Morgunblaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 26
26 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016 Helga Björg Ingimarsdóttir, sauðfjár- og æðarbóndi á Höfnumá Skaga, er fimmtug í dag. „Þetta er hlunnindajörð, við erummeð æðarvarp og rekavið og hefðbundinn búskap, kindur og hesta. Við fáum 30-35 kíló af hreinsuðum dún og ég vinn úr honum sængur sem ég sel bæði hérlendis og erlendis. Svo seljum við töluvert af rekaviði; það er mjög vinsælt hjá fólki sem er að byggja hús og palla og vill hafa eitthvað öðruvísi hjá sér að panta við hjá okkur.“ Helga ólst upp í Árholti við Laxá á Ásum, en þau hjónin, Helga og Vignir Sveinsson, keyptu jörðina Hafnir árið 2003. „Elsti sonur okk- ar, Skafti, er að koma inn í búskapinn. Önnur börn okkar eru Ingimar og Alma Dröfn en fyrir átti Vignir dótturina Söndru Dögg. Svo eigum við þrjú yndisleg barnabörn.“ Helga hefur setið í sveitarstjórn Skagabyggðar síðan 2010. „Það er helst að frétta úr sveitarfélaginu að nú á að klára að leggja ljósleiðara á bæi í sveitarfélaginu, en einn bær var skilinn eftir. Einnig verður lagt rafmagn þangað, en þar hefur ekki verið aðgangur að ríkis- rafmagni. Það er ekkert planað í tilefni dagsins en ég ætla í siglingu á Kyrra- hafinu seinna á árinu. Ætli ég verði ekki heima að njóta náttúrunnar, það er svo fallegt hérna og alveg til þess vinnandi að labba hér um meðfram sjónum Við sjáum t.d. mikið af sel hérna. Ég hef gaman af útiveru og hestamennsku og svo er ég mikið fyrir allar hannyrðir, saumaskap og prjónaskap og að eyða tíma með fjölskyldu og vinum, það er alltaf mjög gaman.“ Ljósmynd/Björk Guðbrandsdóttir Hjónin Helga og Vignir fyrir utan félagsheimilið Skagabúð við stúd- entsveislu dóttur þeirra, Ölmu Drafnar, árið 2014. Æðarvarp og reka- viður á jörðinni Helga Björg Ingimarsdóttir er fimmtug D ýrfinna fæddist í Reykjavík 5. júlí 1931 og ólst þar upp í Selja- landi sem var sveita- býli þar sem nú eru gatnamót Háaleitisbrautar, Safa- mýrar og Ármúla: „Þetta var nú ekki mikill búskapur en mamma var með tvær mjólkandi kýr, 20 kindur og hænsni. Þetta var svona sjálfsþurft- arbúskapur til að fæða börnin eins og þá tíðkaðist víða við Reykjavík og í Kópavogi. Við krakkarnir rákum kindurnar í afrétt upp í Breiðholt en kýrnar voru á beit í Seljalandsholtinu. Við þurft- um að sitja þar yfir þeim svo þær færu ekki á flakk.“ Dýrfinna var í Laugarnesskól- anum. „Við gengum alltaf í skólann en það var svolítill spölur að fara. Á hinn bóginn var Laugarnesskólinn afar góður barnaskóli á þessum árum.“ Dýrfinna starfaði hjá nunnunum á Landakoti í fjögur sumur og var síð- an einkabílstjóri hjá Guðmundi blinda í Víði en samtímis í Kvöldskóla KFUM. Hún hóf nám við Ljós- mæðraskólann 1951 og lauk ljós- mæðraprófi 1952. Dýrfinna starfaði við fæðingar- deild Landspítalans á námsárunum 1951-52, var þar ljósmóðir 1953 og 1954, starfaði við mæðradeild Heilsu- verndarstöðvar Reykjavíkur 1955-76 og starfaði síðan á Fæðingarheimili Reykjavíkur frá 1976-92 er Fæðing- arheimilið var lagt af. Þá starfaði hún við Landspítalann frá 1993-2001, auk þess sem hún hafði oft leyst þar af á fæðingargangi á árum áður. Dýrfinna var auk þess starfandi ljósmóðir í Reykjavík og nágrenni þar sem hún tók á móti börnum í heimahúsum. Dýrfinna hefur ekki tölu yfir öll þau börn sem hún hefur tekið á móti en þau skipta mörgum hundruðum: „Þetta var fyrst og fremst mjög er- ilsamt starf. Maður þurfti alltaf að vera reiðubúinn að taka á móti börn- um með skömmum fyrirvara og þetta útheimti oft miklar vökur þegar mik- ið var um fæðingar. En þetta var allt þess virði því það er fátt gleðilegra en taka á móti nýju lífi. Annars hef ég tekið á móti öllum barnabörnunum nema einu sem fæddist í Svíþjóð og mörgum lang- Dýrfinna Helga K. Sigurjónsdóttir ljósmóðir – 85 ára Fjölskyldan Talið fr.v. Sigríður Helga, Þórey, Elinóra, Sigurður, Sigrún, Dýrfinna, Elínborg, Magnús og Jón Helgi. Hún tók síðast á móti langömmubarni 82 ára Akranes Ísabella Líf fæddist 21. maí. 2015 kl. 19.43 á Akranesi. Hún vó 3.560 g og var 53 cm að lengd. Foreldrar hennar eru Hulda Ósk Guð- björnsdóttir og Gunnar Örn Ólafsson. Nýr borgari Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson,Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum, hjónavígslum, barnsfæðingum og öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.isÍshella 10 • 221 Hafnarfjörður • Sími 569 2100Mynd: Slökkvistöðin Skógarhlíð. Þeir semgerakröfur veljaHéðinshurðir Fáðu tilboð í hurðina Fylltu út helstu upplýsingar á hedinn.is og við sendum þér tilboð um hæl.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.