Morgunblaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 19
19 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016 Móðurást Þessi skúfönd hugsaði vel um ungviðið þar sem hún synti með ungana sína fjóra á Reykjavíkurtjörn í góða veðrinu. Það þarf að kenna þeim á lífið og búa þá undir það sem koma skal. Ómar Alþjóðleg vernd snýst um öryggi fyrir fólk sem er að flýja of- sóknir eða sætir á ann- an hátt vanvirðandi meðferð. Fjöldi þeirra sem sækja um slíka vernd hefur ekki verið meiri frá því í lok heimsstyrjaldarinnar síðari. Hælisleitendur í Evrópu eru aðeins brot af fjölda hælisleitenda á heimsvísu. Thomas de Maiziere, innanríkisráðherra Þýskalands, seg- ir að búast megi við að vandinn verði mikill næstu árin. Þrátt fyrir að dreifing ábyrgðar sé meginregla ESB og þjóðaréttar er raunin sú að ábyrgð ríkja á hælis- umsóknum er mjög misjöfn. Regla Dyflinnarsáttmálans um að hælis- leitendur eigi að sækja um hæli í fyrsta griðlandi hefur verið talin helsta orsök ójafnrar ábyrgðar. Strandríkin og þau ríki sem eiga landamæri að ytri landamærum Schengen-svæðisins eru óhjákvæmi- lega þau lönd sem flestir hælisleit- endur koma fyrst til. Hæliskerfi þessara ríkja eru að bugast undan álaginu. Til viðbótar við regluna um fyrsta griðland er ríkjum heimilt að virkja full- veldisákvæði Dyflinn- arreglugerðarinnar vilji þau taka hælis- umsóknir til efnis- meðferðar á grundvelli mannúðarsjónarmiða. Lönd með hagstæða hælisstefnu hafa fengið mikinn fjölda umsókna, sem hafa verið að sliga hæliskerfi ríkjanna. Lausnir Verkefnið fram- undan er því að aðildarríki Schen- gen-svæðisins dreifi ábyrgðinni á hælisumsóknum jafnar. Peter Bo- uckaert, framkvæmdastjóri Mann- réttindavaktarinnar (Human Rights Watch) segir Evrópuþjóðir standa frammi fyrir vali á milli þeirrar óreiðu sem nú ríkir eða að sameinast um stefnu í málaflokknum svo vinnsla umsókna og búferlaflutn- ingar geti gengið betur fyrir sig. Yf- irmaður Flóttamannastofnunar Sameinuðu þjóðanna segir: „Evrópa gæti tekið við fleiri raunverulegum flóttamönnum, ef ríkin væru betur skipulögð og ynnu betur saman.“ Útfærslur Hugmyndir um betra skipulag og samvinnu miðast meðal annars að því að hælisleitendur geti sótt um al- þjóðlega vernd áður en þeir koma til Evrópu, til dæmis í gegnum mið- læga stofnun. Fólk þyrfti þá ekki að leggja á sig lífshættulegar ferðir heldur fengju þeir sem uppfylltu við- mið um þörf á alþjóðlegri vernd greiða inngöngu þar sem verndin væri veitt. Með betra skipulagi væri einnig hægt að taka tillit til þeirra ríkja sem eru undir miklu álagi vegna fjölda hælisumsókna. Fræðimenn hafa lagt áherslu á að raunhæfar lausnir þurfi bæði að taka mið af öryggi einstaklinga og hagsmunum ríkja. Í því augnamiði hefur áhersla á fyrsta griðland minnkað og samevrópska hælis- kerfið þróast. Tilskipanir samevr- ópska hæliskerfisins miðast að lág- markssamræmingu innlendra hæliskerfa og er ætlað að jafna möguleika hælisleitenda á vernd innan aðildarríkjanna, bæta mót- tökuskilyrði þeirra og að dreifa um- sóknum jafnar milli aðildarríkja. Ísland Ísland á aðild að Dyflinnarreglu- gerðinni, sem er hluti af sam- evrópska hæliskerfinu. Vegna dóma- fordæma Evrópudómstólsins og Mannréttindadómstóls Evrópu er ríkjum ekki aðeins heimilt heldur í sumum tilfellum skylt að virkja full- veldisákvæði Dyflinnarreglugerðar- innar. Það þýðir að í einstaka til- fellum er ríkjum skylt að taka hælisumsókn einstaklings, sem staddur er á þeirra yfirráðasvæði, til efnismeðferðar þrátt fyrir að ríkið sé ekki fyrsta landið sem hælisleit- andinn kom til. Þetta á við í þeim til- fellum þegar aðstæður í fyrsta grið- landi eru með þeim hætti að ætla megi að mannréttindi verði brotin á honum verði hann sendur þangað. Ísland á ekki aðild að sam- evrópska hæliskerfinu að öðru leyti og er ekki bundið tilskipunum þess. Lagasetning hér á landi undanfarin ár hefur þó samræmst tilskipunum samevrópska hæliskerfisins. Með nýjum lögum um útlendinga hér á landi sem samþykkt voru 2. júní 2016 og öðlast gildi 1. janúar 2017, hafa kaflar um alþjóðlega vernd ver- ið uppfærðir í samræmi við al- þjóðlega, evrópska og norræna þró- un. Árið 2015 voru lagðar fram yfir milljón umsóknir um alþjóðlega vernd innan Evrópusambandsins. Sama ár voru lagðar fram 355 um- sóknir um alþjóðlega vernd á Ís- landi. Af þeim fengu 82 umsækj- endur vernd á Íslandi. Samkvæmt spá innanríkisráðuneytisins, sem tekin var saman 12. febrúar 2016 og byggist á mati á þeirri stöðu sem er í Evrópu, aukningu umsókna milli ára á Íslandi og fjölda hælisleitenda í janúar, er gert ráð fyrir að umsóknir á Íslandi árið 2016 verði á bilinu 600- 800. Miðað við að hlutfall umsækj- enda sem fá vernd verði svipaður og árið 2015 munum við taka á móti 138-184 flóttamönnum á þessu ári. Ný lög um útlendinga taka gildi 1. janúar 2017 og í kjölfarið má búast við að fleiri hælisleitendur fái vernd á Íslandi. Samantekt Með nýjum lögum um útlendinga gerist Ísland virkari þátttakandi í mikilvægu samstarfi þjóða um al- þjóðlega vernd. Heildarfjöldi flótta- manna er vissulega áhyggjuefni en stærsta áskorunin er að ríki Evrópu sameinist um stefnu og skipulag sem er til þess fallið að stuðla að jafnari dreifingu ábyrgðar. Eftir Melkorku Mjöll Kristinsdóttur »Með nýjum lögum um útlendinga ger- ist Ísland virkari þátt- takandi í mikilvægu samstarfi þjóða um alþjóðlega vernd. Melkorka Mjöll Kristinsdóttir Höfundur er með BA-próf í heim- speki með trúarbragðafræði sem aukagrein og BA-próf í lögfræði. Í tilefni nýrra laga um útlendinga

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.