Morgunblaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 21
MINNINGAR 21 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016 Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann ✝ Héðinn Garð-arsson fæddist á Akureyri 27. september 1973. Hann lést 25. júní 2016. Foreldrar hans eru Garðar Helga- son, f. 29.5. 1947, og Védís Baldurs- dóttir, f. 10.7. 1952. Systkini Héðins eru Helgi, f. 1969, Baldur, f. 1971, Ásta, f. 1974, Sigrún, f. 1976, Anna Jóna, f. 1978, Halla Björk, f. 1979, Guðný Berglind, f. 1981 og Garðar Þór, f. 1983. Héðinn kvæntist Herborgu Árnadóttur þann 16.12. 1995. Þau skildu árið 2012. Þau eign- uðust þrjú börn sem eru: 1) Jak- ob Darri, f. 1995, 2) Lovísa Ýr, f. 1997, 3) Þormóður Geir, f. 2001. Héðinn ólst upp á Akureyri og bjó þar alla sína tíð fyrir ut- an eitt ár sem þau hjónin fluttu suður. Á sínum yngri ár- um dvaldi hann flest sumur í sveit, fyrst um sinn á Rauðá í Þingeyjar- sveit hjá ömmu- systur sinni og síð- ar sem vinnumaður hjá föðurbróður sínum á Ytra-Gili. Eftir grunnskóla hóf Héðinn störf hjá Útgerðar- félagi Akureyringa og vann þar í nokkur ár. Síðan þá hefur hann mestmegnis unnið hjá hin- um ýmsu verktökum við iðnað- arstörf. Héðinn var virkur með- limur í AA-samtökunum og mætti reglulega á fundi þar sl. 20 ár. Héðinn þótti handlaginn, duglegur og hafði ávallt nóg að gera. Útför Héðins fer fram frá Akureyrarkirkju í dag, 5. júlí 2016, klukkan 10.30. Elsku pabbi, orð fá ekki lýst söknuðinum og tómleikanum sem ég finn fyrir. Þú kenndir mér svo margt og gafst mér margar góðar minningar sem eru mér svo dýrmætar, þetta eru minningar sem ég mun aldr- ei gleyma. Ég er svo þakklát fyrir þann tíma sem við fengum saman. Ég sakna þín mikið, það er erfitt að hugsa til þess að ég muni aldrei aftur fá að sjá brosið þitt eða heyra hláturinn þinn, en það er þannig sem ég mun muna eftir þér. Þú varst góður við alla sem á vegi þínum voru og dæmdir aldrei neinn, þú varst alltaf til staðar fyrir þá sem leituðu til þín. Ég leit upp til þín vegna þessa. Þú varst og verður alltaf hetj- an mín. Hans hlátur, hans bros og bragur var öllum sem hann þekktu svo kær, hann var þeim einlægur vinur og stóð þeim alltaf nær (Katrín Ruth) Þín pabbastelpa, Lovísa Ýr. Elsku bróðir, Ég sit hér með tárin í aug- unum, það er svo erfitt að þurfa að kveðja þig svona snemma. Ég hugga mig með minning- um um yndislegan dreng. Ég man til dæmis eftir því sem unglingur að hafa fengið að fljóta nokkrum sinnum með þér og vinum þínum í sleða- og jeppaferðir upp í Fálkafell. Ótrúlegt hvernig þú nenntir að leyfa mér að hanga með. Þetta er svo mikið ekta þú. Að hugsa um alla aðra í kringum þig um- fram sjálfan þig. Þú varst ein- staklega duglegur að gleðja aðra. Ég man líka eftir því þegar þú varst að leysa af við skúr- ingar í bragganum á ÚA. Ég að- stoðaði þig og að launum fékk ég stærsta páskaeggið sem til var í Hagkaup. Eitthvað sem mig dreymdi um. Ég man hvað ég var rosalega ánægð með það. Ég var svo ánægð að ég tímdi ekki einu sinni að borða það. Svo er ekki annað hægt en að minnast á flottu sportbílana þína. Það var alltaf gaman að fá að fara á rúntinn með þér á þeim. Þú hugsaðir gríðarlega vel um þá. Þeir voru alltaf glansandi hreinir, enda stóðu þeir oft á tíðum heima á plani á meðan þú labbaðir í vinnuna til þess að halda þeim