistar heima á Fróni heilluðust af frammi- stöðu strákanna í liðinu, djörfung þeirra, samstöðu og baráttuvilja. Njóttu hálendisins

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.