Morgunblaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 05.07.2016, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. JÚLÍ 2016 Á næsta jazz- kvöldi Kex Hos- tels, í kvöld þriðjudaginn 5. júlí kl. 20.30, kemur fram tríó orgelleikarans Tómasar Jóns- sonar. Aðrir hljóðfæraleik- arar eru þeir Sigurður Flosa- son á saxófón og Einar Scheving á trommur. Þeir munu flytja valda jazz-standarda. Aðgangur er ókeypis. KexJazz er sá atburður á Kex Hostel sem hefur lifað lengst frá stofnun gistiheimilisins, en Kex Hostel er á Skúlagötu 28. Kexað KexJazz Tómas Jónsson Davíð Már Stefánsson davidmar@mbl.is „Við höldum að sjálfsögðu í okkar klassísku hefð. Það er náttúrlega vel við hæfi þar sem Sigurjón sjálfur var hámenntaður, klass- ískur listamaður,“ segir Hlíf Sig- urjónsdóttir, fiðluleikari og dóttir Sigurjóns Ólafssonar, um tutt- ugustu og áttundu sumartónleika- röð Listasafns Sigurjóns Ólafs- sonar sem hefst í safninu á Laugarnesi í kvöld klukkan 20.30. Hlíf, sem er listrænn stjórnandi raðarinnar, kveður tónleikana verða með svip- uðu móti og hef- ur verið. „Við verðum í salnum okkar og með hljóðfærin á staðnum. Við höldum alltaf spennunni gang- andi og reynum alltaf að koma með eitthvað nýtt í bland við þetta eldra. Við hikum ekki við það að frumflytja verk hérna,“ segir hún en tónleikaröðin býður í ár upp á sérvalda listamenn víðs- vegar að úr heiminum. Færri komast að en vilja Það eru ætíð margir sem sækja um að fá að koma fram í tónleika- röðinni og segir Hlíf færri komast að en vilja. „Það var líkt og fyrri daginn erfitt að velja úr, því það eru margir frábærir listamenn sem sækja um en dagsetningarnar fá- ar. Það er ýmislegt sem spilar inn í við þetta val. Við höfum hampað þeim sem eru að stefna á að ná langt í sínu fagi. Í ár fannst mér einnig mikilvægt að heiðra tón- skáldið Jónas Tómasson auk þess sem ég vildi fá fólk að norðan til að koma og spila hér fyrir sunnan. Við erum alltaf pínu lókalíseruð eins og Reykjavík sé nafli alheims- ins. Það er verið að gera mjög flotta hluti úti á landi sem er hollt fyrir okkur að fylgjast með. Nálg- unin þar er oft með öðru móti sem virkilega gaman er að þekkja,“ segir hún. Þá kveður hún að það verði að sjálfsögðu einnig að passa upp á að efnisskráin sé fjölbreytt svo ekkert sé endurtekning og að allir geti fundið eitthvað við sitt hæfi. Jónas Tómasson heiðraður „Við opnum þetta í ár með söng. Það er Ísland og Spánn, hjónin Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og gítarleikarinn Francisco Javier Jáuregui. Þau eru að koma fram í fyrsta skiptið hjá okkur. Ég spái því að það verði frábært veður og sólarlagið verði til fyrirmyndar við Atlants- hafið,“ segir hún en yfirskrift tón- leika hjónanna er einmitt Söngvar frá Atlantshafsströndum. Hlíf seg- ist gera ráð fyrir því að tónleikar númer tvö í röðinni, sem verða 12. júlí, verði einnig mikið upplifelsi. „Þá koma Árni Heimir Ingólfs- son og Hanna Loftsdóttir með skærustu stjörnu í heiminum í dag á blokkflautu, hinn unga Martin Bernstein. Síðan förum við yfir í annan heim á tónleikunum þar á eftir, sem verða 19. júlí, en þá verða ljóð Jakobínu Sigurðar- dóttur í Garði flutt við lagaflokk Ingibjargar Azimu Guðlaugsdóttur sem er einmitt barnabarn Jakob- ínu. Þar koma til sögunnar nokkuð margir flytjendur þannig að það verður mjög litríkt. Síðan verður tónskáldið Jónas Tómasson heiðr- að þann 26. júlí og við viljum um leið vekja athygli á hans verkum,“ segir hún en þar verður flutt úrval einleiks- og einsöngsverka frá ýmsum tímum á ferli hans. Flytj- endur