hreinum. Þú sóttir mikið í börn og varst í miklu uppáhaldi hjá mín- um börnum. Það var ansi oft tal- að um Hédda frænda og hvað hann væri skemmtilegur og góð- ur. Þú varst svo duglegur að koma og bjóða þeim með þér eitthvert út á rúntinn. Þú heils- aðir þeim ávallt með, „hæ frændi“ eða „hæ frænka“ og gafst þér alltaf góðan tíma í að spjalla við þau. Fyrst var atast í börnunum og svo var komið og spjallað við okkur Óla. Aldís Dögg og Emil Andri töluðu oft um bílferðirnar með þér. Enda var mjög eftirsótt af börnunum að fá að fara með þér í bíl heim úr fjölskylduboðum. Mest spennandi fundust þeim ferðirnar þar sem heyrðist í þér: „Já, ég skal gera þetta en þið lofið þá að segja mömmu ykkar ekki frá því.“ Þá var verið að spóla eða keyra jafnvel yfir hringtorg. Þú varst smá stund að vinna Ívan Elí á þitt band þegar hann var lítill en eftir það þá var hann algjörlega þinn. Samband ykkar var ótrúlegt. Þegar þú mættir í heimsókn þá byrjaðir þú alltaf að kalla með skemmti- legum tón: „Hey lilli“, og þá kom Ívan Elí hlaupandi á móti þér og svo fífluðust þið og hlóg- uð. Hvorugur ykkar gat hætt. Mér er einnig ansi minnisstætt þegar hann kom til mín fyrir um ári og spurði hvort hann mætti hringja í Hédda frænda af því að hann vildi biðja þig um að koma og leika. Þú varst okkur oft og tíðum innan handar þegar við vorum í einhverjum framkvæmdum á heimilinu. Við byggingu á Fossagili varst þú mættur á staðinn óumbeðinn og vildir fá að aðstoða. Þekking þín og reynsla var slík að ég treysti öll- um þínum ráðleggingum 110%. Já, elsku Héðinn, lífið er stundum óskiljanlegt. Ég kveð þig með miklum söknuði, elsku ljúfi, umhyggjusami og bros- mildi bróðir. Það eru erfiðir tímar framundan hjá okkur fjöl- skyldunni en við munum öll standa saman og hugsa um fal- legu minningarnar. Við munum einnig passa vel upp á börnin þín og hlúa vel að þeim. Takk fyrir alla hlýjuna og góðu minn- ingarnar sem þú gafst okkur. Hvíl í friði, elsku bróðir. Þín systir, Halla Björk. Elsku fallegi bróðir. Mikið er sárt að hugsa til þess að þú sért farinn frá okkur. Ég á erfitt með að trúa að ég eigi aldrei eftir að sjá þig aftur. Mig verkjar af söknuði og þrái ekkert heitar en að fá þig aftur til okkar. Ég bíð og vona að ég eigi eftir að vakna af þessari martröð og þú eigir eftir að skottast inn um dyrnar og setn- ingin: „Hey lilli“ heyrist. Það sem þú varst dýrkaður og dáður af frændsystkinum þínum enda með eindæmum barngóður. Börnin mín eiga margar góðar og fallegar minn- ingar um þig enda margt sem þið hafið brallað saman. Það var alltaf eftirsóknarvert hjá þeim að fá að fara í ævintýraferð með Hédda frænda. Í þeim ferðum var alltaf mikið fjör og margt gert sem einungis var leyfilegt hjá Hédda frænda. Þær voru líka ófáar ísferðirnar sem þið fóruð í saman enda þótti þér ís ekki vondur. Ég man eftir því þegar þú passaðir strákana fyrir mig yfir helgi fyrir tveimur ár- um. Þá var frystirinn fylltur af ís og markmiðið hjá ykkur var að ná að klára allan ísinn sem til var áður en við foreldrarnir kæmum aftur heim. Þið náðuð að sjálfsögðu þessu markmiði ykkar en strákarnir báðu þó reyndar ekki um ís næstu daga á eftir. Þeir tala enn um það hversu mikinn ís þið borðuðuð yfir þessa helgi. Elsku bróðir, þú varst svo yndislegur einstaklingur. Þú varst einstaklega geðgóður, þol- inmóður, hreinskilinn, hjálpsam- ur og lífsglaður. Þú varst sann- ur vinur vina þinna og vildir allt fyrir alla gera. Þú varst ein- staklega laginn í höndunum og kunnir allt. Það virtist vera al- veg sama hvað þurfti að laga eða leysa, þá kunnir þú alltaf ráð við því. Þú hefur gert mikið fyrir mig í gegnum tíðina og hjálpað mér í gegnum erfiða tíma og fyrir það er ég mjög þakklát. Ég á óteljandi fallegar minn- ingar um þig. Ég man svo vel eftir því þegar þú hringdir í mig í byrjun sumars og sagðist þurfa að heimsækja mig um kvöldið til að sýna mér dálítið. Þegar þú komst um kvöldið kom í ljós að þú hafðir keypt nýjan bíl fyrr um daginn. Hamingjan geislaði af þér og þú varst svo ánægður með nýja bílinn. Þú baðst mig um að koma á rúntinn með þér og hjálpa þér að taka myndir af bílnum. Við keyrðum saman um bæinn og það var svo yndislegt að fylgjast með þér. Andlit þitt var uppljómað og þú minntir mig einna helst á ung- ling sem var nýlega búinn að fá bílprófið. Við töluðum mikið saman í þessari bílferð og er þetta kvöld mjög dýrmætt í huga mínum. Elsku bróðir, það sem ég er þakklát í dag fyrir það hversu stutt er síðan ég sagði þér hversu vænt mér þætti um þig. Það er óendanlega sárt að þurfa að kveðja þig. Það er stórt skarð búið að myndast í systk- inahópnum en við öll fjölskyldan munum sameinast um að styrkja hvert annað á þessum erfiðu tímum. Hver minning dýrmæt perla að liðn- um lífsins degi, hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka hér. Þinn kærleikur í verki var gjöf, sem gleymist eigi, og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Hvíldu í friði elsku bróðir, þín verður sárt saknað. Þín systir, Guðný Berglind. Elsku, yndislegi Héðinn minn, þú varst ekki bara bróðir minn, þú varst líka besti vinur minn. Þú varst einstaklega góður bróðir og vinur og vildir alltaf allt fyrir alla gera. Við hjálp- uðum hvort öðru mikið í gegn- um lífið. Oft varstu nú búinn að skamma mig fyrir að ganga ein í gegnum hlutina og fyrir að koma ekki að biðja um hjálp. Þér fannst ég alltaf vera of hörð við sjálfa mig og eins fannst þér að ég ætti alls ekki að ganga ein í gegnum allt það sem hefur gengið á í lífinu hjá mér. Þú varst alltaf svo jákvæður og brosmildur og með þennan smitandi hlátur þinn sem heyrð- ist ansi oft. Fullkomnunarárátt- an var mikil hjá þér og þú gerð- ir ekkert án þess að hafa það fullkomið. Þú varst mikið snyrti- menni og varst alltaf með allt hreint og snyrtilegt í kringum þig. Þú hafðir mikinn áhuga á bíl- um og áttir marga fallega bíla. Það var svo gaman að sjá þig á nýja bílnum sem þú keyptir þér um daginn, þú varst svo glaður og ánægður með bílinn og ljóm- aðir þegar þú varst á honum. Ég man eftir öllum góðu stundunum okkar saman á yngri árum okkar þegar ég fékk að hjálpa þér við að líma saman módel-bílana sem þú hafðir svo mikið yndi af. Mér fannst algjör heiður þegar þú treystir mér til að hjálpa þér við að gera bílana því að sjálfsögu þurfti allt að vera 100% í þessu eins og öllu öðru sem þú tókst þér fyrir hendur. Þú áttir mikið og flott safn af alls konar módel-bílum sem þú varst stoltur af. Ég er mjög þakklát fyrir all- ar góður stundirnar sem við átt- um saman. Þú varst einstaklega barngóður og byrjaðir alltaf á að tala við krakkana og leika við þá þegar þú komst í heimsókn eða þegar við komum