á tónleikunum eru allir tengdir Jónasi nánum fjölskyldu- eða vinaböndum. Upprennandi stjörnur ljúka „Við verðum síðan með auka- tónleika fimmtudaginn 28. júlí eins og við höfum gert áður. Þá bjóðum við flytjendum sem ekki komust að hjá okkur að leigja salinn. Í ár eru það Anna Jónsdóttir, Ute Völker og Ursel Schlicht sem verða með mjög spennandi nálgun á söng- lögum Jóns Leifs. Þau verða með mjög skemmtilega nýja sýn og nýta til þess spuna, söng, harmó- nikku og píanó,“ segir Hlíf. Næst- síðustu tónleikar raðarinnar, sem verða 2. ágúst, verða síðan nýttir undir fulltrúa tónlistarmanna á Norðurlandi, þá Michael Jón Clarke og Daníel Þorsteinsson. „Þeir munu flytja Kímnilög við gríntexta Þórarins Eldjárn. Þá verða einnig sungin lög úr Bangsí- mon lagaflokknum eftir H. Fraser- Simson við ljóð A. A. Milne. Húm- orinn verður að leiðarljósi hjá þeim. Það verða síðan þessar ungu upprennandi stjörnur, Hrafnhildur Árnadóttir Hafstað og Ingileif Bryndís Þórsdóttir, sem binda enda á hátíðina þann 9. ágúst,“ segir hún en þess má geta að Hrafnhildur hefur meðal annars numið í Hollandi og sungið með Sinfóníuhljómsveit Íslands. Upplifunin stærri og meiri Eins og áður segir er þetta í tuttugasta og áttunda sinn sem tónleikaröðin er haldin og segir Hlíf þreytuna vissulega stundum segja til sín. „Þetta er vissulega rosaleg vinna en það er eins og með ann- að, það eru hugsjónirnar sem knýja mann áfram. Hér var byggt safn svo að menning á hæsta plani væri til staðar og að hún væri öll- um aðgengileg. Við viljum ná til fjölbreytts hóps með því að vera með fjölbreytta dagskrá. Við Ís- lendingar erum ennþá miklu skem- ur komin í því að njóta þrívíðrar listar en Hollendingar til dæmis. Það liggur við að Íslendingar sjái bara tvívíða list. Við erum bók- menntaþjóð og þegar maður fer inn á heimili þá eru alltaf málverk eða myndir en mjög sjaldan þrívíð verk. Með tónleikaröðinni viljum við svolítið draga fólk inn í þetta þrívíða umhverfi og slá tvær flug- ur í einu höggi með því að mennta og miðla,“ segir hún og bætir við að tónleikasalurinn sé langt frá því að vera venjulegur. „Þegar þú situr í þessum sal og hlustar á tónlistina með öll þessi verk í kringum þig, þá gerist eitt- hvað mjög sérstakt. Upplifunin verður meiri og stærri,“ segir hún að lokum. Knúið áfram af hugsjónum  Efnt verður til sumartónleikaraðar Listasafns Sigurjóns Ólafssonar í tutt- ugasta og áttunda sinn í júlí og ágúst  Efnisskráin í ár er einkar fjölbreytt Dúó Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir mezzósópran og gítarleikarinn Francisco Javier Jáuregui opna hátíðina í kvöld. Barokk Blokkflautuleikarinn Martin Bernstein kemur fram 12. júlí ásamt þeim Hönnu Loftsdóttur, barokkselló, og Árna Heimi Ingólfssyni, semball. Hlíf Sigurjónsdóttir Þarftu að losa þig við eitthvað óæskilegt? Gylfaflöt 5 | 112 Reykjavík | 520 2200 | sorpa@sorpa.is Við kynnum stærri og betri grenndargáma á höfuð- borgarsvæðinu ásamt því að gámur fyrir gler hefur bæst við á margar stöðvar. Finndu grenndargáma í þínu hverfi á sorpa.is. Pappír, plast og gler — við tökum þetta allt, en það er ein mikilvæg regla: Flokkið! Skilið? B ra n d e n b u rg |s ía INDEPENDENCE DAY 2 5:30, 8, 10:30(P) LEITIN AÐ DÓRU ÍSL.TAL 3:30, 5:45 CENTRAL INTELLIGENCE 8, 10:25 WARCRAFT 8(2D), 10:30(3D) FLORENCE FOSTER JENKINS 5 ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 3:30 LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar Miðasala og nánari upplýsingar POWERSÝNING KL. 22:30 ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.