til þín. Þú varst einstaklega góður við hann Gabríel minn sem dýrkaði og dáði Inni frænda eins og hann kallaði þig þar sem hann gat ekki sagt Héðinn. Þið voruð einstaklega góðir vinir og þú varst alltaf tilbúinn til að hjálpa mér með hann. Gabríel er sko ekki alltaf allra en alltaf áttir þú hug og hjarta hans. Það voru ófá skipt- in sem hann hringdi í þig og vildi fara á vélsleðann með þér eða í bílinn eða bara fá að hitta þig, stundum þurfti ég að vera túlkur í símtalinu þegar hann var að segja þér einhverjar rosalegar sögur sem þú skildir ekki alveg, enda oft erfitt að skilja hann þegar hann er mjög ákafur að segja frá einhverju spennandi. Það verður erfitt fyrir hann að skilja að nú er Inni frændi farinn og við getum ekki hringt í hann eða hitt hann. Ég trúi því að þú munir vaka yfir Gabríel og fylgja honum eftir. Karítas á líka margar góðar minningar um þig og talar enda- laust um hvað þú varst góður frændi. Þið lékuð mikið saman og strídduð hvort öðru enda- laust. Henni fannst alltaf gaman þegar hún fékk að fara með þér og er búin að tala mikið um síð- ust ferð sem þið förum saman á Glerártorg að versla fyrir stuttu síðan og fóruð þið svo í Kletta- borg. Henni fannst mjög gaman þegar hún fékk að vera ein með þér í frændadekri. Elsku Héðinn, erfitt er að hugsa sér lífið án þín, ég sakna þín svo sárt en ég á margar góðar minningar með þér sem munu alltaf lifa í huga mér. Umhyggju og ástúð þína okkur veittir hverja stund. Ætíð gastu öðrum gefið yl frá þinni hlýju lund. Gáfur prýddu fagurt hjarta, gleðin bjó í hreinni sál. Í orði og verki að vera sannur var þitt dýpsta hjartans mál. (Ingibjörg Sigurðardóttir) Þín systir Anna Jóna. Elsku bróðir. Orð fá því ekki lýst hversu erfitt var að fá þær fréttir að þú værir týndur og geta ekki tekið þátt í leitinni þar sem ég var stödd á Spáni. Ég náði þó að breyta fluginu heim og var það óendanlega þungbært að fá þær fréttir að þú værir fundinn lát- inn, þegar ég var á leiðinni á flugvöllinn, og var heimferðin óbærileg. Sárt er að hugsa til þess að hafa ekki getað hjálpað þér og komið í veg fyrir þessar hörmungar. En stórt skarð er nú í fjölskyldunni okkar þar sem þú spilaðir svo stórt hlut- verk og varst alltaf til staðar fyrir alla og ávallt reiðubúinn að gera allt fyrir alla. Þú varst einstakur blíður, hjálpsamur og yndislegur í alla staði. Eftir sitja ljúfar minn- ingar sem við áttum saman þar á meðal frá því þegar við vorum saman í sveit en þú passaðir ávallt upp á mig og varst alltaf til staðar. Þú reyndist mér sér- staklega vel þegar strákarnir mínir misstu pabba sinn og varst ávallt reiðubúinn að hlusta þegar ég þurfti á að halda og gefa mér góð ráð. Ég get ekki hugsað þá hugsun til enda að þú sért endanlega farinn frá okkur, það er óbærilegt. Og að geta ekki keppst við að vera á undan að hringja í þig og óska þér til hamingju á afmælisdaginn okk- ar. En við sem eftir sitjum stöndum nú saman og styrkjum hvort annað til að komast í gegnum þetta. Ég elska þig, elsku bróðir. Þín systir, Sigrún. Héddi frændi var vinnumaður hjá okkur í sveitinni í mörg sumur. En hann var miklu meira en bara vinnumaður, hann var leikfélagi og vinur. Héddi hafði einstakt lag á því að stríða okkur systkinunum og hlæja svo dátt að okkur ef ætl- unarverk hans tókst. Hann kenndi okkur að hoppa jafnfætis yfir hrífuskaftið haldandi á því með báðum höndum. Þetta reyndist nokkuð flókinn leikur þar sem við kútveltumst á túninu eftir hverja tilraun sem uppskar mikinn fögnuð hjá hon- um. En æfingin skapaði meist- arann. Það var ýmislegt sem honum datt í hug og við eltum. Hann kynnti okkur fyrir „tröllahunda- súru“, sem átti að vera miklu betri en venjuleg hundasúra, en reyndist að sjálfsögðu vera njóli. Það var ævinlega gaman að vera í kringum hann og börn hænd- ust að honum. Á sunnudögum er hitað kakó í sveitinni og lá leið hans æði oft frameftir. Ekki skemmdi það tilhlökkunina þeg- ar hann eignaðist sjálfur börn og við gátum leikið við þau systkinin. Sunnudagar hér eftir verða hálf tómlegir, vitandi það að Héddi frændi renni ekki í sveitina. Í dag, alltof snemma, kveðj- um við frænda okkar með sökn- uð í hjarta. Minningar um hlát- ur hans og bros lifir í huga okkar. Hvíl í friði. Ytra-Gils systkin, Helgi, Hrafnhildur, Halldór og Heiðrún. Fallinn er frá langt fyrir ald- ur fram Héðinn Garðarsson. Oft var hann búinn að koma til okk- ar í Skarðshlíðina, við kölluðum hann hjálparhelluna okkar. Ég hringdi í hann og sagði að nú vantaði okkur hjálparhelluna okkar, hann hló við og spurði hvað það væri og það var alveg sama hvað ég bað um að gert yrði, það var ekkert mál. Héð- inn var með eindæmum laghent- ur og gat leyst úr öllum vanda, ef ekki strax þá setti hann upp tíma að kvöldi eða næsta dag sem alltaf stóð eins og stafur á bók. Við hjónin minnumst þessa ljúfa, góða og samviskusama drengs með mikilli hlýju og þakklæti fyrir allt. Börnum Héðins, foreldrum og systkinum vottum við inni- lega samúð okkar. Álfheiður Björk og Benedikt. Þau ljós sem skærast lýsa, þau ljós sem skína glaðast þau bera mesta birtu en brenna líka hraðast og fyrr en okkur uggir fer um þau harður bylur er dauðans dómur fellur og dóm þann enginn skilur. En skinið loga skæra sem skamma stund oss gladdi það kveikti ást og yndi með öllum sem það kvaddi. Þótt burt úr heimi hörðum nú hverfi ljósið bjarta þá situr eftir ylur í okkar mædda hjarta. (Friðrik Guðni Þórleifsson.) Með Héðni er genginn einn allra besti maður sem við höfum kynnst. Hann reyndist fjöl- skyldu sinni einstaklega vel. Ótímabært andlát Héðins kem- ur í opna skjöldu og reynir á. Eftir lifir minning um einstakt valmenni sem ekkert skyggir á. Okkur sem eftir lifum verða ekki færðar betri gjafir. Elsku Herborg, Jakob, Lovísa, Þormóður, Garðar, Véd- ís, systkini Héðins og fjölskyld- ur, megi trúin á hið góða lifa með ykkur. Kveðja Árni, Sveinbjörg, Páll og Ari. Þegar himinninn hrynur er eins og tíminn standi í stað. Verði eins, endalaus. Hissa verð er lífið áfram heldur eins og ekkert hafi í skorist. Í huga mér þessi dagur hvert atvik eins og meitlað í stein. Sársaukinn um æðar rennur finnur leið í ljóði hér. (Höf. óþ.) Með þessu ljóði vil ég kveðja Héðin vin minn og þakka honum fyrir samstarfið síðastliðið eitt og hálft ár. Ég sannarlega sakna góðs drengs sem vildi öll- um svo vel. Við ræddum margt og hann trúði mér fyrir ýmsum af sínum hjartans málum og það leyndi sér aldrei að börnin hans stóðu hjarta hans næst. Far þú í friði, vinur sæll, og megi allar góðar vættir vaka yfir þér og öllu þínu fólki. Þar til við hittumst næst. Ingvi og Rósa. Héðinn Garðarsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.